Atvinnuleysi kvenna ekki verið hærra í þrjú ár

Í októ­ber 2018 voru 4600 konur atvinnu­lausar en ekki hafa fleiri konur verið atvinnu­lausar í einum mán­uði síð­ustu þrjú ár. Nokkur munur er á milli kynj­anna en hann hefur ekki verið meiri í rúm þrjú ár.

Mun fleiri konur en karlar voru án atvinnu á Íslandi í októ­ber síð­ast­liðnum. Þá voru 4600 konur atvinnu­lausar en aðeins 1600 karlar, sam­kvæmt vinnu­mark­aðs­rann­sókn Hagstofu Íslands. Ekki hafa svo margar konur verið atvinnu­lausar í einum mán­uði síð­ustu þrjú ár eða síðan í sept­em­ber árið 2015 eða um 4,6 pró­sent kvenna. Tekið er þó fram á vef Hag­stof­unnar að íslenskur vinnu­mark­aður sveiflist reglu­lega milli mán­aða vegna árs­tíða­bund­inna þátta.

2,9 prósent atvinnuleysi í október

Í októ­ber var aðeins 2,9 pró­sent atvinnu­leysi á Íslandi, 1,3 pró­sent karla og 4,6 pró­sent kvenna. Áætlað er að 204.700 manns á aldr­inum 16 til 74 ára hafi að jafn­aði verið á vinnu­mark­aði í októ­ber síð­ast­liðnum en það jafn­gildir 81,2 atvinnu­þátt­töku. Í heild­ina voru 6000 manns án vinnu og í atvinnu­leit í októ­ber, 4600 konur og 1400 karlar.

Atvinnu­lausir í októ­ber þetta árið mæld­ust 1.400 færri en í sama mán­uði árið 2017 þegar þeir voru 7.400 eða 3,7 pró­sent af vinnu­afl­inu. Samkvæmt árs­tíða­leið­rétt­ing­unni voru atvinnu­lausir 6.400 í októ­ber eða 3,1 pró­sent, sem er aukn­ing um 1,3 pró­sentu­stig síðan í sept­em­ber.

Atvinnuleysi sveiflukennt

Atvinnu­leysi er mjög sveiflu­kennt á milli mán­aða en atvinnu­leysi á Íslandi hefur nán­ast farið stöðugt lækk­andi eftir að það náði hámarki árin eftir hrun. Atvinnu­leysi kynj­anna hefur fylgst nokkuð að frá árinu 2014. Þó getur oft verið tals­verður munur á milli kynj­anna á milli mán­aða en í októ­ber á þessu ári var 3,5 pró­senta munur á atvinnu­leysi eftir kyni. Ef rýnt er í tölur Hag­stof­unnar kemur í ljós að ekki hefur verið svo mik­ill munur á milli kynj­anna í rúm þrjú ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnuleysi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár