Meira af pollagöllum og „rigningarfóðri“ vegna vætutíðar í Reykjavík

Tíðar rign­ingar og kalt veð­ur­far í Reykja­vík hefur haft mis­jöfn áhrif á fyr­ir­tæki í höf­uð­borg­inni.

Lítið hefur verið af sólríkum dögum í höfuðborginni í sumar
Lítið hefur verið af sól­ríkum dögum í höf­uð­borg­inni í sumar Mynd: Birgir Þór Harðarson

Votviðri og kuldi hefur sett sinn svip á sum­arið á Suð­vest­ur­horni Íslands. Fyrir utan öll áhrifin sem vætu­tíðin hefur haft á geð­heilsu borg­ar­búa virð­ast mörg fyr­ir­tæki einnig finna fyrir breyt­ingu í starf­semi sinni vegna hennar. Þannig hefur þurft að fresta mal­bikun oftar og meira keypt af „rign­ing­ar­fóðri,“ en sala á polla­göllum er í hæstu hæðum.

Malbikun frestað

Samkvæmt skrif­stofu Reykja­vík­ur­borgar hefur veð­ur­farið haft áhrif á mal­bikun innan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Til þess að hægt sé að mal­bika þurfi yfir­borð að vera þurrt þegar fram­kvæmdir hefj­ast og lím borið á götur. Einnig hamli lágt hita­stig og mikil vindur fram­kvæmdum. Í fyrra féllu fram­kvæmdir niður í sam­tals 31 dag yfir fimm mán­aða verk­tíma. Í ár, nú þegar þrír mán­uðir hafa liðið frá fyrsta verk­degi hafa verið 30 rign­inga­dagar og því hafa tafir vegna rign­ingar verið jafn­miklar og yfir allan sum­ar­tím­ann í fyrra.

Birkir Hrafn Jóakims­son, bygg­ing­ar­verk­fræð­ingur hjá Vega­gerð­inni, segir vætu­tíð­ina í sumar einnig hafa gert starfs­mönn­unum fyr­ir­tæk­is­ins erfitt fyrir. Hann þakkar þó góðum verk­tökum sem unnið hafa á sól­ar­hrings­vöktum til að mal­bika á þurrum köflum um allt land. Þrátt fyrir það hefur mal­bik­un­inni yfir sum­ar­tím­ann seinkað lít­il­lega, en búist er við að henni muni ljúka um miðjan ágúst.

Breyting í sundlaugaferðum

Nokkur breyt­ing hefur einnig verið í aðsókn sund­lauga milli ára, en sund­lauga­ferðum hefur fækkað í þremur af sex laugum í Reykja­vík. Þótt aukn­ing hafi verið í heild­ar­fjölda sund­lauga­ferða milli sum­r­anna 2017 og 2018 hefur hún aðal­lega verið drifin af nýupp­gerðri Sundhöll Reykja­víkur. Í Árbæj­ar­laug, Graf­ar­vogs­laug og Laug­ar­dals­laug hefur sund­ferðum hins vegar fækkað.

Dýr og plöntur fagna

Slæmt veð­ur­far und­an­far­inna mán­aða hefur þó ekki haft telj­andi slæm áhrif á dýra-og plöntu­líf, ef marka má við­mæl­endur Kjarnans. Steinar Smári Guð­bergs­son mein­dýra­eyðir segir helstu breyt­ing­una hjá sér vegna ring­ing­ar­innar vera þær að fólk verði ekki var við köngulær og geit­ungabú hjá sér jafn­snemma þar sem það fari ekki jafn­mikið út í garð og í fyrra. Þannig hafi þurft að eiga við fleiri stærri köngulær og geit­ungabú þegar leið á sum­arið, en ekki jafn­mörg í byrjun sum­ars.

Bjarni J.Þórð­ar­son, fram­kvæmda­stjóri garða­þjón­ust­unnar Garðar best, segir einnig ekk­ert lát hafa verið á garðslætti í sumar, grasið vaxi jafnar og með stöðugri hættu í rign­ing­ar­tíð­inni. Á síð­ustu sumrum hafi oft þurft að fresta garðslætti vegna langra þurrka­tíma­bila á sumrin, en lítið hafi verið um slíkt í ár þar sem nær allir dagar hafi verið blautir. Þrátt fyrir það segir Bjarni að hægst hafi á runna­gróðri þar sem sólin hefur af skornum skammti. Samkvæmt honum hefur rign­ing­ar­tíðin fyrst og fremst verið erfið fyrir starfs­fólk fyr­ir­tæk­is­ins, sem hefur þurft að vinna úti í köldu og blautu veðri síð­ustu vik­urnar.

Fleiri pollagallar, færri ermalausir bolir

Veðr­áttan virð­ist einnig hafa haft áhrif á neyslu­venjur lands­manna, en í sam­tali Kjarnans við Ell­ings­sen var mikil sala á regn­fatn­aði í byrjun sum­ars, á meðan úti­leg­u­sala var sein að taka við sér. Gunnar Ingi Sig­urðs­son, fram­kvæmda­stjóri Hagkaups, segir einnig svo­kallað „rign­inga­fóður“ hafa ein­kennt sölu fyr­ir­tæk­is­ins í sumar, en þar vísar hann helst til matar sem eld­aður er inni. Einnig segir hann áber­andi að minni sala sé á erma­lausum bolum og opnum skóm, en met­sala á polla­göllum og stíg­vélum vegi það upp.

[links]Þar að auki nefnir Gunnar að aukin tíðni útlanda­ferða gæti einnig útskýrt litla sölu fyr­ir­tæk­is­ins í sumar, en neyt­endur virð­ast verja meiri tíma erlendis þetta sum­ar­frí heldur en önnur ár. Kjarninn fjall­aði um sögu­lega sölu ferða­skrif­stofa lands­ins, en sam­kvæmt Tómasi J. Gests­syni, fram­kvæmda­stjóra Heims­ferða, er ljóst að þetta verði met­sumar í sól­ar­landa­ferðum. Ingi­björg Elsa Eysteins­dóttir, for­stöðu­kona sólar-og sér­ferða hjá Gam­an­ferðum tekur í sama streng og segir allt upp­selt úr land­inu: „Fólk er alveg greini­lega komið með nóg af þessu. Við erum eig­in­lega að díla við það vanda­mál núna að það er ekk­ert laust, það er bara upp­selt í næstu brott­farir, upp­selt úr landi,“ segir Ingi­björg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár