Mönnunin 60 prósent miðað við lágmarksmönnun

Ljós­mæður vantar á allar vaktir á Land­spít­al­anum og segir fram­kvæmda­stjóri kvenna- og barna­sviðs ástandið mjög erfitt. Auk þeirra tólf ljós­mæðra sem hættu um mán­aða­mótin hafa átján til við­bótar sagt upp.

Fjöl­margir áhyggju­fullir verð­andi for­eldrar hafa haft sam­band við Land­spít­ala til að fá upp­lýs­ingar um stöðu mála á fæð­ing­ar­deild og kvíðir fram­kvæmda­stjóri kvenna- og barna­sviðs því þegar deildin fyllist af verð­andi mæðrum. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

[links]

Linda Krist­munds­dóttir, fram­kvæmda­stjóri kvenna- og barna­sviðs Land­spít­ala, segir í sam­tali við Frétta­blaðið að mönn­unin nú sé 60 pró­sent miðað við lág­marks­mönnun. „Það vantar ljós­mæður á allar vaktir. Þetta er mjög erfitt.“ Auk þeirra tólf ljós­mæðra sem hættu um mán­aða­mótin hafa átján til við­bótar sagt upp. Linda segir að tæp­lega 150 ljós­mæður starfi á svið­inu í tæp­lega 100 stöðu­gildum. Hér sé því um að ræða veru­lega stórt hlut­fall vinnu­aflsins.

„Við reynum að taka því sem að höndum ber. Þetta er í raun­inni krísu­stjórnun,“ segir hún um þá stöðu sem upp er komin vegna upp­sagna tólf ljós­mæðra sem tóku gildi síð­ast­lið­inn sunnu­dag.

[adspot]

Sérstök aðgerða­á­ætlun hefur verið sett upp á spít­al­anum og segir Linda að þegar hafi reynt á hana. Staðan hafi verið þokka­leg á sunnu­dag og mánu­dag en ástandið sé metið frá vakt til vaktar.

Ein­hverjar konur hafi verið útskrif­aðar fyrr í heima­þjón­ustu og aðrar sendar annað. Linda segir sam­starf við aðrar heil­brigð­is­stofn­anir hafa gengið ágæt­lega. Þannig hafi val­keis­ara­skurðum verið beint annað.

„Það er heil­mikið af áhyggju­fullum verð­andi for­eldrum sem hafa sam­band. Okkur finnst það mjög erfitt en við reynum að útskýra stöð­una og aðgerða­á­ætl­un­ina fyrir fólki. Fyrstu tveir dag­arnir hafa verið þokka­lega rólegir en við ótt­umst það þegar við fáum hol­skeflu, hvað gerum við þá? Það mun fyrst veru­lega reyna á þegar deildin fyllist. Það er til­viljun að það hafi verið rólegt fram að þessu,“ segir Linda við Frétta­blaðið.

Velferðarnefnd fundar í dag

Í frétt­inni kemur enn fremur fram að Halldóra Mogensen, þing­maður Pírata og for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis, vilji að heil­brigð­is­ráð­herra og full­trúar Land­spít­ala komi á fund nefnd­ar­innar til að ræða stöð­una. „Þetta er mjög alvar­leg staða. Okkur finnst mjög mik­il­vægt að fá upp­lýs­ingar frá þessum aðilum til að gera okkur betur grein fyrir stöð­unni. Ábyrgðin á að finna lausn á þessu máli er mest hjá fjár­mála­ráð­herra og for­sæt­is­ráð­herra. Þetta eru ekki launa­hækk­anir sem ljós­mæður eru að biðja um heldur launa­leið­rétt­ing.“

Boðað er til fundar í vel­ferð­ar­nefnd klukkan 14.30 í dag og hefur rík­is­sátta­semj­ari boðað til næsta samn­inga­fundar á fimmtu­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár