Deilt um bílastæði við Smáralind

Smára­lind ehf., sem er dótt­ur­fé­lag fast­eigna­fé­lags­ins Regins, var í hér­að­dómi í gær sýknað af öllum kröfum Norð­ur­turns­ins hf., um við­ur­kenn­ingu á samnýt­ingu bíla­stæða, frá­veitu­lagna og gag­kvæman umferð­ar­rétt og rétt til nýt­ingar bíla­stæða.

Smára­lind ehf., sem er dótt­ur­fé­lag fast­eigna­fé­lags­ins Regins, var í hér­að­dómi í gær sýknað af öllum kröfum Norð­ur­turns­ins hf., en Norð­ur­turn­inn er stað­settur beint á móti Smára­lind, en Norð­ur­turn hafði gert kröfu um við­ur­kenn­ingu á samnýt­ingu bíla­stæða, frá­veitu­lagna og gag­kvæman umferð­ar­rétt á lóð Haga­smára 1 (Smára­lind) og að sú kvöð veiti Norð­ur­turn­inum rétt til nýt­ingar á bíla­stæðum á lóð­inni.

Lands­réttur hafði áður snúið við úrskurði Hér­aðs­dóms Reykja­ness um frá­vísun máls­ins og tók dóm­ur­inn því nú efn­is­lega afstöðu í mál­inu.

Kröfum Norð­ur­turns­ins á hendur Kópa­vogsbæ um að deiliskipu­lag Smárans vestan Reykja­nes­brautar yrði fellt úr gildi var vísað frá dómi.

Segir dóm­ur­inn að ekk­ert í gögnum máls­ins styðji þá full­yrð­ingu Norð­ur­turns­ins að samið hafi verið um gagn­kvæma samnýt­ingu bíla­stæða á lóð­unum Haga­smára 1 og 3. Þvert á móti hafi hluti sölu­verðs lóð­ar­innar Haga­smára 3, og eitt af skil­yrðum fyrir söl­unni verið, að gerður yrði samn­ingur þar sem meðal ann­ars kæmi fram að hluti af sölu­verð­inu væri afnota­rétt­indi Smára­lindar af bíla­stæðum í bíla­stæða­húsi Norð­ur­turns­ins.

Norð­ur­turn­inum var gert að greiða hvorum aðila 3 millj­ónir króna í máls­kostnað. Ekki liggur fyrir hvort dóm­inum verði áfrýjað af hálfu Norð­ur­turns­ins. Í sam­ræmi við fyrri upp­lýs­ingar þá hefur nið­ur­staða dóms­máls­ins óveru­lega fjár­hags­lega þýð­ingu fyrir félagið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár