Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkur og varaformaður Samfylkingarinnar, segist vísa ávirðingum minnihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur til föðurhúsanna í einu og öllu í stöðuuppfærslu á Facebook-síðu sinni í kvöld.
[links]Stjórnarandstöðuflokkarnir í borgarstjórn Reykjavíkur, Sjálfstæðisflokkurinn, Miðflokkurinn, Flokkur fólksins og Sósíalistaflokkurinn, og formaður VR, Ragnar Þór Ingólfsson, sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu fyrr í dag og lýstu yfir áhyggjum af þekkingarleysi formanns velferðarráðs Reykjavíkur og varaformanns Samfylkingarinnar, Heiðu Bjargar Hilmisdóttur, á húsnæðismarkaðnum í Reykjavík. Tilefnið var ummæli hennar í þættinum Vikulokunum á Rás 1 í morgun.
Heiða Björg segir í yfirlýsingu sinni að Reykjavíkurborg hafi úthlutað lóðum og greitt stofnframlög með yfir 1000 íbúðum óhagnaðardrifinna húsnæðisfélaga. Meðal annars til Bjargs, byggingarfélags launafólks. Stendur hún því við orð sín í Vikulokunum í morgun. „Að halda öðru fram stangast á við staðreyndir eins og sjá má í meðfylgjandi umsögn fjármálastjóra Reykjavíkurborgar og á meðfylgjandi mynd,“ segir hún. Þar vísar hún í umsögn um tillögu um afnám áhrif byggingarréttargjalds á byggingarkostnað félagslegra íbúða og íbúða sem byggðar eru af óhagnaðardrifnum leigufélögum frá 16. júlí síðastliðnum.

[adspot]
Heiða Björg segir jafnframt að það sé beinlínis rangt að byggingarréttargjald standi í vegi fyrir byggingu félagslegs húsnæðis eins og kom fram í yfirlýsingu minnihlutans og formanns VR.
„Staðreyndin er sú að ekkert sveitarfélag í landinu stendur eins myndarlega að uppbyggingu félagslegs húsnæðis og húsnæðis í samvinnu við verkalýðshreyfinguna og husnæðisfelög sem ekki eru rekin i hagnðarskyni, og Reykjavík gerir. Ef önnur sveitarfélög á höfuðborgasvæðinu kæmu að þessu málum með jafn öflugum hætti og Reykjavík væri hér enginn húsnæðisvandi,“ segir hún.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.





















































Athugasemdir