Airbnb með tæpan þriðjung af gistinóttamarkaðnum

Airbnb er orðið næst­um­fangs­mesta gisti­þjón­usta lands­ins og þrisvar sinnum stærri en sú þriðja umfangs­mesta sem eru gisti­heim­ili. Í gegnum Airbnb voru 3,2 millj­ónir gistinótta seldar í fyrra.

Airbnb er orðið næst­um­fangs­mesta gisti­þjón­usta lands­ins og þrisvar sinnum stærri en sú þriðja umfangs­mesta sem eru gisti­heim­ili. Flestar gistinætur voru þó seldar á hót­elum, alls 4,3 millj­ónir á árinu 2017. Í gegnum Airbnb voru 3,2 millj­ónir gistinótta seldar í fyrra. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Íslands­banka um ferða­þjón­ust­una.

Um 11,6 millj­ónir gistinótta voru seldar á árinu 2017 á öllum teg­undum gisti­staða.

Hótelin eru ennþá með mestu hlut­deild­ina á gisti­þjón­ustu­mark­aðnum eða 37 pró­sent. Þar á eftir kemur Airbnb með um 30 pró­sent. Hlut­deild Airbnb hefur vaxið um rúm 11 pró­sentu­stig en hlut­deild allra ann­arra teg­unda af gisti­þjón­ustu dreg­ist saman.

Tíu tekjuhæstu velta 1,3 milljörðum króna

Tekjur leigu­sala í gegnum Airbnb á Íslandi námu 19,4 millj­örðum á árinu 2017 og juk­ust um 109% frá fyrra ári. Með­al­verð fyrir sól­ar­hrings­dvöl á Airbnb er mis­jafnt eftir því hvers eðlis gisti­rýmið er. Þegar um er að ræða leigu á öllu heim­il­inu er með­al­verðið um 21,6 þús­und krónur. Til sam­an­burðar er með­al­verð á hót­el­her­bergi í Reykja­vík um 19,7 þús­und. Heilt heim­ili getur hýst fleiri gesti en hót­el­her­bergi alla jafna og er því með­al­verð á hvern ein­stak­ling lægra á Airbnb en á hót­elum.

Þá er velta á Airbnb sem hlut­fall af veltu hót­ela tölu­vert lægra en fjöldi gistinótta á Airbnb sem hlut­fall af fjölda gistinótta hót­ela. Það gefur einnig til kynna að hver gistinótt sé ódýr­ari á Airbnb en á hót­elum á Íslandi. Airbnb er því ekki bara öðru­vísi upp­lifun á gisti­þjón­ustu­mark­að­inum heldur einnig ódýr­ari val­kostur. Gefur það ferða­mann­inum mögu­leika á því að dvelja lengur fyrir sama verð og á hót­elum eða að dvelja í sam­bæri­legan tíma og verja meiri útgjöldum í aðra útgjalda­liði en gist­ingu.

Tekju­hæsti leigu­sali síð­asta árs velti 230 millónum og var með 46 útleigu­rými í gegnum Airbnb. Rýmin geta verið allt heim­ilið, sam­eig­in­legt her­bergi eða sér­her­bergi. Þá eru eig­in­leikar á borð við gæði og fjölda gesta sem rýmið hýsir einnig ólíkir á milli rýma. Sá leigu­sali sem var á meðal þeirra tekju­hæstu og var með mestar tekjur á hvert útleigu­rými velti rúmum 12 millj­ónum á hvert rými yfir 12 mán­aða tíma­bil eða rúm­lega milljón í hverjum mán­uði á hvert rými. Á sama tíma er mán­að­ar­legt leigu­verð á hvern fer­metra á hefð­bundnum leigu­mark­aði í kringum þrjú þús­und krónur fyrir tveggja her­bergja íbúðir. Það gerir um 210 þús­und sé íbúðin 70 fer­metrar. Með­al­fer­metra­verð lækkar svo eftir því sem her­bergjum fjölgar og íbúðin stækkar. Það er því ljóst að leigusalar geta aflað umtals­vert meiri tekna með því að leigja erlendum ferða­mönnum í gegnum Airbnb en með því að leigja á hefð­bundnum leigu­mark­aði. Hefur þessi hvati leitt til þess að íbúðir á hefð­bundnum leigu­mark­aði eru færri en ella sem veldur að öðru óbreyttu hækk­un­ar­þrýst­ingi á leigu­verð.

Fer Airbnb fram úr hótelunum?

Í skýrsl­unni er því velt upp hvort Airbnb muni fara fram úr hót­elum á árinu. Gistin­óttum fjölg­aði á árinu 2017 um 2,1 milljón. Nemur það um 24 pró­sent fjölgun frá árinu 2016. Þá tók Airbnb til sín um 1,6 millj­ónir gistinótta eða um 76 pró­sent af fjölgun gistinótta á árinu 2017. Vöxtur Airbnb hefur verið marg­falt hrað­ari en vöxtur ann­ars konar gisti­þjón­ustu und­an­farin ár. Fyrir vikið hefur hagur skráðrar gisti­þjón­ustu á Íslandi ekki vænkast í sam­ræmi við þá miklu fjölgun ferða­manna sem átt hefur sér stað und­an­farið. Hefur fjölg­unin þess í stað að mestu drifið áfram vöxt deili­hag­kerf­is­ins. Skýrslu­höf­undar telja að um gæti verið að ræða aukið van­mat á verð­mæta­sköpun á hvern ferða­mann sam­hliða miklum vexti Airbnb. „Ljóst er að mikið af þeim verð­mætum sem þar verða til, og renna m.a. til heim­ila lands­ins, er ekki skráð í þeim gögnum sem eru til grund­vallar þegar verð­mæta­sköpun ferða­manna er skoðuð.“

Landsbyggðin drífur vöxt Airbnb

Umfang deili­hag­kerf­is­ins hefur vaxið mun hraðar á lands­byggð­inni en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á síð­ast­liðnum tveimur árum. Á árinu 2015 seld­ust 18 þús­und gistinætur á lands­byggð­inni en 1,3 millj­ónir á árinu 2017. Fjöldi seldra gistinótta á lands­byggð­inni var því 73 sinnum fleiri á árinu 2017 en á árinu 2015.

Hraður vöxtur í umfangi Airbnb á lands­byggð­inni hefur leitt til þess að um fjórar af hverjum tíu seldum gistin­óttum í gegnum Airbnb eru nú á lands­byggð­inni. Það er umtals­verð breyt­ing frá árinu 2015 þegar umfang Airbnb var nán­ast alfarið bundið við höf­uð­borg­ar­svæðið.

Lestu skýrslu Íslands­banka í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

gistinætur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár