Sigmundur Davíð gefur í skyn að vinstrimenn á upptöku hefðu fengið öðruvísi meðhöndlun

Formaður Mið­flokks­ins hefur birt pistil á heima­síðu sinni þar sem hann setur Klaust­ur­málið upp í tvær ímynd­aðar atburð­ar­rásir þar sem upp­teknir þing­menn séu úr Vinstri grænum og Sam­fylk­ingu.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, hefur birt pistil á heima­síðu sinni þar sem hann gefur í skyn að fjöl­miðlar og stjórn­mála­menn hefðu farið öðru­vísi með Klaust­ur­upp­tök­urnar svoköll­uðu ef þeir sem teknir væru upp væru úr vinstri­flokkum.

Í pistl­inum, sem ber nafnið „Er sama hver er?“, leggur Sig­mundur Davíð út frá því að þing­menn­irnir sex sem sátu að sum­bli á Klaust­ur­bar hefðu verið úr Vinstri grænum og Sam­fylk­ingu og að sá sem tekið hafi upp sam­tal þing­mann­anna hafi verið „ungir Heim­dell­ingur og harð­línu-frjáls­hyggju­maður“ sem hefði „gert ráð­staf­anir til að njósna um einka­sam­tal þeirra klukku­tímunum saman.“

[adspot]Sig­mundur Davíð gefur þing­mönnum og flestum fjöl­miðlum gervi­nöfn í pistl­inum og gengur einnig út frá því að upp­tökur á sam­tölum eins og þeim sem áttu sér stað á Klaust­ur­bar 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, séu ólög­legar. Í skrif­unum er Stundin t.d. köllum hin ákafa hægri­vef­síða Tíð­ar­and­inn og Kjarninn fær við­ur­nefnið hægri­vef­ur­inn Kvörnin sem „hafi lengi helgað sig bar­átt­unni gegn ógnum komm­ún­isma og krat­isma.“

Atburðarás 1

Í pistli Sig­mundar Davíðs er stillt upp tveimur mis­mun­andi atburð­ar­rásum: annarri þar sem þing­menn Vinstri grænna og Sam­fylk­ingar fá sömu með­ferð í umræð­unni og þing­menn Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins sem voru í raun á upp­tök­unum hafa fengið að hans mati. Ljóst er að skrif­unum að Sigmundi Davíð finnst sú með­ferð ekki sann­gjörn. Í þeirri atburða­rás setur Sig­mundur Davíð for­mann Mið­flokks­ins í hlut­verk Lilju Alfreðs­dóttur, vara­for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem rætt var um með mjög niðr­andi hætti á upp­tök­unum frá Klaust­ur­bar. Lilja kom í kjöl­farið í við­tal í Kast­ljósi og kall­aði Mið­flokks­menn­ina sem talað hefðu um hana á kyn­ferð­is­legan og niðr­andi hátt ofbeld­is­menn.

Í pistli Sig­mundar Davíðs segir: „Einn þeirra sem talað var um í hinum ólög­mætu upp­tökum, for­maður Mið­flokks­ins, er boð­aður í við­tal í Kast­ljósi til að flytja ótrufl­aður sýn­ingu sem er enn betur æfð en upp­setn­ing Leik­fé­lags Garða­bæjar. Sýningin er þó ekki und­ir­búin af leik­stjóra heldur PR-mönnum og snýst um að koma út til­heyr­andi frösum og stikkorðum. Mið­flokks­for­mað­ur­inn kallar vinstri­menn­ina sem talað höfðu illa um hann sín á milli (eða hlýtt á) ofbeld­is­fólk. Framlag þátt­ar­stjórn­and­ans felst í því að kinka kolli og segja já.“

[adspot]Sig­mundur Davíð gefur í kjöl­farið í skyn að fjöl­miðlar hafi þaggað niður mál Ágústs Ólafs Ágústs­sonar, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, og ráð­ist hafi verið að mik­illi ósekju að Önnu Kolbrúnu Árna­dóttur, þing­manni Mið­flokks­ins. Anna Kolbrún, sem fær nafnið Guðbjörn í frá­sögn Sig­mundar Davíðs, er sögð sam­visku­samt ljúf­menni sem hafi verið „stimpl­aður for­dóma­fullur og í fram­hald­inu gerður tor­tryggi­legur á allan hátt.“

Undir lok fyrri hluta pistils­ins segir: „Áfram heldur umfjöllun um málið á þeim for­sendum að vinstri­menn­irnir skuli dirfast að biðja um rann­sókn á atburða­rásinni.“

Atburðarás 2

Í síð­ari hluta pistils­ins stillir Sig­mundur Davíð upp annarri atburða­rás sem hann telur að gæti hafa átt sér stað ef per­sónur og leik­endur á upp­tök­unni hefðu verið úr vinstri­flokkum en ekki úr Mið­flokknum eða Flokki fólks­ins.

Þar lýsir hann því að allur fókus fjöl­miðla og stjórn­mála yrði á „að aldrei fyrr í íslenskri stjórn­mála­sögu hafi öðrum eins aðferðum verið beitt. Tekin eru við­töl við kunna álits­gjafa sem rifja upp sögur af því sem þeir kalla skrímsla­deild Sjálf­stæð­is­flokks­ins en láta þó fylgja sög­unni að jafn­vel í þá tíð hafi menn ekki beitt svo óheið­ar­legum brögðum. Þetta sýni að nú svíf­ist Sjálf­stæð­is­menn einskis vegna þess að þeir sjái ofsjónum yfir auknum stuðn­ingi við þá flokka sem njósnað var um.“

Hann segir frá for­seta þings­ins, sem sé flokks­bróðir þeirra þing­manna Vinstri grænna sem teknir hefðu verið upp sem væri harmi sleg­inn vegna þess að „menn skuli leggj­ast svo lágt að hljóð­rita með ólög­mætum hætti sam­töl þing­manna“ og að þingið þurfi að bregð­ast við til að vernda rétt þeirra sem gefa sig að störfum í almanna­þágu. Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, bað fyrr í þessum mán­uði aðra þing­menn en tóku þátt í sam­ræð­unum á Klaustri, aðstand­end­ur þeirra, starfs­menn þings­ins, kon­ur, fatl­aða, hinsegin fólk og þjóð­ina alla af­sök­un­ar fyr­ir hönd þings­ins á því sem fram kom á upp­tök­unum.

[adspot]Í ímynd­aðri atburða­rás Sig­mundar Davíðs fær hann nafnið Kristín og Gunnar Bragi Sveins­son og Bergþór Ólason, sam­flokks­menn hans, fá nöfnin Svanhvít og Bjarklind . Um hlut­verk þess­arra þriggja ímynd­uðu vin­strikvenna í upp­tök­unum segir í pistli Sig­mundar Davíðs: „Ófáir benda á að Kristín hafi ekki lagt mikið til mál­anna og alls ekki notað dóna­leg orð jafn­vel í því and­rúms­lofti sem var ríkj­andi þegar upp­takan var gerð. Það segi sína sögu um Kristínu. Hvað varði þær Svan­hvíti og Bjarklindi geti menn ekki leyft sér að taka orða­val þeirra of alvar­lega. Þetta sé aug­ljós­lega sagt í kald­hæðni. Það sé skilj­an­legt að þær vilji, í öruggu umhverfi, fá útrás vegna þeirra tak­mark­ana sem sam­fé­lagið nú til dags setji á það með hvaða hætti konur megi tjá sig. Þær búi við hömlur alla daga og þótt það brjót­ist fram með þessum hætti, þegar þær telja sig vera að ræða mál­inn þar sem eng­inn heyrir til og eng­inn verður fyrir skaða, megi ekki túlka það sem svo að þær séu að lýsa afstöðu sinni eða hug­ar­fari.“

Í kjöl­farið fjallar pistil­inn um það að for­maður Mið­flokks­ins yrði gerður ábyrgur fyrir því að hafa verið til umræðu á upp­tök­unum og þegar hann skjóti því inn að hann telji sig hafa verið beittan ofbeldi þá hafi hann verið „spurður hvort hann geti í alvöru haldið því fram að það sé ofbeldi að gagn­rýna ein­hvern í einka­sam­tali.“

[links]Þá segir að eftir að „löng saga ásak­ana um kyn­ferð­is­lega áreitni og þöggun í Sjálf­stæð­is­flokknum kemur í ljós eru beinar útsend­ingar frá Valhöll í hverjum frétta­tím­anum af öðrum þar sem sagt er frá því að for­maður flokks­ins neiti að svara fyrir málið. Kvörnin er for­dæmd fyrir að hylma yfir málin með flokknum jafn­vel þótt hluti atburð­anna hafi átt sér stað á skrif­stofum fjöl­mið­ils­ins. Vinstri­menn tala um að mið­ill­inn hafi birt hat­ursá­róður en þaggað önnur mál niður.“

Í ímynd­aðri seinni atburða­rás Sig­mundar Davíð er sá sem tók upp sam­tölin (Heim­dell­ing­ur­inn) kjöl­dregin á net­inu fyrir athæfið, Hann sagður óheið­ar­legur en því miður aðeins birt­ing­ar­mynd af sjúku ástandi í „flokki sem svífst einskis í því að koma höggi á and­stæð­inga sína til að geta við­haldið sér­hags­muna­gæslu sinni. Ef mað­ur­inn verði ekki sóttur til saka verði eng­inn öruggur í sam­fé­lag­inu framar. Stasi-sam­lík­ingar koma fram.

Leiddir eru fram sér­fræð­ingar til að útskýra að atburð­ur­inn kalli á aðgerðir svo það verði ekki reglan að mann­rétt­indi fólks séu brotin með per­sónunjósnum. Rannsaka þurfi málið enda séu vís­bend­ingar um að fleiri hafi komið við sögu. Það þurfi að verja rétt­ar­ríkið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár