Íslendingar flýja unnvörpum í sólina

Söguleg sala hjá ferða­skrif­stofum í sól­ar­landa­ferðir þetta sum­arið. Fá sím­töl þar sem fólk vill kom­ast út sam­dæg­urs. Uppselt úr landi segir starfs­maður ferða­skrif­stofu. Tíðin hefur sjaldan verið verri á suð­vest­ur­horn­inu.

Það rigndi hvern ein­asta dag í maí sem var met í Reykja­vík, úrkoman var nær þrefalt meiri en í með­al­ári. Það hefur aðeins gerst fjórum sinnum áður, frá því mæl­ingar hófust í Reykja­vík fyrir meira en hund­rað árum síðan, að rignt hafi hvern ein­asta dag í heilan mánuð. Í ofaná­lag var svo óvenju kalt líka.

Júní var litlu skárri, aðeins fimm dagar voru þurrir í mán­uð­inum og úrkomu­daga­fjöldi í júní hefur ekki verið slík­ur í Reykja­vík nema tvisvar áður, árin 1960 og 1983.

Há­marks­hiti árs­ins í Reykja­vík í maí og júní var ekki nema 14,3 stig og hæsta hita­tala í júní 13,2 stig.

Þó að nokkrum sinnum hafi sést til sólar í júlí er það þó ekki svo að á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafi verið nokkuð um sam­fellda sól­ar­daga.

Ferða­skrif­stof­urnar finna vel fyrir þessu og eru flestar búnar að selja upp ferðir sínar og sæti til sól­ar­landa í júlí og jafn­vel fram yfir versl­un­ar­manna­helgi fram í miðjan ágúst.

Tómas J. Gestsson, fram­kvæmda­stjóri Heims­ferða, segir að júlíf­erðir fyr­ir­tæk­is­ins hafi selst upp í júní. Það hafi ekki gerst á tæp­lega tutt­ugu ára ferli Tómasar í brans­anum að júlí selj­ist upp áður en júní sé lið­inn.

„Það er eitt­hvað um það að fólk hringi og sé alveg sama hvert það fer, en svo er fólk bara að horfa núna í ágúst mánuð. Ég heyrði í einum í morgun sem fór til spánar í júní. Hann vildi fara bara aftur í ágúst, var búinn að fá nóg af þessu veðri og vildi kom­ast aftur út í ágúst fólk farið að þrá að kom­ast úr rign­ing­unni,“ segir Tómas.

Tómas segir að þetta verði met­sumar í sól­ar­landa­ferðum. Alls býður fyr­ir­tækið upp á meira en 1.700 sæti í júlí sem öll eru upp­seld. Þá séu margir nú þegar farnir að bóka borg­ar­ferðir í haust, þó Heims­ferðir séu ekki farnar að sjá sama kipp­inn í bók­unum þar og kom í sól­ar­landa­ferð­unum í júní.

Ingi­björg Elsa Eisteins­dóttir for­stöðu kona sólar- og sér­ferða hjá Gam­an­ferðum tekur í sama streng. Hún segir að þau fái tölu­vert af sím­tölum þar sem fólk vilji kom­ast út í sól­ina bara sama kvöld eða dag­inn eftir.

„Fólk er alveg greini­lega komið með nóg af þessu. Við erum eig­in­lega að díla við það vanda­mál núna að það er ekk­ert laust, það er bara upp­selt í næstu brott­farir, upp­selt úr landi,“ segir Ingi­björg.

Hún segir fólk jafn­vel vera að kaupa dýr­ari ferðir ein­fald­lega vegna þarfar fyrir að kom­ast út. Þá séu einnig margir farnir að bóka ferðir fyrir næsta sumar, fólk ætli sann­ar­lega ekki að missa af öðru sumri og taki ekki séns­inn á að tíðin verði með sama hætti og þetta sum­arið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðalög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár