Karen Kjartansdóttir sem starfað hefur sem almannatengill undanfarin ár hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar. Vísir greindi fyrst frá málinu.
[links]Karen gegndi síðast stöðu upplýsingafulltrúa United Silicon og áður starfaði hún sem upplýsingafulltrúi Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.
Staða framkvæmdastjóra flokksins hefur verið laus frá kosningunum 2016, þegar fyrrverandi framkvæmdastjóri Kristján Guy Burgess sagði starfi sín lausu eftir verulega lélega útkomu flokksins í Alþingiskosningum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir