Frumvarp um kynrænt sjálfræði lagt fram í vetur

For­sæt­is­ráð­herra sagði frum­varp um kyn­rænt sjálf­ræði munu verða lagt fram í vetur, en verði það að lögum muni það koma Íslandi í fremstu röð í rétt­inda­málum hinsegin fólks.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði í hátíð­ar­ræðu sinni í Hljóm­skála­garð­inum í dag að nýtt frum­varp um fram­sækið lagaum­hverfi um kyn­rænt sjálf­stæði verði lagt fram í vetur. Enn fremur sagði hún rétt­inda­bar­áttu hinsegin fólks vera ofar­lega á for­gangs­lista núver­andi rík­is­stjórnar.

Katrín hélt ræðu sína við enda Gleði­göng­unnar, sem haldin var í dag og markar hápunkt Hinsegin daga í Reykja­vík. Í ræð­unni rifj­aði Katrín upp þeim árangri sem hefur náðst í rétt­inda­bar­áttu hinsegin fólks á síð­ustu tveimur ára­tugum, en bætti þó við að frels­is­stríðum ljúki aldrei.

Samkvæmt for­sæt­is­ráð­herra hafa Íslend­ingar dreg­ist aftur úr öðrum löndum í Evrópu hvað varðar laga­leg rétt­indi hinsegin fólks og nefndi þar sér­stak­lega mann­rétt­indi trans-og inter­sex fólks sem hún sagði að væri nauð­syn­legt að tryggja. Í því sam­bandi sagði Katrín að frum­varp yrði lagt fram á Alþingi um fram­sækið lagaum­hverfi um kyn­rænt sjálf­ræði. „Þegar frum­varpið verður að lögum mun það koma okkur í fremstu röð – þar sem við eigum að vera, af því við getum það og af því að það er rétt,“ bætti hún við í ræðu sinni.

Katrín sagði rétt­inda­bar­áttu hinsegin fólks vera ofar­lega á for­gangs­lista núver­andi rík­is­stjórnar, og nefndi þar frum­varp up jafna með­ferð á vinnu­mark­aði óháð kyn­þætti, þjóð­ern­is­upp­runa, trú, lífs­skoðun, fötlun, aldri, kyn­hneigð, kyn­vit­und, kynein­kennum eða kyntján­ingu sem sam­þykkt var í vor því til stuðn­ings. Einnig benti hún á að rík­is­stjórnin hafi tvö­faldað fjár­fram­lög til Sam­tak­anna 78.

Þó bætti Katrín við að ekki megi gera ráð fyrir því að fram­farir í rétt­inda­málum hinsegin fólks séu sjálf­sagðar og sagði aukna fræðslu vera mik­il­vægar til að stuðla að þeim. „Með því að við­halda og efla fræðslu, vera vak­andi og vinna gegn for­dómum, tryggjum við rétt­indi hinsegin fólks. Og það þurfa allir að standa saman og taka þátt, rétt eins og við gerum saman hér í dag,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár