Gengið frá Hörpu til Hljómskálagarðs

Gleði­ganga Hinsegin daga leggur af stað í dag frá Hörpu og endar í Hljóm­skála­garði. Götu­lok­anir vegna hennar standa yfir frá kl. 10 til 18.

Frá fyrri Gleðigöngu í Reykjavík.
Frá fyrri Gleði­göngu í Reykja­vík. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Nokkrum götum verður lokað frá klukkan tíu til sex í kvöld vegna Gleði­göngu Hinsegin daga, sem leggur af stað kl. 14 frá Hörpu í dag og endar í Hljóm­skála­garð­inum. Greint er frá lok­unum auk rask­ana í almenn­ings­sam­göngum á vef Hinsegin daga, Reykja­vík­ur­borgar og Strætó í dag.

Gleði­gangan er hápunktur Hinsegin daga sem stendur nú yfir, sem haldnir eru af Sam­tök­unum 78. Í göng­unni sam­ein­ast les­b­íur, hommar, tví-og pankyn­hneigðir, trans fólk, inter­sex fólk og aðrir hinsegin ein­stak­lingar í einum hópi ásamt fjöl­skyldum sínum og vinum til að stað­festa til­veru sína og minna á bar­áttu­mál sín,eins og segir á heima­síðu sam­tak­anna. [adspot]

Upp­still­ing göng­unnar verður frá hádegi á Sæbraut, austan Faxagötu, í nágrenni Hörpu. Gangan leggur svo af stað frá gatna­mótum Sæbrautar og Faxagötu stund­vís­lega kl. 14. Gengið verður eftir Kalkofnsvegi, Lækj­ar­götu, Frí­kirkju­vegi og endað á Sól­eyj­ar­götu. Sjá má kort af göng­unni hér að neðan.

Götu­lok­anir standa yfir frá klukkan tíu til klukkan sex í dag, en þar verður áður­nefndum götum lokað auk nokk­urra ann­arra gatna í mið­bænum. Þær eru eft­ir­far­andi: Sæbraut frá Snorra­braut að Hörpu, Geirs­gata að Ægisgötu, Skot­hús­vegur hjá Tjörn­inni, Amt­manns­stígur og Þing­holts­stræti norðan MR, Banka­stræti og neðsti hluti Skóla­vörðu­stígs. Einnig er neðsti hluti Hverf­is­götu og Tryggva­gata lokuð. Öllum götum verður lokað til klukkan 18 fyrir utan Geirs­götu, sem opnar klukkan 15.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

pride

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár