Varaði við því að Inga Sæland myndi láta „einhverja öryrkja“ leiða í öllum kjördæmum

Þing­maður Mið­flokks­ins var­aði við því að „Guggan getur tekið upp á því að setja saman upp­still­ing­ar­nefnd. Setja bara inn ein­hverja öryrkja í fyrsta sæti í hverju kjör­dæmi fyrir sig,“ og átti þar við Ingu Sæland.

Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins, sagði á drykkju­fundi með sam­flokks­fólki sínu og tveimur þing­mönnum Flokks fólks­ins, sem verið var að reyna að sann­færa um að ganga til liðs við Mið­flokk­inn, að Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, gæti sett „bara inn ein­hverja öryrkja í fyrsta sæti í hverju kjör­dæmi fyrir sig,“ í næstu kosn­ingum.

Þetta kemur fram í frétta­skýr­ingu Kvenna­blaðs­ins um það sem fram kemur á upp­töku af drykkju­fundi sex þing­manna á Klaust­ur­barnum þriðju­dag­inn 20. nóv­em­ber. Þar kemur skýrt fram að við­staddir þing­menn Mið­flokks­ins leggja hart að Ólafi Ísleifs­syni og Karli Gauta Hjalta­syni, að ganga til liðs við sig í stað þess að fylgja Ingu Sæland áfram. Bergþór segir um Ingu að „Guggan getur tekið upp á því að setja saman upp­still­ing­ar­nefnd. Setja bara inn ein­hverja öryrkja í fyrsta sæti í hverju kjör­dæmi fyrir sig. Ef hún vill halda flokknum uppi með 7–9% fylgi fyrir næstu kosn­ingar þá er hún bara ekki viti­born­ari en það að hún telur þetta fast í hendi. Ég vil bara ítreka það að ykkur verður í engu umb­unað fyrir að … hún heldur að hún eigi þetta.“

Sagður hafa misst vatn við að hitta Obama

Gunnar Bragi Sveins­son, vara­for­maður Mið­flokks­ins, segir í kjöl­farið að honum finn­ist þetta rosa­lega flokk grein­ing „því þú greindir um leið ákveðna hluti í Fram­sókn­ar­flokknum, þegar við vorum þar. Þegar Sigurður Ingi og co. ákváðu það að fara gegn for­manni flokks­ins, þá voru þeir búnir að … að þeir gætu bara tekið flokk­inn, þetta væri bara Shangri-la. Þeir gleyma hins vegar, Sigurður Ingi, aka Sæland, Sigurður Sæland, hann fatt­aði bara ekki að hann hefur ekki það lím, og hann hefur ekki það … sem þarf til að halda svona hlutum …“

Gunnar Bragi heldur áfram að atyrða Sigurð Inga Jóhanns­son, for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem sigr­aði Sigmund Davíð Gunn­laugs­son, núver­andi for­mann Mið­flokks­ins, í for­manns­kjöri haustið 2016. Gunnar Bragi segir að „þegar Sigurður Ingi var búinn að fara til Washington, sitja mat­ar­boð hjá Obama – það var bara eins og hann hefði misst vatn.“

Sig­mundur Davíð tekur við og segir að Sigurður Ingi hafi sest „við nafn­spjaldið mitt á borð­inu. Hann varð aldrei sami maður aftur. Eins og nágrannar hans í sveit­inni hans sögðu: þegar þau hjón komu til baka frá Washington, þau bara þekktu þau ekki.“

Gunnar Bragi heldur áfram og bendir á að Sig­mundur Davíð hefði líka hitt Obama „og þú varst nú ekki einu sinni í sam­stæðum skóm!“

„Ekki komin í pólitík til þess að sitja í hjólastólnum sínum“

Í frá­sögn Kvenna­blaðs­ins er einnig greint frá því þegar Gunnar Bragi ræður um Þuríði Hörpu Sig­urð­ar­dóttur, for­mann Öryrkja­banda­lags Íslands.

Hann seg­ist þekkja hana mjög vel. „Við erum sam­sveit­ungar. Hún er búin að gera aug­lýs­ingar og teikna fyrir mig í mörg ár. Ofboðs­lega góð kona. Hrika­lega frek. Hvar haldið þið að hún verði í fram­boði á næsta ári? Hún verður ekki í fram­boði í Vest­ur­kjör­dæmi. Hvar haldið þið að Þuríður Harpa verði í fram­boði næst? Hún verður í fram­boði þar sem er mögu­leiki að ná inn manni[...] Hún er ekki komin í póli­tík til þess að sitja í hjóla­stólnum sínum og ríf­ast ein­hvers staðar úti á kanti. Hún er komin í póli­tík til að vera inni á þingi. Ég get lofað ykkur því, hún verður í fram­boði í efsta sæti ein­hvers staðar. Þá spyr maður, sjálfan sig og aðra: hver verður fyrri til, til að grípa hana? Verður það Flokkur fólks­ins, Sam­fylk­ingin? VG? … Ég held ég þekki hana það vel, hún er nú ekki algalin, hún Harpa. Hún mun fara með Ingu eða hún mun fara með VG.“

Ánægður með að Sigmundur Davíð húðskammaði sig

Í Kvenna­blað­inu er einnig rakin frá­sögn Gunnars Braga af því þegar Sig­mundur Davíð, þá for­sæt­is­ráð­herra, hafi húð­skammað hann á rík­is­stjórn­ar­fundi, og hvernig Gunnari Braga hafi líkað það vel. „Við tveir erum búnir að vinna saman síðan 2009, 2010. Ég kaus hann ekki sem for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins og ég sé eftir því, það mun elta mig alla ævi. Og ég held að Sig­mundur sé, eini mað­ur­inn sem hann hefur skammað fyrir framan heila rík­is­stjórn, það er ég. Hann hund­skamm­aði mig fyrir framan rík­is­stjórn­ina. Ég var svo glaður, ég var svo ánægður með að hann skyldi sýna þessum fávitum í rík­is­stjórn­inni að honum er bara ekk­ert sama hvernig maður hegðar sér og vinna. Hann grill­aði mig fyrir framan alla hina ráð­herrana. Ég kom til hans dag­inn eftir, eftir rík­is­stjórn­ar­fund­inn (og sagði): frá­bært, gerðu þetta aftur! Taktu hina fyrir líka! Hann hélt ég væri geð­veikur, sko.“

Gunnar Bragi segir að þetta hafi snú­ist um að Gunnar Bragi hafi skorað Sigmund Davíð á hólm með mál í rík­is­stjórn­inni. „Hann tók það og pakk­aði því saman. Það er nefni­lega það, að ef þú vilt að ein­hver taki mark á stjórn­inni þá þarftu að standa fyrir eitt­hvað.“ Í kjöl­farið gera Sig­mundur Davíð og Gunnar Bragi grín að Páli Magn­ús­syni, sem bauð sig fram til for­manns gegn Sigmundi Davíð árið 2009 ásamt Höskuldi Þór­halls­syni. „Páll gæti ekki stýrt hús­fé­lagi,“ sagði Sig­mundur Davíð og Gunnar Bragi bætti við: „Páll Magn­ús­son, hann gæti ekki einu sinni stýrt umferð­ar­ljósum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár