Guðmundur Ingi telur að allir sex þingmennirnir eigi að segja af sér

Nýr þing­flokks­for­maður Flokks fólks­ins segir að allir sex þing­menn­irnir sem sátu að drykkju á Klaustri Bar eigi að segja af sér.

Guðmundur Ingi Kristinsson
Guð­mundur Ingi Krist­ins­son Mynd: Bára Huld Beck

Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, nýr þing­flokks­for­maður Flokks fólks­ins, segir að allir sex þing­menn­irnir sem sátu að drykkju á Klaustri Bar eigi að segja af sér. Þetta kemur fram í frétt RÚV í dag.

[links]Hann segir fram­komu þeirra og orða­val óásætt­an­lega og að hún verði ekki liðin. Guð­mundur Ingi segir að sér blöskri það hvernig Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, hafi komið fram við Freyju Har­alds­dóttur, fyrr­ver­andi vara­þing­mann Bjartrar fram­tíðar. Freyja skrif­ari pistil sem birt­ist á Kjarn­anum í gær­kvöldi þar sem hún lýsir sam­tali hennar og Sig­mundar.

Guð­mundur Ingi yfir­gaf fund vel­ferð­ar­nefndar Alþingis í morgun, sam­kvæmt frétt RÚV. Hann sagði að þar hefði mál­efni Mið­flokks­ins verið til umræðu og því hefði hann ekki talið sér stætt að taka þátt í þeim fundi.

Óásættanleg framkoma

„Það eru mikil verk­efni framundan og það verður úr mörgu að spila til að koma hlut­unum í lag aftur. Við verðum að fara öll að horfa í eigin barm, sér­stak­lega þeir menn sem hafa hagað sér svona, þeir varða að fara að taka sig til og segja af sér,“ segir Guð­mundur Ingi í sam­tali við RÚV.

„Það er held ég eina lend­ingin. Þetta er alveg ótrú­legt sem er að koma þarna fram, og alltaf að koma meira og meira. Það sem mér blöskrar lang­mest er hvernig þeir koma fram við fatl­aða ein­stak­linga, og þetta nýjasta dæmi með Sigmund Davíð og hvernig hann kemur fram við Freyju. Þetta er óásætt­an­legt. Við getum ekki liðið þetta,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár