Hæstiréttur Bandaríkjanna veikir stéttarfélög

Nýr dómur hæsta­rétts Banda­ríkj­anna bannar stétt­ar­fé­lögum að rukka opin­bera starfs­menn sem ekki eru skráðir í þau, en búist er við að félögin tapi tugum millj­ónda dala við dóm­inn.

Dómurinn mun leiða til fjárhagslegs tjóns meðal stéttarfélaganna.
Dómurinn mun leiða til fjár­hags­legs tjóns meðal stétt­ar­fé­lag­anna. Mynd: Pexels

Hæsti­réttur Banda­ríkj­anna úrskurð­aði í dag að stétt­ar­fé­lög mættu ekki rukka opin­bera starfs­menn utan þeirra fyrir kjara­samn­inga. Búist er við að tap stétt­ar­fé­lag­anna á þessum dómi muni hlaupa á tugum millj­óna Banda­ríkja­dala. Þetta kom fram í frétt um málið á vef New York Times.

Samkvæmt frétt­inni komst dóm­stóll­inn að þeirri nið­ur­stöðu að nauð­ung­ar­fjár­mögnun fyrir starfs­semi stétt­ar­fé­laga bryti í bága við fyrsta við­auka stjórn­ar­skrár­innar þar í landi, sem á að vernda tján­ing­ar­frelsi ein­stak­linga. Samuel A. Alito Jr., einn hæstar­rétt­ar­dóm­ar­anna, rök­studdi dóm­inn á þann veg að fyr­ir­komu­lagið brjóti á mál­frels­is­rétt­inum ein­stak­linga utan stétt­ar­fé­laga með því að neyða þá til að nið­ur­greiða sjón­ar­mið sér­hags­muna­hópa í málum sem varða almenn­ing allan.

Úrskurð­ur­inn var naum­lega sam­þykktur, en fimm dóm­arar sam­þykktu hann á meðan fjórir þeirra lögð­ust gegn honum.

Vænt­an­legt tap banda­rískra stétt­ar­fé­laga vegna úrskurð­ar­ins er metið í tugum millj­óna Banda­ríkja­dala, og þar af leið­andi er hætta á að áhrifa­máttur þeirra, sem er ekki mik­ill fyrir í Banda­ríkj­unum, minnki enn frekar. Alito við­ur­kenndi að dóm­ur­inn myndi lík­lega hafa mikil nei­kvæð áhrif á stétt­ar­fé­lögin, en sagði að líta bæri á þau í sam­hengi við þann pen­ing sem hann hefði ekki átt að fá á síð­ustu árum.

Í fyrra var rétt rúmur þriðj­ungur opin­berra starfs­manna í Banda­ríkj­unum skráðir í stétt­ar­fé­lag og 6,5 % starfs­manna í einka­geir­anum. Í opin­berum störfum hefur skrán­ing­ar­hlut­fallið hald­ist nokkuð jafnt á síð­ustu 35 árum, á sama tíma sem það hefur lækkað úr 33% hjá einka­fyr­ir­tækjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stéttarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár