Mótmæla fyrirhuguðum breytingum á skilgreiningu kyns

Nokkur hund­ruð manns söfn­uð­ust saman í New York og Washington til að að mót­mæla fyr­ir­hugum breyt­ingum rík­is­stjórnar Trumps á laga­legri skil­grein­ingu kyns.

Transfánanum haldið á lofti
Trans­fán­anum haldið á lofti Mynd: EPA

Nokkur hund­ruð manns söfn­uð­ust saman fyrir utan Hvíta húsið í gær til að mót­mæla fyr­ir­hug­uðum breyt­ingum Banda­ríkja­stjórnar á laga­legri skil­grein­ingu kyns. Rík­is­stjórn Donalds Trumps er nú með til skoð­unar að taka til baka ýmsar breyt­ingar á rétt­indum þeirra sem vilja skil­greina kyn sitt öðru­vísi en eftir líf­fræði­legu kyni. Ef af breyt­ing­unni verður mun hún hafa víð­tæk áhrif á fjölda manns en talið er að um ein og hálf milljón Banda­ríkja­manna kjósi að skil­greina sig sem annað kyn en líf­fræði­legt kyn þeirra gefur til kynna.

Samkvæmt minn­is­blaði frá heil­brigð­is­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna, sem New York Times hefur undir höndum, mun laga­legri skil­grein­ingu kyns verða breytt á þann veg að allir Banda­ríkja­menn telj­ist til þess kyns sem líf­fræði­legt kyn þeirra gefur til kynna við fæð­ingu. Ekki verði hægt að breyta þeirri skil­grein­ingu nema með óyggj­andi nið­ur­stöðum erfða­fræði­próf­ana. Í minn­is­blað­inu er kyn skil­greint sem „staða ein­stak­lings sem annað hvort karl eða kona sem bygg­ist á óbreyti­legum líf­fræði­legum eig­in­leikum, grein­an­legum fyrir eða við fæð­ingu.“

[links]Í stjórn­ar­tíð Obama urðu ýmsar breyt­ingar á rétt­indum þeirra sem skil­greina sig sem annað en sitt líf­fræði­lega kyn. Gert var auð­veld­ara fyrir fólk að velja hvernig það skil­greinir sitt eigið kyn, sér­stak­lega í mennta­stofn­unum og innan heil­brigð­is­geirans. Trump sagð­ist standa með rétt­indum trans­fólks í kosn­inga­bar­átt­unni og að hann ætl­aði ekki að breyta reglu­gerðum Obama í þeim efn­um. En þegar hann tók við emb­ætti for­seta hefur hann einmitt gert þver­öf­ugt og til dæmis ógilt reglu­gerðir um rétt­indi trans­fólks í skólum um að það megi nota þau kló­sett sem því sýn­ist. Trump til­kynnti einnig á síð­asta ári á Twitter að hann vildi banna trans­fólki að ganga í her­inn.

Tilraunir til afneita tilveru transfólks

Strax síð­ast­liðið sunnu­dags­kvöld voru mót­mæl­endur, LGBT- aktí­vistar og stuðn­ings­menn þeirra, búnir að safn­ast saman í Washington Square Park í New York. Í gær stóð einnig mik­ill fjöldi mót­mæl­enda fyrir utan Hvíta húsið og lét heyra í sér með því að end­ur­taka í sífellu bar­áttu­ópið „We will not be ear­sed“. Fólk var hvatt til að kjósa í kom­andi þing­kosn­ingum og standa með rétt­indum hinsegin fólks.

Myllu­merkið #WontBeEarsed hefur verið notað mikið á sam­fé­lags­miðlum til að vekja athygli á mál­inu. Skila­boðin frá mót­mæl­endum eru skýr, sama hvað rík­is­stjórn Trumps reynir þá verður til­veru­réttur trans­fólks ekki þurrk­aður út úr sam­fé­lag­inu.

Biðlar til stjórnmálafólks á Íslandi

Ingileif Frið­riks­dóttir, stofn­andi Hinseg­in­leik­ans, gagn­rýnir fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar Banda­ríkja­stjórnar á Facebook og biðlar til stjórn­mála­fólks í öllum flokkum á Íslandi að for­dæma þetta. „Við erum öll mann­eskjur og eigum öll jafn mik­inn til­veru­rétt á þess­ari jörðu.“ segir Ingileif.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

lgbt

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár