Hvernig var neyðarlánið veitt og hvernig var því eytt?

Seðla­bank­inn fór ekki eftir eigin banka­stjórn­ar­sam­þykkt við veit­ingu neyð­ar­láns­ins og engin lána­beiðni frá Kaup­þingi er til í bank­anum. Sama dag og neyð­ar­lánið var veitt fékk félagið Linsdor 171 milljón evra að lán frá Kaup­þingi.

Í bók­inni Kaupt­hink­ing: Bankinn sem átti sig sjálfur er aðdrag­and­inn að veit­ingu 500 milljón evra neyð­ar­láns Seðla­banka Íslands til Kaup­þings rak­inn ítar­lega og ýmsar áður óbirtar upp­lýs­ingar birtar um þann aðdrag­anda. Þar eru einnig nýjar upp­lýs­ingar um hvernig neyð­ar­lán­inu var ráð­stafað.

[links]Á meðal þess sem þar er greint frá er að þann 21. apríl 2008 var sam­þykkt sér­stök banka­stjórn­ar­sam­þykkt, nr. 1167, um hver við­brögð Seðla­banka Íslands við lausa­fjár­vanda banka ætti að vera. Í regl­unum var sér­stak­lega kveðið á um að skipa ætti starfs­hóp innan bank­ans til að takast á við slíkar aðstæður og gilda ætti ákveðið verk­lag ef aðstæður sem köll­uðu á þraut­ar­vara­lán kæmu upp. Verk­lag­inu var skipt í alls sex þætti. Í sam­þykkt­inni var líka fjallað um við hvaða skil­yrði lán til þraut­ar­vara kæmu til greina og í henni var settur fram ákveð­inn gát­listi vegna mögu­legra aðgerða Seðla­bank­ans við slíkar aðstæður.

[links]Þegar Kaupþing fékk 500 millj­ónir evra lán­aðar 6. októ­ber 2008, sama dag og neyð­ar­lög voru sett á Íslandi, var ekki farið eftir þeirri banka­stjórn­ar­sam­þykkt. Þá er ekki til nein lána­beiðni frá Kaup­þingi í Seðla­bank­anum og fyrir liggur að Kaup­þingi var frjálst að ráð­stafa lán­inu að vild.

Lánaði 171 milljón til Lindsor

Þann 6. októ­ber 2008, þegar Seðla­banki Íslands veitti Kaup­þingi neyð­ar­lán upp á 500 millj­ónir evra, veitti Kaupþing félag­inu Lindsor, sem stýrt var af stjórn­endum bank­ans, 171 milljón evra lán til 25 daga. Engar trygg­ingar voru settar fram fyrir lán­inu. Skjöl sýna að við rann­sókn máls­ins hafi Fjár­mála­eft­ir­litið metið það svo að til­gang­ur­inn með lán­inu hafi ekki verið að lána fjár­mun­ina til sér­stakra nota, heldur til að gefa Lindsor svig­rúm til að nota fjár­mun­ina þegar því hent­aði. Lána­nefnd Kaup­þings veitti ekki sam­þykki fyrir lán­inu og hvergi er minnst á Lindsor í fund­ar­gerðum hjá lána­nefnd Kaup­þings fyrir árið 2008.

Sama dag og Lindsor fékk 171 milljón evra að láni hjá Kaup­þingi keypti félagið skulda­bréf útgefin af Kaup­þingi upp á 84 millj­ónir evra og 95,1 milljón dala ásamt skulda­bréfum útgefnum af Kaup­þingi í japönskum jenum og krónum sem metin voru á 15,2 millj­ónir evra. Sé miðað við skráð gengi 16. októ­ber 2008, þegar Lindsor skipti evru í aðra gjald­miðla til að jafna hjá sér bók­haldið, var upp­hæðin sem notuð var til kaupa á bréf­unum 170,1 milljón evra, eða nán­ast sama upp­hæð og Kaupþing hafði lánað Lindsor. Selj­and­inn var dótt­ur­bank­inn í Lúx­em­borg sem keypt hafði þorra við­kom­andi bréfa sama dag af fjórum starfs­mönnum sínum, eigin safni bank­ans og félagið Marple, sem skráð var í eigu Skúla Þor­valds­sonar. Hann segir félag­inu þó ætið hafa verið stjórnað af Kaup­þingi og að hann hafi ekki haft vit­neskju um hvað átti sér stað innan þess.

Bjargað frá tapi

Í bréfi sem Fjár­mála­eft­ir­litið á Íslandi sendi fjár­mála­eft­ir­lit­inu í Lúx­em­borg 22. jan­úar 2010 var óskað eftir því að Lindsor-málið svo­kall­aða yrði rann­sakað þar í landi. Í bréf­inu er rakið að í ágúst 2008 hafi áður­nefndir fjórir starfs­menn Kaup­þings í Lúx­em­borg keypt skulda­bréf útgefin af Kaup­þingi með afslætti.

Einn þeirra seldi bréfin til baka þremur dögum fyrir neyð­ar­laga­setn­ingu en hinir seldu þau á tíma­bil­inu 6-8. októ­ber 2008. Kaup­and­inn var Kaupþing í Lúx­em­borg sem áfram­seldi þau svo til Lindsor, sem not­aði fjár­muni frá Kaup­þingi á Íslandi til að kaupa bréfin, sem þá voru orðin verð­lítil.

Sölur fjór­menn­ing­anna voru að mati Fjár­mála­eft­ir­lits­ins fram­kvæmdar til að bjarga þeim frá því að hafa þurft að taka á sig mikið tap vegna skulda­bréfa­kaupa sem þau höfðu tekið lán til að kaupa. Í bréf­inu frá jan­úar 2010 segir enn fremur að við­skiptin hafi virst vera leið til að koma við­bót­ar­fjár­magni frá Kaup­þingi í Lúx­em­borg til þess­ara starfs­manna. Þar er Lindsor lýst sem „rusla­tunnu“ (e. rubb­ish bin) sem hafi verið sett upp til að koma í veg fyrir að Kaupþing í Lúx­em­borg og tengdir aðilar þyrftu að taka á sig tap vegna fjár­fest­inga sem þeir hefðu ráð­ist í.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hrun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár