Pólsk stjórnvöld verði að snúa þróuninni við og styðja hinsegin fólk

Yfirvöld í Póllandi verða að láta af skað­legri orð­ræðu gegn hinsegin fólki og vernda það gegn hatri og mis­munun. Þetta er nið­ur­staða skýrslu Amnesty International um aðför­ina að hinsegin fólki í Póllandi sem staðið hefur yfir síð­ast­liðin fimm ár.

Hinsegin fólk er sagt fá litla vernd frá lögreglu er það mótmælir og verði jafnvel fyrir harkalegum aðgerðum lögregluyfirvalda.
Hinsegin fólk er sagt fá litla vernd frá lög­reglu er það mót­mælir og verði jafn­vel fyrir harka­legum aðgerðum lög­reglu­yf­ir­valda. Mynd: EPA

Samkvæmt nýrri skýrslu Amnesty International hafa pólsk yfir­völd gert sam­fé­lag hinsegin fólks að skot­spóni með orð­ræðu sinni og gert hvers kyns mót­mæli hinsegin fólks og banda­manna þeirra nærri ómögu­leg.

Í skýrsl­unni segir meðal ann­ars að sund­ur­lausar hömlur hafi verið settar á mót­mæli hinsegin fólks, sem geri skipu­lagn­ingu þeirra og leyf­is­veit­ingu flókna. Þegar mót­mæli eigi sér stað fái mót­mæl­endur úr hópi hinsegin fólks og banda­manna þeirra oftar en ekki litla sem enga vernd frá árásum hómó­fó­bískra and­mót­mæl­enda, sem telj­ast heldur ekki til hat­urs­glæpa sam­kvæmd pólskum lögum. Í verstu til­fellum séu jafn­vel hart tekið á mót­mæl­endum af hálfu lög­reglu­yf­ir­valda.

Anna Błaszczak-Banasiak, yfir­maður Amnesty í Póllandi, segir pólsk yfir­völd alger­lega hafa brugð­ist hinsegin sam­fé­lag­inu í land­inu. Með því að tak­marka rétt þeirra til mann­rétt­inda hafi þau skapað and­rúms­loft ótta.

Skýrslan tekur til síð­ast­lið­inna fimm ára, en þar er ástandið sagt hafa versnað til muna árið 2019 þegar mikil aukn­ing varð á skað­legri orð­ræðu gegn hinsegin fólki, meðal ann­ars frá hátt­settum emb­ætt­is­mönnum, auk þess sem fjöldi sveit­ar­fé­laga yfir­lýstu sig svokölluð „hinseg­in­laus svæði“ (e. LGBTI-free zones).

Fordómar fái að standa óáreittir

Fjöldi fólks sem hefur barist gegn þess­ari aft­ur­för og fyrir auknum rétt­indum hinsegin fólks hefur svo verið dregið fyrir dóm með til­heyr­andi kostn­aði og umfangi, sem gerir þeim mun erf­ið­ara með að halda áfram bar­áttu sinni. Á meðan fær fólk að flagga hat­urs­fullum skila­boðum gegn hinsegin sam­fé­lag­inu óáreitt.

„Pólska rík­is­stjórnin verður að snúa þessu ömur­lega ástandi við,“ segir Anna Błaszczak-Banasiak. „Í stað þess að ráð­ast gegn hinsegin fólki og þeim sem vilja vernda rétt­indi þess ættu yfir­völd að virða, vernda og efla rétt­indi þeirra og bregð­ast skjótt við til þess að tryggja enda­lok hvers kyns mis­mun­unar vegna kyn­hneigðar eða kyn­vit­undar fólks.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hinsegin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár