Verkfall í Noregi gæti hækkað olíuverð

Óttast er hækk­unar á olíu­verði vegna yfir­stand­andi verk­falls norskra starfs­manna á olíu­borpöllum.

Lokun olíuborpalla í Noregi gæti þrýst upp heimsmarkaðsverði á olíu.
Lokun olíu­bor­p­alla í Noregi gæti þrýst upp heims­mark­aðs­verði á olíu. Mynd: EPA

Meira en 600 norskir starfs­menn á olíu­borpöllum eru komnir í verk­fall, en búist er við verð­hækk­unum á heims­mark­aðs­verði á olíu í kjöl­farið. Þetta kemur fram í frétt Dagens Nær­ingsliv í gær­kvöldi.

Ljóst var í gær að samn­ingar myndu ekki nást milli Sambands norskra skipa­eig­enda (e. Rederifor­bundet) og Verka­lýðs­fé­lags orku­geirans í Noregi (e. SAFE) og munu því yfir 600 starfs­menn olíu­bor­p­alla hefja verk­fall. Náist samn­ingar ekki fyrir næst­kom­andi sunnu­dag munu 900 með­limir verka­lýðs­fé­lags­ins einnig leggja niður störf. Vegna verk­fallsógnar upp­lýsti Shell svo í gær að starf­semi á Knarr-svæð­inu yrði stöðvuð.

Í umfjöllun Dagens Nær­ingsliv er haft eftir Commerzbank að þrátt fyrir að lít­ill hluti olíu­fram­leiðslu á heims­vísu muni laskast vegna verk­falls­að­gerð­anna gætu þær haft áhrif á olíu­verð þar sem mark­að­ur­inn sé nú þegar í þröngri stöðu. Í frétt Financial Times um málið er verk­fall­inu lýst sem dæmi um hve við­kvæmur hrá­vöru­mark­að­ur­inn er gagn­vart litlum rösk­unum.

Olíuverð hefur farið nokkuð hækk­andi und­an­farin miss­eri, en sam­kvæmt ráð­gjafa Dagens Nær­ingsliv eru þær aðal­lega vegna fram­boðsminnk­unar í Líbíu auk við­skipta­banns Banda­ríkj­anna við Íran. Norski hluta­bréfa­mark­að­ur­inn hefur notið góðs af þessum hækk­unum, en vísi­tala hans hækk­aði um 1,18 pró­sent í kjöl­far olíu­verð­hækk­an­anna í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár