Þverpólitískur vilji til að bæta réttindi hinsegin fólks

Í nýrri þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um stöðu trans fólks og inter­sex fólks er lagt til að Ísland taki for­ystu meðal þjóða heims þegar við kemur rétt­indum trans­fólks og inter­sex fólks en Ísland er 16. sæti í Evrópu þegar að kemur að rétt­indum hinsegin fólks.

Transfánanum haldið á lofti
Trans­fán­anum haldið á lofti Mynd: EPA

Í nýrri þings­á­lykt­un­ar­til­laga um stöðu trans fólks og inter­sex fólks er lagt til að Ísland taki for­ustu meðal þjóða heims þegar við kemur mann­rétt­indum trans fólks og inter­sex fólks og sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétti ein­stak­linga til að skil­greina kyn sitt. Í til­lög­unni er einnig lagt til að Alþingi for­dæmi þá aðför sem nú er gerð að rétt­indum trans­fólk víða um heim. Tillagan var lögð fram af Margréti Tryggva­dóttur, vara­þing­manni Sam­fylk­ingar og ell­efu öðrum úr þing­flokkum Sam­fylk­ing­ar­innar, Viðreisn og Pírata.

Í grein­ar­gerð­inni er fjallað um hvernig rétt­inda­staða trans­fólks og inter­sex-fólks hefur batnað á síð­ustu árum en að enn sé langt í land. Í þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni segir: „Sagan kennir okkur að fyrir öllum rétt­indum þarf að berj­ast. Víða um heim eru mann­rétt­indi trans­fólks enn fótum troðin og hér á Íslandi mætti staðan svo sann­ar­lega vera betri þótt ýmis­legt hafi áunn­ist á síð­ustu árum. Mik­il­vægt er að standa vörð um þann árangur sem þegar hefur náðst og halda bar­átt­unni áfram, innan lands sem utan.“

Ísland langt á eftir nágrannalöndum sínum

Ísland er í 16. sæti á hinu svo­kall­aða regn­boga­korti sem Evr­ópu­sam­tök hinsegin fólks (e. ILGA-Europe) gefa út árlega um rétt­indi hinsegin fólks. Ísland hefur dreg­ist aftur úr en landið var í 14. sæti árið 2016. Ísland mælist nú með 52 pró­sent þegar að það kemur að rétt­indum hinsegin fólks hér á landi og erum við langt á eftir öllum nágranna­löndum okkar. Landið sem stendur sig best er Malta með 91 pró­sent en þar í landi voru lög um rétt­indi trans­fólks og inter­sex-fólks sam­þykkt árið 2015.

Dregist aftur úr þegar kemur að lagasetningu

Í skýrslu ILGA um stöðu hinsegin fólks í Evrópu kemur fram að þó Íslandi mælist lægst allra í for­dómum gagn­vart hinsegin fólki sam­kvæmd OECD þá hefur Ísland hins vegar dreg­ist aftur úr þegar það kemur að laga­setn­ingu. Í skýrsl­unni segir að mik­il­vægt sé að upp­færa núver­andi lag­ara­mmma um kyn­rænt sjálf­ræði og banna lík­am­leg inn­grip hjá inter­sex börnum nema lífs­nauð­syn­legt þykja, í stað þess sé barni kleift að taka ákvörð­un­ina sjálft seinna. Í skýrsl­unni kemur einnig fram að upp­færa þurfi lög um við­kvæma stöðu hinsegin fólks í leit að hæli.

María Helga Guð­munds­dóttir, for­maður Sam­tak­anna ‘78, segir í sam­tali við Kjarnann að ekk­ert komi fram í íslenskum útlend­inga­lögum um við­kvæma stöðu hinsegin fólks sem sækir hér um alþjóð­lega vernd. María Helga segir að ekki sé til nein eig­in­leg stefna stjórn­valda á þessu sviði og mik­il­vægt sé að breyta því. Hún segir að sam­tökin hafi verið von­svikin þegar staða hinsegin fólks var ekki tekin fyrir í nýjum lögum um útlend­inga sem sam­þykkt voru árið 2016.

Ásamt því er á bent á í skýrsl­unni að engin laga­flokkur sé til staðar á Íslandi um hat­urs­glæpi. María segir vanti umgjörð og refsiramma um hat­urs­glæpi hér á landi því raunin sé sú að hat­urs­glæpir gegn hinsegin fólki séu framdir hér á landi. Þar sem skortur er á laga­legri skil­grein­ingu á hat­urs­glæpum hér á landi þá séu þeir flokk­aðir eins og aðrir ofbeld­is­glæpir, þrátt fyrir að ákveðnir glæpir séu í raun framdir vegna hat­urs á jað­ar­settum hópum.

Í grein­ar­gerð þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar segir að þessi staða Íslands varð­andi rétt­indi trans­fólks verði ekki við unað og gera verði gang­skör að því að tryggja rétt­indi trans­fólks og inter­sex fólks hér á landi í hví­vetna.[adspot]

Þverpólitísk sátt um kynrænt sjálfræði

Katrín Jak­obs­dótt­ir ­for­sæt­is­ráð­herra hefur ítrekað sagt að rétt­inda­bar­áttu hinsegin fólks sé ofar­lega á for­gangs­lista núver­andi rík­is­stjórn­ar. Í stjórn­ar­sátt­máli rík­is­stjórn­ar­innar kemur fram að rík­is­stjórnin vilji koma Íslandi í fremstu röð í mál­efnum hinsegin fólks með metn­að­ar­fullri lög­gjöf um kyn­rænt sjálf­ræði í sam­ræmi við nýút­komin til­mæli Evr­ópu­ráðs­ins vegna mann­rétt­inda inter­sex fólks. Í þeim lögum yrði kveðið á um að ein­stak­lingar megi sjálfir ákveða kyn sitt, kyn­vit­und þeirra njóti við­ur­kenn­ingar, ein­stak­lingar njóti lík­am­legrar frið­helgi og jafn­réttis fyrir lögum óháð kyn­hneigð, kyn­vit­und, kynein­kennum og kyntján­ingu.

Í grein­ar­gerð fyrr­nefndar þings­á­lykt­un­ar­til­lögu er fjallað um fyr­ir­hugað frum­varp félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra um kyn­rænt sjálf­ræði. Samkvæmt þing­mála­skrá 149. lög­gjaf­ar­þings er gert ráð fyrir að frum­varpið verði lagt fram í febr­úar á næsta ári.

María Helga segir að umrædd þings­á­lykt­un­ar­til­laga sýnir að þverpóli­tísk sátt sé um þetta mál­efni. Samtökin ‘78 fagna frum­kvæði og stuðn­ingi þess­ara tólf þing­manna, sem öll til­heyra stjórn­ar­and­stöðu­flokkum. Nú þegar hefur rík­is­stjórnin skuld­bundið sig til að bæta stöðu Íslands varð­andi rétt­indi trans og inter­sex fólks, segir María.

Stjórnvöld viðurkenni líffræðilegan fjölbreytileika einstaklinga

Samtökin ‘78 hafa verið hluti af und­ir­bún­ings­ferli frum­varps­ins sem félags­sam­tök sem málið varðar og María Helga segir nýja þings­á­lykt­un­ar­til­lögu gefa fyr­ir­heit um póli­tískur vilji sé fyrir því að fyr­ir­hugað frum­varp um kyn­rænt sjálf­ræði verði sam­þykkt á næsta ári.


Í fyr­ir­hug­uðu frum­varpi er réttur ein­stak­linga til að skil­greina kyn sitt færður frá stjórn­völdum til ein­stak­linga. Samkvæmt núgild­andi lögum má ein­stak­lingur ekki breyta skráðu kyni sínu í Þjóðskrá fyrr en hann hefur verið undir hand­leiðslu teymis á Land­spít­al­anum í minnst gegnum 18 mán­uði. Það þykir óþarf­lega íþyngj­andi fyrir fólk þar sem það getur verið búið að lifa í fleiri ár í sam­ræmi við kyn­vit­und sína en er enn með skil­ríki með nafni og kyn­skrán­ingu sem gengur þvert á þeirra sjálfs­mynd og dag­legan veru­leika. Þetta getur gert fólki erfitt að ferð­ast úr landi, nýta sér ýmsa þjón­ustu og taka fullan þátt í sam­fé­lag­inu.

Í frum­varp­inu verða einnig tekin fyrir rétt­indi inter­sex fólks, en á Íslandi er eng­inn lag­ara­mmi sem skil­greinir rétt inter­sex fólks til lík­am­legrar frið­helgi. Í stjórn­ar­sátt­mál­anum kemur fram að mik­il­vægt sé að lög­gjöfin um kyn­rænt sjálf­ræði sé í sam­ræmi við nýút­komin til­mæli Evr­ópu­ráðs­ins um mann­rétt­indi inter­sex fólks.

„Það þarf að tryggja það að sam­fé­lagið og stjórn­völd við­ur­kenni líf­fræði­legan fjöl­breyti­leika ein­stak­linga og taki til­lit til hans,“ segir María Helga.

Fordæma aðgerðir Trumps

Í þingá­lykt­unn­ar­til­lög­unni eru fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar á skil­grein­ingu á kyni í Banda­ríkj­unum for­dæmdar. Rík­is­stjórn Don­alds Trumps er nú með til skoð­unar að taka til baka ýmsar breyt­ingar á rétt­indum þeirra sem vilja skil­greina kyn sitt öðru­vísi en eftir líf­fræði­legu kyni. Ef af breyt­ing­unni verður mun hún hafa víð­tæk áhrif á fjölda manns en talið er að um ein og hálf milljón Banda­ríkja­manna kjósi að skil­greina sig sem annað kyn en líf­fræði­legt kyn þeirra gefur til kynna.

[links]Í grein­ar­gerð­inni er aðförin sögð veru­legt bakslag í rétt­inda­bar­áttu trans og inter­sex fólks um heim allan og sett hættu­legt for­dæmi. Sagt er þetta sé aðför að grund­vall­ar­mann­rétt­indum trans fólks en breyt­ing­arnar muni auk þess leiða til auk­inna for­dóma og jað­ar­setn­ingar trans­fólks og hefta veru­lega aðgengi þess að þjón­ustu og jafn­framt þátt­töku trans fólks í sam­fé­lag­inu

Samtökin ‘78 hafa einnig for­dæmt aðgerð­ina í til­kynn­ingu frá félag­inu, auk þess að sam­tökin fund­uðu með banda­ríska sendi­ráð­inu, sem lof­aði að koma áhyggjum þeirra áleiðis. María fagnar því að í þingá­lykt­un­ar­til­lög­unni sé lagt til að Alþingi for­dæmi þessar fyr­ir­hug­aðar aðgerðir Banda­ríkja­stjórnar. Hún óskar jafn­framt eftir því að Alþingi og rík­is­stjórnin sendi þau skila­boð að þau for­dæmi þessa aðför að rétt­indum trans og inter­sex fólks og taki afstöðu gegn því að vold­ugt vest­rænt ríki sem hreykir sér af vernd frelsis og mann­rétt­inda skuli ekki virða rétt­indi jað­ar­settra hópa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hinsegin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár