Mótmælir því að starfsmenn Alþingis séu dregnir inn í Klausturmálið

Skrif­stofu­stjóri Alþingis segir að ummæli Önnu Kol­brúnar Árna­dóttur um að starfs­menn Alþingis séu hluti af „sér­stökum kúltúr“ sem þrif­ist á vinnu­staðnum séu röng.

Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, sést hér með forseta Íslands.
Helgi Bern­ód­us­son, skrif­stofu­stjóri Alþingis, sést hér með for­seta Íslands. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Helgi Bern­ód­us­son, skrif­stofu­stjóri Alþingis, hafnar því í yfir­lýs­ingu að starfs­menn Alþingis séu hluta af því sem Anna Kolbrún Árna­dóttir, þing­maður Mið­flokks­ins, kall­aði mjög sér­stakan kúltur í við­tali á Bylgj­unni í gær­morgun.

Helgi mót­mælir ummælum hennar og því að starfs­menn Alþingis séu á einn eða annan hátt dregnir inn í þá umræðu sem orðið hefur í fjöl­miðlum um sam­töl nokk­urra þing­manna um sam­þings­menn sína og fleiri á veit­inga­húsi í nágrenni þings­ins.

„Þegar starfs­menn hefja störf á Alþingi er brýnt fyrir þeim að sýna hátt­vísi í hví­vetna og koma fram gagn­vart þing­mönnum og öðrum starfs­mönnum af virð­ingu og nær­gætni í orðum og allri fram­komu. Á þetta er jafn­framt minnt á starfs­manna­fundum skrif­stof­unnar. Ég man ekki til þess að undan starfs­mönnum hafi verið kvartað að þessu leyti. Starfs­menn skrif­stofu Alþingis leggja metnað sinn í að sinna störfum sínum af ein­lægni og fag­mennsku.

Ég harma þessi ummæli þing­manns­ins, því að þau eiga ekki við rök að styðj­ast, og vona að þau séu mælt í ógætni, enda fylgdu með þakk­lætis- og hrósyrði um starfs­menn­ina sem þakka ber.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár