Stjórnarandstaðan og Ragnar Þór gagnrýna formann velferðarráðs Reykjavíkur

Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir í borg­ar­stjórn Reykja­víkur og for­maður VR, Ragnar Þór Ing­ólfs­son, lýsa yfir áhyggjum af þekk­ing­ar­leysi for­manns vel­ferð­ar­ráðs Reykja­víkur, Heiðu Bjargar Hilm­is­dóttur, á hús­næð­is­mark­aðnum í borg­inni.

Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir í borg­ar­stjórn Reykja­víkur, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, Mið­flokk­ur­inn, Flokkur fólks­ins og Sós­í­alista­flokk­ur­inn, og for­maður VR, Ragnar Þór Ing­ólfs­son, lýsa yfir áhyggjum af þekk­ing­ar­leysi for­manns vel­ferð­ar­ráðs Reykja­víkur og vara­for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, Heiðu Bjargar Hilm­is­dóttur, á hús­næð­is­mark­aðnum í Reykja­vík.

Þetta kemur fram í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna í borg­ar­stjórn Reykja­víkur og for­manns VR sem þau sendu frá sér í dag. 

Tilefnið er ummæli hennar í þætt­inum Viku­lok­unum á Rás 1 í morgun, þar sem hún sagði 1000 íbúðir í bygg­ingu á vegum óhagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga. Í yfir­lýs­ing­unni segir að þetta sé rangt. „Hið rétta er að 256 íbúðir, svo vitað sé, eru í bygg­ingu á vegum óhagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga í Reykja­vík og hefur borgin gefið út 551 bygg­ing­ar­leyfi til handa slíkum leigu­fé­lögum, sem er víðs fjarri þeim 1000 íbúðum sem for­maður vel­ferð­ar­ráðs, Heiða Björg Hilm­is­dóttir, heldur fram að séu í bygg­ingu.“

Þá hafn­aði for­maður vel­ferð­ar­ráðs jafn­framt þeirri stað­reynd að bygg­inga­rétt­ar­gjald hefði áhrif á leigu­verð í Reykja­vík. Stjórn­ar­and­staðan og Ragnar Þór benda aftur á móti á að bygg­ing­ar­rétt­ar­gjaldið, sem er 45.000 kr. á hvern fer­metra, valdi veru­legum töfum á bygg­ingu leigu­í­búða í Reykja­vík en gjaldið leggst á leigu­verð sem eykur greiðslu­byrði leigj­anda til muna og getur gjaldið numið hund­ruðum þús­unda árlega fyrir hverja íbúð.

„Þessi ummæli for­manns vel­ferð­ar­ráðs und­ir­strika skiln­ings­leysið á þeim brýna hús­næð­is­vanda sem er í Reykja­vík. Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir í borg­ar­stjórn Reykja­víkur, hafa nú þegar lagt fram til­lögur til lausnar vand­ans en þær til­lögur hafa því miður ekki náð fram að ganga. Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir og for­maður VR skora á meiri­hluta­flokk­ana í borg­inni að bregð­ast við vand­anum með því að taka undir til­lögur stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna í hús­næð­is­málum,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár