Segir Sigmund Davíð vera á meðal þeirra sem þögðu

Þing­maður Mið­flokks­ins seg­ist gera grein­ar­mun á þeim sem töl­uðu á Klaust­urs­barnum og þeim sem þögðu án þess að grípa inn í níð­ingstalið. Hann telur for­mann flokks­ins vera á meðal þeirra sem þögðu.

Birgir Þór­ar­ins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, seg­ist gera grein­ar­mun á þeim þing­mönnum flokks­ins sem sögðu og þeim sem þögðu í klaust­urs­mál­inu. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, hafi verið á meðal þeirra sem þögðu.

[links]Hann hefði átt að grípa inn í tal hinna þing­manna flokks­ins, þeirra Gunnars Braga Sveins­sonar og Bergþórs Ólasonar, sem ræddu meðal ann­ars með kyn­ferð­is­legum og niðr­andi hætti um Lilju Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Þetta kom fram í máli Birgis í Silfrinu í dag.

Þar sagði Birgir að fram­ferði sex­menn­ing­anna sem voru á Klaustri 20. nóv­em­ber væri and­stætt kristi­legum gildum. Hann sagði að málið verði rætt á flokks­ráðs­fundi Mið­flokks­ins í jan­úar. Þeir þing­menn hans sem tóku þátt í sam­sæt­inu á Klaustri þurfi að gera það upp við sig hvort þeir segi af sér eða ekki eftir sam­tal við sína nán­ustu og gras­rót flokks­ins.

[adspot]Birgir gerir þó grein­ar­mun á þeim sem sögðu þá hluti sem fjöl­miðlar hafa greint ítar­lega frá á und­an­förnum og þeim sem þögðu, og gripu ekki inn í.

Enginn sagt af sér

Þing­menn­irnir sex sem ræddu saman á fund­inum á Klaustur bar, 20. nóv­em­ber, voru Sig­mundur Davíð, Berg­þór, Gunnar Bragi og Anna Kol­brún Árna­dótt­ir, allt þing­menn Mið­flokks­ins, og Karl Gauti Hjalta­son og Ólafur Ísleifs­son. Þeir tveir síð­ast­nefndu hafa verið reknir úr Flokki fólks­ins, og Berg­þór og Gunnar Bragi eru farnir í leyfi. Eng­inn þing­manna hefur sagt af sér, og eng­inn hefur það í hyggju.

Lilja Alfreðs­dóttir var í sam­ræð­unum meðal ann­ars kölluð „hel­vítis tík“ af Gunn­ari Braga Sveins­syni, og fleiri niðr­andi og kyn­ferð­is­leg orð féllu um hana. Aðrir þing­menn voru líka hæddir og níddir. Á meðal þeirra voru Albertína Frið­björg Elí­as­dóttir, Logi Ein­ars­son og Oddný Harð­ar­dóttir úr Sam­fylk­ingu og Silja Dögg Gunn­ars­dóttir úr Fram­sókn­ar­flokki. Þá gerði hóp­ur­inn grín að Freyju Har­alds­dóttur, fyrr­ver­andi vara­þing­manni og bar­áttu­konu fyrir auknum mann­rétt­indum fatl­aðra, sem þjá­ist að sjald­gæfum beina­sjúk­dómi. Anna Kolbrún kall­aði hana meðal ann­ars „Freyju Eyju“ og í kjöl­farið fram­kall­aði ein­hver úr hópnum hljóð sem hefur verið sagt vera sela­hljóð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár