Funda um sendiherramálið í janúar

Samkvæmt for­manni stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar mun nefndin funda um hið svo­kall­aða sendi­herra­mál í jan­úar. Ekki var hægt að fjalla um málið í nefnd­inni í dag þar sem Gunnar Bragi Sveins­son og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son mættu ekki.

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd mun funda um sendi­herra­málið svo­kall­aða í jan­úar. Þetta segir Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og for­maður nefnd­ar­innar, í sam­tali við Kjarnann.

Í frétt RÚV um málið mun nefndin ekki funda í dag vegna þess að þeir Gunnar Bragi Sveins­son og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hafa ekki svarað ítrek­uðum boðum um að mæta til fund­ar­ins.

Á fund­inn var einnig búið að boða Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Guðlaug Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra. Guð­laugur Þór er erlendis í dag, sam­kvæmt RÚV, og hefði því ekki kom­ist á fund nefnd­ar­innar.

Gunnar Bragi og Sig­mundur Davíð, sem báðir eru þing­menn Mið­flokks­ins, sátu á Klaust­ur­barnum í lok nóv­em­ber þar sem gerð var upp­taka af sam­tali þeirra og fjög­urra ann­arra þing­manna. Gunnar Bragi heyr­ist á upp­tök­unni ræða hrossa­kaup um skipan Árna Þórs Sig­urðs­sonar, fyrr­ver­andi þing­manns Vinstri grænna, og Geirs H. Haarde, fyrr­ver­andi for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem sendi­herra.

Á meðal þess sem Gunnar Bragi segir er: „Þegar ég ákvað það að skipa Geir H. Haarde sendi­herra í Washington […] þá ræddi ég við Sigurð Inga. Honum var ekki skemmt enda hafði hann ákært Geir. Ég ræddi þetta auð­vitað við alla flokka. Ég sá það að ég gæti ekki skipað Geir einn. Það yrði of þungur biti fyrir þingið og alla. Það sem ég gerði var að skipa Árna Þór (Sig­urðs­son) sem sendi­herra. Hann er nátt­úru­lega bara […], þó hann sé frændi minn. VG hefðu getað orðið brjál­aðir en Katrín sagði ekki orð. Ég átti fund með henni. Geir slapp í gegnum þetta eins og smjör á smokknum hjá honum þarna Friðriki Ómari.“

Síðar bætti Gunnar Bragi við: „Athyglin fór öll á Árna Þór. Annars hefði Vinstri Græna liðið orðið brjálað[...]Árni var nátt­úru­lega ekk­ert annað en sendi­tík Stein­gríms. Plottið mitt var að Geir yrði í skjól­inu hjá Árna og það virk­aði ekki bara 100 pró­sent heldur 170 pró­sent því að Árni fékk allan skít­inn. Svo sagði Geir við mig löngu seinna: „Þakka þér fyrir. Það var eng­inn sem gagn­rýndi mig.“ Ég lét Árna taka allan slag­inn.[...]Ég átti fund með Bjarna í fjár­mála­ráðu­neyt­inu. Ég sagði við Bjarna: „Það er algjör­lega sjálf­sagt. Auðvitað geri ég Geir að sendi­herra.“ Og ég sagði við hann: „Og mér finnst sann­gjarnt að þið horfið til svip­aðra hluta þegar ég þarf á því að halda.“ Það var ekki vegna þess að ég hafi verið að hugsa um að skipta um flokk. Ég var ekki kom­inn út þegar Þórólfur (Gíslason) hringir og spyr: „Ætlar þú að verða sendi­herra?“ Ég var ekki kom­inn út úr ráðu­neyt­inu.“

Í frétt RÚV segir að á upp­tök­unum heyr­ist Sig­mundur Davíð stað­festa þessa frá­sögn Gunnars Braga. Eftir að upp­tök­urnar voru gerðar opin­berar hafi þeir þver­tekið fyrir að sagan um lof­orðið hafi verið sönn. Bjarni Bene­dikts­son hafi jafn­framt neitað því að hafa veitt slíkt lof­orð og Guð­laugur Þór seg­ist ekki vita til þess að til stæði að gera Gunnar Braga að sendi­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár