Marta: Braut ekki siðareglur

Borg­ar­full­túi Sjálf­stæð­is­flokks­ins telur sig ekki hafa brotið siða­reglur gegn starfs­mönnum Reykja­vík­ur­borgar.

Marta Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
Marta Guð­jóns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Marta Guð­jóns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir það alrangt að hún hafi sem borg­ar­full­trúi, og sam­kvæmt minn­is­blaði skrif­stofu­stjóra borg­ar­stjórnar, brotið siða­reglur gegn starfs­mönnum Reykja­vík­ur­borgar. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá Mörtu sem hún sendi frá sér í dag.

„Þetta á ég að hafa gert úr ræðu­stóli á fundi borg­ar­stjórnar þriðju­dag­inn 19.6. sl., með ásök­unum í þeirra garð um trún­að­ar­brest og upp­lýs­inga­leka,“ segir hún í yfir­lýs­ing­unni.

[links]Eins og fram kom í fréttum í gær og fyrra­dag þá telur Helga Björk Lax­dal skrif­stofu­stjóri borg­ar­stjórnar að ákvæði um rétt­indi og skyldur kjör­inna full­trúa, sem og siða­reglur þeirra, hafi verið brotnar þegar Marta sak­aði starfs­fólk Reykja­vík­ur­borgar um trún­að­ar­brest og brot á starfs­skyld­um. Þetta kom fram í minn­is­blaði um fram­lagn­ingu fram­boðs­lista við kosn­ingar nefnda, ráða og stjórna á vegum borg­ar­innar

Marta segir jafn­framt í yfir­lýs­ing­unni að með því að hlusta á upp­tökur af fund­inum, sem hægt er að nálg­ast á vef Reykja­vík­ur­borgar, geti hver og einn full­vissað sig um þá stað­reynd að hún hvorki ásak­aði, né nafn­greindi nokkurn starfs­mann Reykja­vík­ur­borgar í þessum efnum.

„Af gefnu til­efni beindi ég hins vegar fyr­ir­spurn til kjör­ins full­trúa á fund­inum, Lífar Magneu­dóttur, um það hvar hún hefði fengið upp­lýs­ingar um til­nefn­ingar póli­tískra mótherja í ráð og nefndir og hvers vegna hún væri að flíka slíkum upp­lýs­ingum á fund­inum, áður en þær yrðu opin­berar með kjöri. Fátt varð um svör en Líf nefndi vett­vang á borð við kaffi­hús og ganga Ráð­húss­ins. Af þessum tjá­skiptum spunn­ust nokkrar umræður meðal borg­ar­full­trúa, en þær breyta í engu þeirri stað­reynd að ég ásak­aði aldrei starfs­menn Reykja­vík­ur­borgar um eitt né neitt,“ segir hún.

Marta telur minn­is­blað skrif­stofu­stjóra borg­ar­stjórnar fáheyrt frum­hlaup hátt­setts emb­ætt­is­manns sem eigi umfram allt að gæta hlut­leysis og ætti ekki að skipta sér af póli­tískum umræðum kjör­inna full­trúa. Borg­ar­stjórn­ar­fundir séu ekki mælsku­nám­skeið þar sem skrif­stofu­stjóri borg­ar­stjórnar segir borg­ar­full­trúum fyrir verkum.

„Þó skrif­stofu­stjór­inn telji að starfs­heiðri sínum vegið með ein­hverjum ummælum kjör­inna full­trúa, hefur hún ekk­ert umboð né aðrar laga­heim­ildir til að setja sig á stall ákæru- og úrskurð­ar­valds yfir kjörnum full­trúum, með pólitisku „minn­is­blaði“ sem er ætlað að gera lítið úr til­teknum kjörnum full­trúum og heldur í þokka­bót fram alvar­legum rang­færslum. Þar er því t.d. rang­lega haldið fram að upp­lýs­ingar um til­nefn­ingar í ráð og nefndir hafi legið fyrir á vef borg­ar­innar í marga klukku­tíma fyrir fund­inn. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá skrif­stofu borg­ar­stjórnar fóru upp­lýs­ingar um umhverfis- og heil­brigð­is­ráð ekki á vef Reykja­vík­ur­borgar fyrr en eftir að borg­ar­stjórn­ar­fund­ur­inn hófst.

Það frum­hlaup skrif­stofu­stjór­ans að semja „minn­is­blað“ og fara þess á leit að það yrði tekið fyrir í for­sætis­nefnd Reykja­vík­ur­borgar, hefur nú haft þær afleið­ingar í för með sér að mál­inu var frestað á síð­asta fundi nefnd­ar­innar, mánu­dag­inn 25.6. sl., en sama kvöld var þetta óaf­greidda trún­að­ar­mál nefnd­ar­innar orðið að æru­meið­andi „frétt“ um mig í fjöl­miðli, þess efnis að ég hefði brotið trúnað gagn­vart starfs­mönnum Reykja­vík­ur­borgar. Og síðan gekk lepp­ur­inn í öðrum fjöl­miðlum dag­inn eftir,“ segir hún.

Að lokum segir hún þetta vera ólíð­andi vinnu­brögð og síst til þess fallin að auka traust milli kjör­inna full­trúa og emb­ætt­is­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár