Nýr mælikvarði á undirliggjandi verðbólgu notaður hjá Seðlabankanum

Seðla­bank­inn kynnti í gær nýjan mæli­kvarða á und­ir­liggj­andi verð­bólgu þar sem litið er fram­hjá sveiflum í hús­næð­is­verði.

Húsnæði Seðlabankans.
Húsnæði Seðla­bank­ans. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Seðla­bank­inn hefur bætt við sig nýjan mæli­kvarða í grein­ingu og mótun pen­inga­stefn­unnar. Mæli­kvarð­inn gengur út á að mæla und­ir­liggj­andi verð­bólgu og gefur til­fallandi breyt­ingum í hús­næð­is­verði minna vægi. Þetta kom fram á kynn­ingu á mæli­kvarð­anum í Seðla­bank­anum í gær.

Lilja Sólveig Kro og Aðal­heiður Guð­laugs­dóttir, sér­fræð­ingar á hag­fræði- og pen­inga­stefnu­sviði Seðla­bank­ans, sáu um kynn­ing­una á mæli­kvarð­ann, en hann ber heitið Sam­eig­in­legur þáttur vísi­tölu neyslu­verðs. Mæli­kvarð­inn byggir á 38 und­ir­vísi­tölum á neyslu­verði, þar sem sam­eig­in­legir verð­þættir allra vísi­taln­anna fá hæst vægi. Hann byggir á sams konar útreikn­ingum ann­arra seðla­banka, en svip­aður mæli­kvarði hefur verið not­aður í Noregi, Svíþjóð og Kanada. [adspot]

Samkvæmt Lilju og Aðal­heiði er mest vægi gefið til þeirra verð­þátta sem eru geng­istengdir, líkt inn­fluttar vörur og þjón­usta. Minnst vægi fær svo opin­ber þjón­usta og hús­næð­is­verð. Mæli­kvarð­inn var met­inn út frá gögnum frá 1998 til síð­asta árs, en hefði hann verið not­aður fyrir sama tíma­bil hefðu sveiflur í verð­bólgu verið minni þótt með­al­tal verð­bólgu hefði hald­ist óbreytt.

[links]Seðla­bank­inn segir mæli­kvarð­ann vera nýtt mat á und­ir­liggj­andi verð­bólgu og góða við­bót við aðra slíka mæli­kvarði sem Seðla­bank­inn hefur horft á. Þórarinn G. Pét­urs­son aðal­hag­fræð­ingur Seðla­bank­ans bætti einnig við á fund­inum að pen­inga­stefnu­nefnd bank­ans hafi nú þegar tekið þennan mæli­kvarða í notkun, ásamt öðrum, til þess að meta verð­bólgu­þróun.

Kynning bank­ans á nýja mæli­kvarða sínum kemur út þremur vikum eftir birt­ingu skýrslu for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins um end­ur­skoðun á pen­inga­stefnu Íslands. Í skýrsl­unni er meðal ann­ars lagt til að verð­bólgu­mark­mið bank­ans ætti að und­an­skilja hús­næð­is­verð til að draga úr skamm­tíma­sveiflum. Samkvæmt Lilju Sólveigu er nýi mæli­kvarð­inn hins vegar ótengdur skýrslu for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins þar sem hann sé ein­ungis not­aður til að mæla und­ir­liggj­andi verð­bólgu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabankinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár