Rekstur Stykkishólmsbæjar og Kjósahrepps ósjálfbær

Fjár­hagur sveit­ar­fé­laga á Íslandi hefur batnað, en tvö þeirra eiga í erf­ið­leikum við að standa undir lög­bundnum verk­efnum sínum sam­kvæmt nýrri skýrslu Íslands­banka.

Stykkishólmsbær
Stykk­is­hólms­bær Mynd: Birgir Þór Harðarson

Rekstur Stykk­is­hólms­bæjar og Kjósa­hrepps í A-hluta sveit­ar­fé­lag­anna nær ekki að standa undir skuld­setn­ingu, sam­kvæmt nýbirtri skýrslu Íslands­banka. Heilt yfir landið hafi fjár­hagur sveit­ar­fé­lag­anna hins vegar batnað með hærri skatt­stofni um auknum rekstr­ar­af­gangi.

Skýrslan var unnin upp úr árs­reikn­ingum sveit­ar­fé­lag­anna fyrir síð­asta ár, en þar var skulda­hlut­fall þeirra reiknað ásamt hlut­falli veltu­fés af tekjum.

Skulda­hlut­fall A- og B-hluta sveit­ar­fé­laga er hæst í Reykja­nesbæ, en þar eru skuldir rúm­lega 150% af tekjum. Samkvæmt Íslands­banka stendur rekstur sveit­ar­fé­lags­ins þó undir núver­andi skuld­setn­ingu þar sem veltufé frá rekstri er nægi­lega hátt hlut­fall af tekjum. Þetta hlut­fall er notað til að mæla hæfni sveit­ar­fé­laga til að standa undir afborg­unum lána og er þriðja hæsta á öllu land­inu í Reykja­nesbæ.

Samkvæmt útreikn­ingum Íslands­banka stendur rekstur Vest­ur­byggðar, Skaga­fjarðar og Stykk­is­hólms­bæjar, ekki undir skuld­setn­ingu að öllu jöfnu í A- og B-hluta sveit­ar­fé­lag­anna. Sú staða gæti hins vegar gefið ranga mynd, en mestu skiptir hvernig rekstri er háttað í A-hluta, en þar er sjálf­bær rekstur lyk­il­at­riði til þess að sveit­ar­fé­lag geti sinnt lög­bundnum verk­efnum sínum.

Ef ein­blínt er á A-hluta sveit­ar­fé­lag­anna eru Stykk­is­hólms­bær og Kjósa­hreppur einu sveit­ar­fé­lögin á land­inu þar sem rekstur stendur ekki undir skuld­setn­ingu að öllu jöfnu. Skulda­hlut­fall Stykk­is­hólms í A-hluta er um 140% af tekjum, á meðan veltufé frá rekstri nær um 5% af tekjum. Í Kjósa­hreppi er skulda­hlut­fallið um 180% af tekjum á meðan veltufé frá rekstri er um 4% af tekjum.

Tekjur jukust og skuldir lækkuðu

Heilt yfir juk­ust þó tekjur sveit­ar­fé­laga sam­hliða því að skuldir lækk­uðu.Tekjur A-hluta sveit­ar­fé­lag­anna juk­ust um 316 millj­örðum króna á árinu 2017, en það er 9% aukn­ing milli ára. Hlut­deild tekna sveit­ar­fé­lag­anna í tekjum hins opin­bera hefur einnig auk­ist, en hún stóð í 28,5% og hefur ekki verið hærri í a.m.k. 15 ár.

Sömu­leiðis lækk­aði hlut­fall skulda á móti eignum sveit­ar­fé­lag­anna, en það stóð í 45% á árinu 2017. Hlut­fallið hefur farið lækk­andi frá árinu 2009, en þá náði það hámarki í 73%.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sveitarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár