Hundruð sækja um íbúðir Bjargs

Gríð­ar­legur áhugi er meðal félags­manna aðild­ar­fé­laga BSRB og Alþýðu­sam­bands Íslands á íbúðum sem Bjarg íbúða­fé­lag mun leigja tekju­lágu fólki á vinnu­mark­aði. Afhend­ing íbúða til leigu­taka gæti haf­ist 1. júlí á næsta ári.

Mikill áhugi er meðal félags­manna aðild­ar­fé­laga BSRB og Alþýðu­sam­bands Íslands á íbúðum sem Bjarg íbúða­fé­lag mun leigja tekju­lágu fólki á vinnu­mark­aði. Í lok júlí höfðu alls 818 umsóknir borist félag­inu, þar af 56 frá Akureyri og nágrenni.

Frá þessu er greint í frétt á vef­síðu BSRB.

Skráning á biðlista hófst þann 15. maí síð­ast­lið­inn. „Allar umsóknir sem bár­ust fyrir lok júlí voru settar í pott og dregið um röð þeirra á biðlista. Þetta var gert til að gæta jafn­ræðis þar sem reiknað var með að ein­hvern tíma myndi taka að koma upp­lýs­ingum um að opnað hefði verið fyrir umsóknir til félaga í aðild­ar­fé­lögum BSRB og ASÍ,“ segir í frétt­inni.

Leiguheimili að norrænni fyrirmynd

Á vef­síðu íbúð­ar­fé­lags­ins kemur fram að Bjarg sé sjálfs­eign­ar­stofnun sem rekin sé án hagn­að­ar­mark­miða. Félaginu sé ætlað að tryggja tekju­lágum ein­stak­lingum og fjöl­skyldum á vinnu­mark­aði aðgengi að öruggu íbúð­ar­hús­næði í lang­tíma­leigu. Um sé að ræða svokölluð leigu­heim­ili að nor­rænni fyr­ir­mynd.

Bjarg starfar sam­kvæmt lögum um almennar íbúðir. Í lög­unum eru til­greind tekju- og eigna­mörk ásamt við­miði um greiðslu­byrði leigu. Þá þurfa umsækj­endur að vera félags­menn stétt­ar­fé­lags innan ASÍ eða BSRB.

Búið að draga um röð umsækjenda

Í frétt BSRB segir að nú hafi verið dregið um röð umsækj­end­anna 818 á biðlist­anum og geti þeir sem sóttu um séð hvar þeir standa með því að fara inn á vef Bjargs og skoða „mínar síður“.

„Ein núm­era­röð er fyrir alla óháð íbúð­ar­teg­und eða stað­setn­ingu. Áfram er hægt að skrá sig á biðlist­ann og er skrán­ingum raðað upp í þeirri röð sem þær ber­ast og virkj­ast þegar greiðsla stað­fest­ing­ar­gjalds hefur verið innt af hendi.

Í hvert sinn sem íbúðir eru lausar til umsókna sendir Bjarg póst á alla aðila á biðlista með nán­ari upp­lýs­ingum. Ef ein­stak­lingur sem er á biðlista hefur áhuga á til­tek­inni stað­setn­ingu þarf að senda umsókn. Úthlutun hlýtur sá umsækj­andi sem upp­fyllir öll skil­yrði um úthlutun hefur lægsta númer á biðlista, að teknu til­liti til for­gangs. Sótt er um ákveðna íbúð­ar­teg­und eða íbúð­ar­stærð sem hentar út frá fjöl­skyldu­stærð og í til­teknu húsi. Ekki er hægt að sækja um ákveðnar íbúðir sér­stak­lega,“ segir í frétt­inni.

Stefnt á að afhenda 1. júlí á næsta ári

Bjarg hefur þegar hafið fram­kvæmdir við upp­bygg­ingu íbúða­kjarna á tveimur stöðum innan Reykja­víkur, í Spöng í Graf­ar­vogi og í Úlf­arsár­dal. Öll vinna er á áætlun og er reiknað er með þeir sem eru á biðlista geti sótt um fyrstu íbúð­irnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í sept­em­ber næst­kom­andi. Afhend­ing íbúða til leigu­taka gæti haf­ist 1. júlí 2019.

Fleiri fram­kvæmdir eru í und­ir­bún­ingi hjá félag­inu víða um land, og eru alls 815 íbúðir annað hvort á und­ir­bún­ings- eða fram­kvæmda­stigi, segir á síðu BSRB.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stéttarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár