Kristján Guy Burgess nýr framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar

Kristján Guy Burgess hefur verið ráð­inn fram­kvæmda­stjóri Sam­fylk­ing­ar­innar. Í til­kynn­ingu frá flokknum kemur fram að Kristján hafi verið val­inn úr stórum hópi umsækj­enda til að "stýra dag­legum rekstri flokks­ins og hafa yfir­um­sjón með mál­efna­starfi og stefnu­mótun". Síðasti fram­kvæmda­stjóri Sam­fylk­ing­ar­innar var Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir sem hætti störfum í maí til að ger­ast for­maður Banda­lags háskóla­manna, BHM.

Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir að það hafi ekki verið auð­velt að velja úr þeim hópi sem gaf kost á sér í starfið. "Það er mik­ill fengur að Krist­jáni. Hann hefur skýra sýn um hvernig best er hægt að auka áhrif umbóta­sinn­aðra afla og hann hefur sýnt í fyrri störfum að hann hefur lag á að vinna með fólki, leysa flókin verk­efni og koma hlutum í verk. Við hlökkum til sam­starfs­ins."

Kristján hefur að und­an­förnu starfað fyrir Atl­ants­hafs­banda­lagið sem full­trúi þess gagn­vart Sam­ein­uðu þjóð­unum í New York. Árin 2009-2013 var hann aðstoð­ar­maður utan­rík­is­ráð­herra og frá 2005-2009 rak hann ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæki í alþjóða­málum. Hann býr yfir ára­langri reynslu af störfum við fjöl­miðla og hefur komið að marg­vís­legu kosn­inga­starfi. Kristján er með BA próf í sagn­fræði og heim­speki frá Háskóla Íslands og meist­ara­próf í alþjóða­stjórn­málum og alþjóða­lögum frá háskólum í London og Kosta Ríka. Hann mun hefja störf 1. nóv­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár