Transfólk á ekki að gegna herþjónustu í Bandaríkjunum, segir Trump

Banda­ríkja­for­seti seg­ist á Twitter ætla að banna trans­fólki að gegna her­þjón­ustu í Banda­ríkj­unum.

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, segir að hann muni ekki leyfa trans­fólki að gegna her­þjón­ustu í banda­ríska hernum. Þetta skrifar hann á Twitter-síðu sína í dag.

Trump skrif­aði tvær færslur (sjá hér og hér: „Eftir að hafa ráð­fært mig við her­for­ingja og hern­að­ar­sér­fræð­inga, er ég ánægður með að fá þau til­mæli að banda­ríska rík­is­stjórnin muni ekki taka við umsóknum eða leyfa ... trans­fólki að gegna her­þjón­ustu í ein­hverju hlut­verki í banda­ríska hernum.“

Hann bætti svo við: „Herinn okkar verður að leggja áherslu á algjöran og yfir­gengi­legan sigur og ekki má þyngja róð­ur­inn með stór­kost­legum lækna­kostn­aði og trufl­unum sem trans­fólk í hernum hafa í för með sér.“

[adspot]

Hér er um tölu­verða stefnu­breyt­ingu banda­rískra stjórn­valda er að ræða enda hafði Barack Obama, for­veri Trumps í emb­ætti, komið því í gegn að trans­fólk gæti gengt her­þjón­ustu í Banda­ríkj­unum en það hafði verið bannað.

Trump sagð­ist standa með rétt­indum trans­fólks í kosn­inga­bar­átt­unni og að hann ætl­aði ekki að kasta reglu­gerðum Obama í þeim efnum. En þegar hann tók við emb­ætti for­seta hefur hann einmitt gert þver­öf­ugt og til dæmis ógilt reglu­gerðir um rétt­indi trans­fólks í skólum um að það megi nota þau kló­sett sem það sýn­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár