Ósamræmi í mælingum á umfangi Airbnb

Fjöldi seldra gistin­átta í gegnum Airbnb voru 1,9 millj­ónir árið 2017 að því er fram kemur á síðu Hag­stof­unnar. Í skýrslu Íslands­banka sem kom út fyrr í mán­uð­inum er sá fjöldi 2,3 millj­ónir.

[links]Gistinætur seldar í gegnum Airbnb og aðrar sam­bæri­legar síður voru 1,9 millj­ónir á árinu 2017. Þetta kemur fram í nýrri frétt Hag­stof­unnar. Þessar tölur stang­ast á við þær tölur sem Íslands­banki gaf út í skýrslu sinni um ferða­þjón­ust­una fyrr í mán­uð­inum. Í skýrslu Íslands­banka kemur fram að gistinætur seldar í gegnum Airbnb hafi verið 2,3 millj­ónir.

Bæði Hag­stofan og Íslands­banki segja að mun­ur­inn felist í aðferða­fræði. Í frétt Hag­stof­unnar sem birt­ist í morgun er áreið­an­leiki gagna sem vef­skröp­un­ar­fyr­ir­tækið AirDNA aflar gagn­rýndur. Íslands­banki not­aði gögn Hag­stof­unnar, Mælaborð ferða­þjón­ust­unnar og Sam­skipta og grein­ingar í skýrslu sinni. Mælaborð ferða­þjón­ust­unnar notar gögn frá AirDNA.

„Á Mæla­borði ferða­þjón­ust­unnar eru birt gögn um veltu Airbnb sem byggj­ast á gögnum frá vef­skröp­un­ar­fyr­ir­tæk­inu AirDNA. Þar segir að tekjur gisti­staða af sölu í gegnum Airbnb hafi verið 19,4 millj­arðar árið 2017 og 9,3 millj­arðar árið 2016. Þessi þróun er ekki í sam­ræmi við gögn úr virð­is­auka­skatt­skilum sem eru að mati Hag­stof­unnar áreið­an­leg­ustu upp­lýs­ingar um veltu þeirra íslensku gisti­staða sem selja gist­ingu í gegnum Airbnb.“ segir í frétt Hag­stof­unnar.

Hag­stofan styðst við gögn úr landamæra­rann­sókn meðal erlendra ferða­manna sem fram­kvæmd er í Flugstöð Leifs Eiríks­sonar. Hag­stofan vigtar svo svörin út frá þjóð­erni og til hlið­sjónar er haft hvernig gist­ingu ferða­mað­ur­inn gisti í og hversu margar nætur hann gisti.

Samkvæmt Hag­stof­unni voru tekjur þeirra sem sem leigja út hús­næði sitt á Airbnb og sam­bæri­legum síðum sam­an­lagt 14,7 millj­arðar árið 2017. Það er 25 pró­sent aukn­ing frá árinu 2016 þegar þær voru 11,8 millj­arðar. Í skýrslu Íslands­banka kemur fram að tekjur leigu­sala af Airbnb hús­næði hafi verið 19,4 millj­arðar á árinu 2017 sem er 109 pró­senta aukn­ing frá árinu 2016. Árið 2016 námu tekjur leigu­sala í gegnum Airbnb 9,3 millj­örðum.

Íslands­banka og Hag­stof­unni greinir einnig á um hlut­deild Airbnb á gisti­þjón­ustu­mark­aðnum en í skýrslu Íslands­banka er hún 28 pró­sent. Hjá Hag­stof­unni er gert ráð fyrir 19 pró­sent hlut­deild hús­næðis leigt út í gegnum Airbnb.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

gistinætur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár