Mótmæla harðlega aðgerðum Icelandair gegn flugfreyjum og flugþjónum

For­ystu­menn stærstu stétt­ar­fé­laga lands­ins mót­mæla harð­lega þeim aðgerðum sem stjórn Icelandair hyggst ráð­ast í gegn flug­freyjum og flug­þjónum sem starfa hjá fyr­ir­tæk­inu.

1. maí kröfuganga 2018.
1. maí kröfu­ganga 2018. Mynd: Bára Huld Beck

Sólveig Anna Jóns­dóttir for­maður Eflingar, Katrín Sif Sig­ur­geirs­dóttir for­maður kjara­nefndar Ljós­mæðra­fé­lags Íslands, Vil­hjálmur Birg­is­son for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness og Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR mót­mæla harð­lega þeim aðgerðum sem stjórn Icelandair hyggst ráð­ast í gegn flug­freyjum og flug­þjónum sem starfa hjá fyr­ir­tæk­inu. Þetta kemur fram yfir­lýs­ingu sem hóp­ur­inn sendi frá sér í dag.

[links]Icelandair setti flug­freyjum og flug­þjónum þá afar­kosti fyrir helgi að velja á milli þess að fara í fulla vinnu frá og með 1. jan­úar næst­kom­andi eða missa vinn­una.

Drífa Snæ­dal, fram­kvæmda­stjóri Starfs­greina­sam­bands­ins og fram­bjóð­andi til for­seta ASÍ, tekur í sama streng í stöðu­upp­færslu á Facebook og segir það ömur­legt að fylgj­ast með fram­göngu Icelandair gagn­vart flug­freyjum og flug­þjónum þar sem þvinga eigi alla í fullt starf í hag­ræð­ing­ar­skyni.

„Í ljósi þess að stjórn félags­ins hefur á síð­ast­liðnum tveimur árum greitt hlut­höfum rúman 1,3 millj­arð í arð vekur það furðu að ráð­ast eigi að atvinnu­ör­yggi þeirra sem gert hafa rekstur fyr­ir­tæk­is­ins mögu­legan; þeim sem unnið hafa vinn­una, með því að banna hluta­störf,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Þau spyrja hvernig væri að stjórn­endur félags­ins byrj­uðu á því að axla ábyrgð á stöðu þeirri sem komin er upp hjá Icelandair með því að afsala sér ofur­launum og kaupauka­greiðslum, upp­hæðum sem eru marg­föld laun vinnu­aflsins á íslenskum vinnu­mark­aði.

„Á meðan það er ekki gert er allt tal um háan launa­kostnað Icelandair algjör­lega ómark­tækt. Eins og svo oft áður í íslensku sam­fé­lagi bein­ast aðgerð­irnar að stórri kvenna­stétt sem ætl­ast er til að beri byrðar „hag­ræð­ingar“ og sparn­aðar. Enn á ný sjáum við hversu kerf­is­bundin kven­fyr­ir­litn­ingin er í þjóð­fé­lag­inu og hvernig hags­munir efna­hags­legra for­rétt­inda­hópa vega ávallt þyngra en virð­ing fyrir kvenna­störfum. Kap­ít­al­ísk græðg­i­svæð­ing býr til efna­hags­legan óstöð­ug­leika, ekki kröfur vinnu­aflsins um sann­girni, það hefur sagan kennt okkur og því for­dæmum við að ráð­ist skuli með þessum hætti að hags­munum starfs­fólks Icelandair. Við lýsum yfir sam­stöðu með flug­freyjum og flug­þjónum í bar­áttu þeirra fyrir virð­ingu og rétt­læti. Við hvetjum aðra til að gera slíkt hið sama,“ segir í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu þeirra.

Drífa segir ömur­legt að fylgj­ast með fram­göngu Icelandair gagn­vart flug­freyjum og flug­þjónum þar sem þvinga eigi alla í fullt starf í hag­ræð­ing­ar­skyni.

„Þetta er ótrú­leg skamm­sýni og aðför að stétt sem er að stærstum hluta til skipuð konum. Svo sé ég ekki betur en að þetta stang­ist á við sam­komu­lag um hluta­störf í kjara­samn­ingum. Að vinna á óreglu­legum tímum er gríð­ar­legt álag og við það bæt­ist að vera fjarri heim­ili lang­dvölum. Það skal því engan undra að flug­freyjur og flug­þjónar kjósi að vinna hluta­störf til að hafa mögu­leika á að sam­ræma vinnu og heim­ili. Fólk í vakta­vinnu nýtur skertra lífs­gæða og augu okkar hafa opn­ast fyrir því síð­ustu ár að það getur verið bein­línis heilsu­spill­andi að vinna óreglu­lega vinnu­tíma. Það er því nær að sækja fram fyrir þær stéttir sem vinna vakta­vinnu og hafa verið háværar kröfur um að 80% vakta­vinna sé ígildi 100% starfs. Þessar kröfur eru ekki úr lausu lofti gripnar. Ákvörðun Icelandair er því aðför að kvenna­stétt og sýnir starfi flug­freyja og flug­þjóna ótrú­lega lít­ils­virð­ingu og skiln­ings­leysi. Ég styð stétt­ina alla leið!“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár