Alþingismenn fá hærri persónuuppbót

Per­sónu­upp­bót þing­manna er 181 þús­und krónur, sem er 44 þús­und krónum hærri en upp­bót félags­manna VR. Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir að alþing­is­menn ættu að sjá sóma sinn í að hætta sjálftöku og gera eitt­hvað fyrir þá sem standa höllum fæti.

Alþing­is­menn fá hærri per­sónu­upp­bót en félags­menn VR og Eflingar, eða um 180 þús­und krónur. Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir að hann hefði viljað sjá þessu öðru­vísi farið í við­tali í Morg­un­út­varpi Rásar 2 í morgun. Des­em­ber­upp­bót hans félags­manna eru 89 þús­und krónur fyrir fullt starf og 48.000 krónur í orlofs­upp­bót eða sam­tals 139.000 krónur. Þingmenn fá 181.050 í per­sónu­upp­bót sem er orlofs- og des­em­ber­upp­bót sláð saman í eina tölu.

„Ég held að ríkið ætti að sjá sóma sinn í því að hætta þess­ari sjálftöku ef svo má kalla það. Þó að það sé búið að leggja niður kjara­ráð þá er komin hyl­djúp gjá á milli vinnu­mark­að­ar­ins og Alþingis vegna ákvarð­ana kjara­ráðs. Þetta er ekki til að hjálpa stöð­unni,“ segir Ragnar Þór.[adspot]

„Þetta er í rauninni alveg fáránlegt“

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, birti launa­seðil sinn á Facebook í gær þar sem hann vakti athygli á des­em­ber­upp­bót þing­anna. Í við­tali við DV segir Björn upp­bót­ina allt of háa. „Ég átta mig ekki á því hvernig þetta er reiknað út. Þetta er í raun­inni alveg fárán­legt.“

Samkvæmt frétt DV virð­ist ekki hægt að nálg­ast upp­lýs­ingar um hvernig des­em­ber­upp­bót þing­manna er reiknuð á net­inu. Á vef­síðu kjara­ráðs er vísað til sér­stakrar und­ir­síðu á vef Alþingis um þessi kjör en sú síða liggur niðri. Ragnar Þór segir að ef þetta er eitt­hvað sem kjara­ráð hefur ákveðið þá er örugg­lega erfitt að kom­ast til botns í því og fá rök fyrir því af hverju þessar greiðslur eru svona háar. „Okkur hefur til dæmis ekki enn tek­ist að fá skýr­ingar á til dæmis hækk­unum kjara­ráðs til æðstu emb­ætt­is­manna rík­is­ins,“ segir Ragnar Þór í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2.

„Des­em­ber­upp­bótin er per­sónu­upp­bót og á því ekki vera neitt hlut­fall af launum eða vera í sam­ræmi við hvort laun eru há eða lág,“ segir Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Samkvæmt launa­seðli hans er des­em­ber­upp­bótin, eða það sem stundum er kallað jóla­bónus, 181.050 krónur.

Kjararáð hefur verið lagt niður

Ákvarð­anir um launa­kjör þing­manna voru teknar af Kjara­ráði sem nú hefur verið lagt niður og hlut­verk þess fært inn í fjár­mála­ráðu­neytið. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra lagði fram frum­varp í síð­ustu viku um að laun kjör­inna full­trúa verði bundin í lög og end­ur­skoðuð einu sinni á ári. 

„Það breytir ekki þess­ari stöðu sem er komin upp. Skaðinn er skeður. Að leggja niður kjara­ráð og ætla síðan að fara að reikna þetta eitt­hvað öðru­vísi hér eftir, það breytir ekki eða brúar ekki þá gjá sem er á milli og hefur dýpkað ef eitt­hvað er á milli vinnu­mark­að­ar­ins og stjórn­mál­anna,“ bætir Ragnar við við­tal­inu á Rás 2.

Aðspurður segir hann að þessi des­em­ber­upp­bót þing­manna eigi ekki eftir að hjálpa í kom­andi kjara­við­ræðum.

Hann bendir á að elli­líf­eyr­is­þegar og öryrkjar „skrapa algjör­lega botn­inn“ þegar að það kemur að upp­bótum og greiðslum í jóla­mán­uð­inum en hann segir þetta einmitt hópana sem geta átt sér­stak­lega erfitt á þessum tíma árs. Því skorar hann að lokum á stjórn­mála­menn að gera eitt­hvað fyrir þá sem standa höllum fæti fyrir þessi jól. Ragnar bendir á að þing­menn gætu jafn­vel notað sína eigin des­em­ber­upp­bót í það.

Athuga­semd blaða­manns: Frétt­inni var breytt vegna nýrra upp­lýs­ingu um per­sónu­upp­bót þing­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verkalýðsbarátta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár