Miðflokkurinn segir að reynt hafi verið að nota þingnefnd í pólitískum tilgangi

Í yfir­lýs­ingu segir að alltaf sé hægt að ná í Sigmund Davíð. Flokk­ur­inn seg­ist hafa stefnt upp­ljóstr­ar­anum í Klaust­urs­mál­inu fyrir dóm til skýrslu­töku vegna þess að rétt „ein­stak­linga til frið­helgi ber alltaf að virða“.

Í yfir­lýs­ingu sem birst hefur á Facebook-síðu Mið­flokks­ins kemur fram að for­maður og vara­for­maður flokks­ins, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Gunnar Bragi Sveins­son, hafi ekki haft neina skyldu til að mæta á fund stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í morgun. „Það er afar fátítt að þing­nefndir séu not­aðar í jafn aug­ljósum póli­tískum til­gangi og átti að gera. Slíkt á ekki að við­gang­ast,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Menn­irnir tveir höfðu verið boð­aðir á fund nefnd­ar­innar til að ræða tal þeirra á Klaust­ur­bar þann 20. nóv­em­ber um meint póli­tísk hrossa­kaup við skipun sendi­herra. Í þeim hrossa­kaupum fólks, sam­kvæmt tali mann­anna, að Gunnar Bragi ætti inni greiða hjá Sjálf­stæð­is­flokknum fyrir að skipa Geir H. Haarde, fyrr­ver­andi for­mann flokks­ins, sem sendi­herra í Washington. Þann greiða ætti hann að gera inn­kallað með því að fá sjálfur úthlutað sendi­herra­tign. Fyrir liggur að Sig­mundur Davíð fór á fund Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra til að ræða mögu­leik­ann á því að Gunnar Bragi yrði skip­aður sendi­herra. Allir menn­irnir fjórir áttu að koma fyrir opin fund í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd í morgun en ekk­ert varð af fund­inum þar sem hvorki Sig­mundur Davíð né Gunnar Bragi svör­uðu boð­unum á fund­inn. Í yfir­lýs­ing­unni segir: „Varðandi þær full­yrð­ingar sem komið hafa fram í fjöl­miðlum um að ekki hafi verið hægt að ná í for­mann okkar er sann­leik­ur­inn sá að alltaf er hægt að ná í Sigmund Davíð af starfs­mönnum Alþingis eða koma boðum til hans. Svar við fund­ar­boði var til­búið en kl 17.00 var fund­ur­inn afboð­aður. Engin tíma­mörk voru höfð í fund­ar­boði. Það var vitað að hvert svo sem svarið hefði orðið hefði það lekið í fjöl­miðla nær sam­stundis.“

Fund­ur­inn verður þess í stað haldin í jan­úar.

Í yfir­lýs­ingu Mið­flokks­ins er einnig fjallað um þá ákvörðun fjög­urra þing­manna flokks­ins um að láta Báru Hall­dórs­dóttur, sem tók tal þeirra upp, mæta fyrir dóm til skýrslu­töku. Þar segir að slík skýrslu­taka „yfir mann­eskju sem gerð­ist sek um eða tók á sig sök um hlerun er ein­ungis einn liður í nauð­syn­legri gagna­öflun. Við reiknum fast­lega með því að ýmis­legt eigi eftir að koma fram. Rétt ein­stak­linga til frið­helgi ber alltaf að virða og er það okkar helsti útgangs­punktur. Ekki er búið að ákæra neinn og ekki að fara fram á bætur frá neinum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár