Neita að vinna með velferðarnefnd á meðan að Anna Kolbrún situr áfram

Fræða­fólk við Rann­sókn­ar­setur Háskóla Íslands í fötl­un­ar­fræðum hefur sent for­seta Alþingis bréf vegna Klaust­ur­máls­ins. Þar kemur fram að fólkið ætli sér ekki að vinna með vel­ferð­ar­nefnd þings­ins á meðan að þing­maður Mið­flokks­ins situr þar áfram.

Anna Kolbrún Árnadóttir.
Anna Kolbrún Árna­dóttir. Mynd: Stjórnarráð Íslands

Fræða­fólk við Rann­sókn­ar­setur Háskóla Íslands í fötl­un­ar­fræðum segir að Klaust­urs­málið og ummæli þing­manna sem þar voru séu þeim „áfall og þung­bært að verða vitni að þeim nið­ur­lægj­andi og for­dóma­fullu ummælum sem þar voru við­höfð um fatlað fólk, einkum fatl­aðar konur sem við virðum mik­ils og eigum náið og gott sam­starf við í bar­áttu fyrir mann­rétt­indum og mann­virð­ingu fatl­aðs fólks.“

[links]Þetta kemur fram í bréfi sem fólkið sendi Stein­grími J. Sig­fús­syni, for­seta Alþingis, í gær.

Þar segir enn fremur að þeir „djúp­stæðu for­dómar, mann­fyr­ir­litn­ing, hroki og van­virð­ing sem þar birt­ast í garð fatl­aðs fólks og ann­arra jað­ar­setra hópa gerir það að verkum að við munum ekki taka þátt í sam­starfi við vel­ferð­ar­nefnd Alþingis á meðan að Anna Kolbrún Árna­dóttir á sæti í nefnd­inni.“

Undir bréfið skrifa Rannveig Trausta­dóttir, pró­fessor og for­stöðu­maður Rann­sókn­ar­set­urs­ins, Hann Björg Sig­ur­jóns­dóttir pró­fessor, James G. Rice lektor, Snæ­fríður Þóra Egilsson pró­fessor og Stefán C. Hardonk lektor. Afrit af bréfi þeirra var sent á alla full­trúa sem sæti eiga í vel­ferð­ar­nefnd.

[adspot]Rann­sókn­ar­setrið hefur haft umtals­verða aðkomu að störfum vel­ferð­ar­nefndar á und­an­förnum árum. Aðkoman felst aðal­lega í umsögnum um þings­á­lykt­un­ar­til­lögur, laga­frum­vörp, fram­kvæmda­á­ætl­anir og ýmis­legt fleira. Þá hafa full­trúar set­urs­ins margoft komið fyrir þing­nefndir.

Kallaði fatlaða konu „Freyju eyju“

Anna Kol­brún Árna­dótt­ir er starf­andi þing­flokks­for­maður Mið­flokks­ins og einn sex­menn­ing­anna sem var við­stödd niðr­andi sam­ræður um stjórn­mála­menn og annað nafn­greint fólk á Klaust­ur­bar þann 20. nóv­em­ber.

Á upp­­­tökum af drykkju­fundi þing­­mann­anna, sem til­­heyra Mið­­flokknum og Flokki fólks­ins, heyr­­ast þeir gera grín að Freyju Har­alds­dóttur, fyrr­ver­andi vara­þing­manni og þekktri bar­áttu­konu fyrir bættum mann­rétt­indum fatl­aðs fólks, sem þjá­ist af sjald­­­gæfum beina­­­sjúk­­­dómi. Anna Kol­brún kall­aði hana „Freyju eyju“ og Sig­­mundur Davíð Gunn­laugs­­son, for­­maður Mið­­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­­sæt­is­ráð­herra, gerði grín af því að tveir hinna mann­anna við borðið hefðu sér­­stakan áhuga á Freyju og nafn­­greindri þing­­konu Sam­­fylk­ing­­ar­inn­­ar. Ein­hver úr hópnum hermdi í kjöl­farið eftir sem hljómar eins og sels­hljóð.

Anna Kolbrún hefur þegar til­kynnt að hún ætli ekki að segja af sér þing­mennsku vegna máls­ins.

Stiklu úr við­tali við Freyju Har­alds­dóttur um málið í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut má sjá hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár