Icelandair óskar ekki eftir undanþágu frá Samkeppniseftirlitinu

Stjórn­endur félags­ins hyggj­ast ekki óska eftir und­an­þágu frá sam­keppn­is­lögum til þess að kaupin á WOW air komi til fram­kvæmda strax. Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur því allt að 114 virka daga til þess að taka afstöðu til kaupa.

Icelandair Group hyggst ekki sækja um und­an­þágu frá sam­keppn­is­lögum til þess að láta kaup félags­ins á WOW air koma til fram­kvæmda á meðan Sam­keppn­is­eft­ir­litið rann­sakar þau. Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur því allt að 114 virka daga, rúma fjóra mán­uði, til þess að taka afstöðu til kaupa. Frá þessu er greint í Mark­aðnum, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins, í dag.

[links]Tilkynnt var að stjórn Icelandair Group hefði gert kaup­samn­ing um kaup á öllu hlutafé í flug­fé­lag­inu WOW air á mánu­dag­inn. Kaupin voru meðal ann­ars gerð með fyr­ir­vara um sam­þykki hlut­hafa­fundar Icelandair Group, sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og nið­ur­stöðu áreið­an­leika­könn­un­ar. Kaupi eru talin björg­un­ar­að­gerð til þess að bregð­ast við erf­iðri fjár­hags­stöðu WOW air, sem gat illa lifað af liðin mán­aða­mót. Ef ekki hefði verið gripið til aðgerða nú hefði rekstur WOW air lík­ast til stöðvast.[adspot]

Ekkert fast í hendi

Þegar WOW air tók yfir rekstur Iceland Express haustið 2012 fengu félögin und­an­þágu til þess að yfir­takan gæti komið til fram­kvæmda á meðan á máls­með­ferð Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins stóð með þeim rökum að mikil óvissa ríkti um rekstr­ar­hæfi Iceland Express. Hætta væri á því að rekst­ur­inn myndi fljót­lega stöðvast ef kaupin næðu ekki fram að ganga.

Það getur komið til skoð­unar í sam­runa­máli Icelandair og WOW air hvort síð­ar­nefnda félagið sé á fallandi fæti í skiln­ingi sam­keppn­is­réttar segir Heimir Örn Her­berts­son, sér­fræð­ingur í sam­keppn­is­rétti við Háskól­ann í Reykja­vík. Samkvæmt Heimi ber sam­keppn­is­yf­ir­völdum að sam­þykkja sam­runa ef slík sjón­ar­mið eigi við þótt leiða megi rök að því að sam­keppni minnki í kjöl­far sam­run­ans.

„Hins vegar er slík nið­ur­staða háð afar ströngum skil­yrðum. Það er ekk­ert fast í hendi að hver sem er megi kaupa félag þó svo að það sé illa statt fjár­hags­lega,“ nefnir Heimir Örn í sam­tali við Mark­að­inn.

Gætu þurft að sannfæra eftirlitið að Icelandair Group hafi verið eini raunhæfi kaupandinn

Heimir Örn segir jafn­framt við­búið að Sam­keppn­is­eft­ir­litið muni vilja leggja mat á sam­keppn­is­leg áhrif sam­run­ans. Það þýðir að eft­ir­litið þarf að skil­greina mark­aði máls­ins og meta stöðu félag­anna á þeimn og búast má við því að félögin leggi áherslu á þau sé litlir keppi­nautar á stórum mark­aði fyrir flug á milli áfanga­staða vest­an­hafs og aust­an­hafs segir Heimir. Hann segir jafn­ramt að hugs­an­lega vilji eft­ir­litið hins vegar skil­greina mark­að­ina heldur þrengra. Eftir því sem mark­aðir eru skil­greindir þrengra eru meiri leikur á nið­ur­stöðu um skað­leg áhrif sam­runa á sam­keppni, meðal ann­ars með hlið­sjón af hárri mark­aðs­hlut­deild sam­runa­að­ila og fleira.

Ef Icelandair Group og WOW air byggja á því í mála­til­bún­aði sínum fyrir Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu að síð­ar­nefnda félagið sé á fallanda fæti, eins og líkur benda til, og því beri að heim­ila yfir­tök­una, þá þurfa félögin meðal ann­ars að sann­færa eft­ir­litið um að eng­inn raun­hæfur mögu­leiki hafi verið á því að selja WOW air til ann­arra félaga en Icelandair Group. Frá þessu er greint í umfjöllun Mark­að­irns

Krafan um að fara í við­ræður við Icelandair Group um kaup á WOW air kom frá lán­ar­drottnum félags­ins, m.a. þeim sem höfðu tekið þátt í útboð­inu sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Arion banki er helsti lán­ar­drott­inn WOW air hér­lendis og hefur því án efa leikið lyk­il­hlut­verk í þeirri kröfu­gerð. Arion banki hefur ekki viljað upp­lýsa um hvort hann, eða sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækið Stefn­ir, hafi tekið þátt í skulda­bréfa­út­boð­inu hjá WOW air.

Samkvæmt heim­ildum Mark­að­ar­ins muni for­svars­menn WOW air gera eft­ir­lit­inu grein fyrir ýmsum mis­heppn­uðum við­ræðum sem þeir hafi und­an­farið átt við fjár­festa um kaup á hlutafé í flug­fé­lag­inu. Til­raunir til þess að fá fjár­festa að borð­inu séu þannig full­reyndar.

Mögulegt að leita heimilda til greiðslustöðvunar

Einn hugs­an­legur mögu­leiki í stöð­unni fyrir WOW air er að leita heim­ilda til greiðslu­stöðv­unar á meðan Sam­keppn­is­eft­ir­litið rann­sakar kaup Icelandair á flug­fé­lag­inu sam­kvæmt Arnari Þór Stef­áns­son, hæsta­réttar­lög­maður á LEX. Slíkt úrræði er almennt hugsað til þess að veita félögum skjól frá kröfu­höfum til þess að vinna úr sínum málum. Samkvæmt Arnari er það hins vegar spurn­ing hvort og að hvaða marki það úrræði henti í þessu til­viki.

„Á meðan félag er í greiðslu­stöðvun geta kröfu­hafar að meg­in­stefnu ekki beitt neinum van­efnda­úrræðum gagn­vart því, til dæmis ekki gert fjár­nám hjá því eða knúið það í gjald­þrot, og stjórn­völd geta heldur ekki beitt neinum þving­unar­úrræðum.Það er sér­stak­lega mælt fyrir um það í lögum um gjald­þrota­skipti að ákvæði í samn­ingum eða réttar­reglum um afleið­ingar van­efnda, til dæmis gjald­fell­ing­ar­á­kvæði, taki ekki gildi gagn­vart skuld­ar­anum á þeim tíma sem greiðslu­stöðvun stendur yfir, sem getur í mesta lagi verið sex mán­uðir,“ segir Arnar Þór í sam­tali við Mark­að­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár