Drífa Snædal gefur kost á sér í embætti forseta ASÍ

Drífa Snædal, fram­kvæmda­stjóri Starfs­greina­sam­bands­ins og fyrr­ver­andi vara­þing­maður Vinstri grænna, mun gefa kost á sér í emb­ætti for­seta ASÍ á þing­inu sem sett verður 24. októ­ber næst­kom­andi.

Drífa Snædal
Drífa Snædal Mynd: Aðsend mynd

Drífa Snædal, fram­kvæmda­stjóri Starfs­greina­sam­bands­ins og fyrr­ver­andi vara­þing­maður Vinstri grænna, mun gefa kost á sér í emb­ætti for­seta ASÍ á þing­inu sem sett verður 24. októ­ber næst­kom­andi. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem hún sendi frá sér í morgun.

Hún segir í yfir­lýs­ing­unni að síð­ustu ára­tugi hafi hallað undan fæti í sam­fé­lag­inu hér heima og heim­inum öllum. Græðgi sé talin til kosta og auð­ur­inn hefur safn­ast á fáar hendur. Þeir sem lifa af sívax­andi auði sínum hafi misst tengsl við sam­fé­lagið og kjör almenn­ings. Grunn­skil­yrði góðs lífs, svo sem við­ráð­an­legt hús­næð­is­verð, séu und­ir­seld spá­kaup­mennsku. Vinnandi fólk eigi allt sitt undir því hvort stór­fyr­ir­tæki telji það nógu arð­bært að veita sóma­sam­legt hús­næði á við­ráð­an­legum kjörum.

„Við þetta bæt­ist að verka­lýðs­hreyf­ingin á í vök að verj­ast þegar kemur að rétt­inda­brotum og félags­legum und­ir­boðum. Upp­lýs­ingum um lög, reglur og rétt­indi er haldið frá fólki til að geta klipið af launum þeirra og félags­leg und­ir­boð eru orðin varn­ar­lína þeirra sem starfa í verka­lýðs­hreyf­ing­unni.

Enn fremur hefur skatt­kerfið, sem er mæli­kvarði á sið­menntað sam­fé­lag, á síð­ustu árum verið sveigt í þágu hinna ríku gegn vinn­andi fólki. Áhrif tekna og búsetu á menntun og heilsu almenn­ings hafa auk­ist til muna og sjást nú á stærð­argráðu sem við höfum ekki séð í ára­tugi. Hættan er sú að til verði tvö aðskilin sam­fé­lög ríkra og fátækra, þar sem hinir efna­meiri kaupa sig fram fyrir röð­ina í heilsu­gæslu, menntun og annarri almanna­þjón­ustu,“ segir hún í yfir­lýs­ing­unni.

[adspot]

Hún segir að Íslend­ingum bíði það verk­efni að auka lífs­gæði hinna mörgu og stemma stigu við græðgi hinna fáu. Verka­lýðs­hreyf­ingin sé mik­il­væg sem aldrei fyrr og hún má ekki bregð­ast á ögur­stundu. Hér á landi starfi ein sterkasta verka­lýðs­hreyf­ing heims og það sé mikið ábyrgða­hlut­verk að ná að sam­eina hana um hag okkar allra. Það verði mik­il­væg­asta verk­efni næsta for­seta ASÍ.

[box]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stéttarfélag

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár