Anna Kolbrún ætlar ekki að segja af sér þingmennsku

Þing­flokks­for­maður Mið­flokks­ins tekur undir orð Sig­mundar Davíðs um að sela­hljóðið hafi verið umhverf­is­hljóð. Segir for­dómana liggja hjá frétta­mann­inum sem skrif­aði fyrstu frétt­ina um hljóðið.

Anna Kolbrún Árnadóttir.
Anna Kolbrún Árna­dóttir. Mynd: Miðflokkurinn

Anna Kolbrún Árna­dóttir, þing­flokks­for­maður Mið­flokks­ins og einn sex­menn­ing­anna sem var við­stödd niðr­andi sam­ræður um stjórn­mála­menn og annað nafn­greint fólk fyrir rúmum tveimur vikum, ætlar ekki að segja af sér. Sam­ræð­urnar náð­ust á upp­töku. Þetta kemur fram í við­tali við hana í Morg­un­blað­inu í dag.

Þar segir Anna Kolbrún að hún geri sér grein fyrir því að hafa látið sam­töl mann­anna við borðið við­gang­ast. „En á sama tíma geri ég mér fulla grein fyr­ir því að það er ekki á mína ábyrgð að stoppa það þegar drukkn­ir menn tala. Ég hefði átt að fara fyrr en ég gerði. Það eru al­veg ótrú­lega mörg „Ég hefði“.

Hún seg­ist ekki hafa verið drukkin heldur hafi hún drukkið tvo bjóra á löngum tíma þetta kvöld. Anna Kolbrún seg­ist enn fremur hafa verið fyrst af þing­mönnum Mið­flokks­ins til að yfir­gefa Klaust­ur­bar­inn þetta kvöld. „Mér fannst of mik­ill ákafi í mönnum. Ég upp­lifði þetta þannig að ég hafi ítrekað reynt að skipta um umræðu­efni, án árang­urs. Ég reyndi að fara út í pæl­ingar um að við værum öll ólík og nefndi þar að stelpur væru oftar með talna­blindu og strákar oftar með les­blindu og því var snúið þannig af einum þeirra sem þarna var að þess vegna vissi kven­fólk ekki hvað það svæfi hjá mörgum. Ég benti líka á það í þessum sam­ræðum, þegar verið var að ræða útlit Írisar Róberts­dóttur [bæj­ar­stjóra í Vest­manna­eyjum], hvort þeir myndu tala svona um karl en þá var þaggað niður í mér. Á ég að nenna að fara út í svona rök­ræður við fólk sem er undir áhrifum áfengis? Ég get ekki tekið ábyrgð á ann­arra manna orðum.“

Anna Kolbrún seg­ist ekki hafa grátið jafn­mikið á ævi sinni og síð­ustu daga og að hún hafi til að mynda brostið í frá á þing­flokks­for­manna­fundi í gær.

Hún tekur undir skýr­ingar Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns flokks hennar, að umdeilt og ætlað sela­hljóð, sem hljóm­aði á upp­tök­unni þegar þing­menn­irnir voru að ræða Freyju Har­alds­dóttur, hefði verið umhverf­is­hljóð. For­dóm­arnir liggi ekki hjá þeim heldur frétta­mann­inum sem skrif­aði fyrstu frétt­ina um hljóðið.„Hverjum datt í hug að velta fyrir sér hug­tak­inu selur og tengja það við Freyju Har­alds­dóttur? Hvaða for­dómum býr sá yfir sem skrif­aði fyrstu frétt­ina um það?“ spyr hún. Kom þetta hljóð úr barka ein­hvers ykkar þing­mann­anna? „Nei, ég veit ekki til þess.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár