„Ógnvekjandi“ að fá fram staðfestingu á fordómum gagnvart fötluðum

Freyja Har­alds­dóttir segir að fötl­uðu fólki og aðstand­endum þess sé veru­lega brugðið vegna ummæla sem féllu í sam­tali sex þing­manna á Klaustur bar, 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

„Fötluðu fólki er mjög brugðið og það er hrætt. Þarna er stað­fest­ing á for­dómum, og það er ógn­vekj­andi,“ segir Freyja Har­alds­dóttir í við­tali við þátt­inn 21 á Hring­braut, sem er á dag­skrá í kvöld klukkan 21:00.

Í við­tal­inu ræðir hún hið svo­nefnda Klaust­ur­mál og segir það sé alvar­legt mál, að sjá for­dóma frá Alþing­is­mönnum koma fram með þeim hætti sem sam­töl sex þing­manna á Klaustur bar afhjúp­uðu. „Þetta fólk sem ákveður hvort við fáum aðstoð, hvernig líf­eyr­is­greiðslum til okkar er háttað, hvort tekið sé á aðgeng­is­málum. Þetta er fólkið sem er að líkja mér við sel og dauðan vegg,“ segir Freyja í við­tal­inu.

Hún bendir enn fremur á, að þó þetta eigi ekki við um alla þing­menn, þá sé þetta 1/10 hluti þing­manna, sem þarna var að ræða saman, og það sé hátt hlut­fall. 

Tveir þing­menn Mið­flokks­ins, Bergþór Ólason og Gunnar Bragi Sveins­son, hafa þegar farið í leyfi, vegna máls­ins, og Ólafur Ísleifs­son og Karl Gauti Hjalta­son hafa verið reknir úr Flokki fólks­ins. Auk þess­ara fjög­urra þing­manna voru Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og Anna Kolbrún Árna­dóttir, einnig í hópnum sem ræddi saman, meðal ann­ars með niðr­andi hætti um konur í stjórn­málum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár