Gera ráð fyrir bættum skattskilum og sektum á heimagistingu fyrir tugi milljóna

Rík­is­stjórnin hefur sam­þykkt að setja 64 millj­ónir í átaks­verk­efni um hert eft­ir­lit með heimagist­ingu, líkt og Airbnb. Gera ráð fyrir að að sekt­ar­greiðslur geti numið 50 millj­ónum og að bætt skatt­skil muni skila fjár­fest­ing­unni til baka.

Rík­is­stjórnin hefur sam­þykkt að setja 64 millj­ónir króna á einu ári í átaks­verk­efni um hert eft­ir­lit með heimagist­ingu, líkt og Airbnb og öðrum sem veita sam­bæri­lega þjón­ustu. Gera ráð fyrir að að ein­ungis sekt­ar­greiðslur vegna skrán­ing­ar­leysis geti numið um 50 millj­ónum króna og að bætt skatt­skil muni skila fjár­fest­ing­unni til baka hratt og örugg­lega.

[links]„Samtök ferða­þjón­ust­unnar hafa lengi bent á að skera þurfi upp herör gegn leyf­is­lausri og ólög­legri gisti­starf­semi hér á landi sem að miklu leyti þrífst undir merkjum Airbnb. Við fögnum því þessu átaki stjórn­valda, enda teljum við ein­sýnt að öfl­ugt eft­ir­lit skili árangri. Þá er vert að þakka Þórdísi Kolbrúnu [Reyk­fjörð Gylfa­dóttur], ráð­herra ferða­mála, fyrir hennar for­ystu í mál­inu. Með átak­inu er síðan von­andi verið að tryggja ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækjum heil­brigða sam­keppni og sam­keppn­is­hæf rekstr­ar­skil­yrði“ segir Skapti Örn Ólafsson, upp­lýs­inga­full­trúi Samtaka ferða­þjón­ust­unnar í sam­tali við Kjarnann.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá ferða­mála­ráðu­neyt­inu er lagt upp með að átakið feli í sér fjölgun starfs­manna við eft­ir­lit og mun sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa metið þörf á að ráða alls átta starfs­menn, fjóra á heimagist­ing­ar­vakt, tvo sér­fræð­inga og tvo lög­fræð­inga. Hlutverk starfs­manna á heimagist­ing­ar­vakt er að fram­kvæma vett­vangs­rann­sóknir í kjöl­far kvart­ana eða ábend­inga frá almennum borg­urum eða á grund­velli upp­lýs­inga sem koma fram í frum­kvæð­is­eft­ir­liti. Þá yrðu sér­fræð­ingar fengnir til verk­efna sem tengj­ast bak­vinnslu vegna skrán­inga og eft­ir­lits ásamt ýmsum verk­efnum í tengslum við und­ir­bún­ing stjórn­sýslu­mála og öflun raf­rænna sönn­un­ar­gagna. Verkefni þeirra tveggja lög­fræð­inga sem óskað er eftir er verk­efna­stjórn með aðgerðum, ákvarð­anir um stjórn­valds­sektir og almenn stjórn­sýslu­með­ferð mála.

Samtök ferða­þjón­ust­unnar áætla að rúm­lega 6.000 gest­gjafar bjóði upp á heimagist­ingu um allt land og þar af séu um 4.000 í Reykja­vík. Ný lög um heim­gist­ingu tóku gildi 1. jan­úar 2017 og var mark­miðið með lög­unum að koma þess­ari starf­semi allri upp á yfir­borðið með því að skylda gest­gjafa til skrán­ingar. „Aðeins um 1.000 gest­gjafar á land­inu öllu hafa hins vegar skráð sig hjá emb­ætti sýslu­manns­ins í Reykja­vík. Það hefur því miður ekki gengið sem skyldi en með þessu átaki stjórn­valda er verið að stíga mjög jákvætt skref í rétta átt,“ segir Skapti Örn.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Hagstofu Íslands velti heimagist­ing í gegnum Airbnb um land allt um 15 millj­örðum króna árið 2017.

„Við höfum verið að skjóta á að þeir fjár­munir sem eru undir yfir­borð­inu hvað heimagist­ingu varðar geti numið um 2 millj­örðum króna. Það eru umtals­verðir fjár­munir sem væri hægt að nýta til að byggja upp inn­viði í ferða­þjón­ustu. „Það er auð­vitað ólíð­andi fyrir fyr­ir­tæki sem stunda ábyrgan og heið­ar­legan atvinnu­rekstur að keppa við aðila sem kjósa að vera „utan þjón­ustu­svæðis“ og skila hvorki sköttum né skyldum,“ segir Skapti Örn.

Ráðu­neytið leggur áherslu á að þrátt fyrir að átaks­verk­efn­inu fylgi til­tek­inn kostn­aður megi gera ráð fyrir því að sam­hliða auknu eft­ir­liti muni sekt­ar­greiðslur vegna brota á lög­unum og bætt skatt­skil skila fjár­fest­ing­unni til baka hratt og örugg­lega en áætlað er að ein­ungis sekt­ar­greiðslur vegna skrán­ing­ar­leysis geti numið um 50 millj­ónir króna.
Lagt er til að ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra verði falið að útfæra fjár­mögnun á átaks­verk­efni svo auka megi eft­ir­lit og þannig jafna sam­keppn­is­stöðu í gist­starf­semi hér á landi, skatt­heimtu og öryggi ferða­manna, en allt bendi til að slíkt verk­efni muni geta staðið undir sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

gistinætur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár