Fá 187föld lágmarkslaun fyrir þrotavinnu

Þeir sem vinna við að sjá um eft­ir­stand­andi eignir föllnu bank­anna Glitnis, Kaup­þings og Lands­banka Íslands þiggja ofur­laun fyrir. Átta slíkir starfs­menn eru á meðal hæstu skatt­greið­enda á land­inu og þeir sem eru með hæstu launin fá 56 millj­ónir á mán­uði.

Banka­hrunið og eft­ir­málar þess eru einn arð­bær­asti atvinnu­vegur á Íslandi í dag. Á meðal þeirra 40 ein­stak­linga sem greiddu hæstu skatt­anna á Íslandi í fyrra voru átta ein­stak­lingar sem vinna fyrir félög utan um eft­ir­stand­andi eignir hinna föllnu Glitnis, Lands­banka Íslands og Kaup­þings.

Þeir sem eru með hæstu mán­að­ar­legu tekj­urnar að með­al­tali voru með 56 millj­ónir króna í laun á hverjum mán­uði í fyrra. Það þýðir að mán­að­ar­laun þeirra voru 187föld lág­marks­laun, sem eru 300 þús­und krónur á Íslandi í dag.

Allir föllnu bank­arnir luku nauða­samn­ingum í lok árs 2015 og breytt­ust þá í eign­ar­halds­fé­lög utan um eft­ir­stand­andi eignir þeirra. Hlutverk starfs­mann­anna er því fyrst og síð­ast að selja eignir. Og í kjöl­farið leggja félögin niður.

Allar upp­lýs­ingar hér að neðan eru unnar upp úr tekju­blöðum Frjálsrar versl­unar og DV.

Glitnir

Í stjórn Glitnis HoldCo sitja þrír menn, þeir Tom Gröndahl og Steen Parsholt, sem báðir voru með 56 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun í fyrra, og Michael Wheeler, sem er skráður með um 5,2 millj­ónir króna á mán­uði. Gröndahl og Parsholt voru sam­kvæmt þessu með 672 millj­ónir króna í árs­tekjur hvor.

Wheeler er hins vegar skráður sem einn þeirra sem greiddu hæstu skatt­anna á Íslandi í fyrra. Þar situr hann í átt­unda sæti eftir að hafa greitt 259,1 milljón króna í skatta í fyrra vegna tekna sem hann hafði á Íslandi. Augljóst er því að Wheeler hafði meira upp úr krafs­inu á síð­asta ári en þær tekjur sem hann er skráður með í Tekju­blaði Frjálsrar Versl­unar.

Fram­kvæmda­stjóri Glitnis Holdco er Ingólfur Hauksson. Hann er heldur ekki á flæðiskeri staddur með 19,2 millj­ónir króna á mán­uði. Ragnar Björg­vins­son, yfir­lög­fræð­ingur Glitnis HoldCo, er á svip­uðum slóðum með 16,1 milljón króna á mán­uði. Snorri Arnar Við­ars­son, for­stöðu­maður eigna­stýrt­ingar GlitnisHoldCo, var með 16,8 millj­ónir krónur á mán­uði.

LBI

Hjá LBI ehf., gamla Lands­bank­anum, sitja þrír menn í stjórn. Þeir eru Richard Katz stjórn­ar­for­maður, sem var með 32,7 millj­ónir króna á mán­uði í fyrra, Kolbeinn Árnason, sem var með 6,7 millj­ónir króna á mán­uði, og Christian Digemose, en launa­kjör hans eru til umfjöll­unar í tekju­blöð­unum. Fram­kvæmda­stjóri LBI er Ársæll Haf­steins­son, sem var með 17,9 millj­ónir króna á mán­uði. Ársæll hefur unnið sleitu­laust fyrir gamla Lands­bank­ann frá því að hann var skip­aður í skila­nefnd bank­ans. Þann 30 júlí 2009 óskaði Fjár­mála­eft­ir­litið, sem bar ábyrgð á skila­nefnd­inni og skip­aði í hana, eftir því að Ársæll léti að störfum fyrir fyrr skila­nefnd­ina þar sem „verk­efnum sem krefð­ust sér­fræði­þekk­ingar“ hans væri lokið. Skila­nefndin réð þá Ársæl sem ráð­gjafa og gerði hann síðar að fram­kvæmda­stjóra.

Hjá LBI starfar líka Jakob Bjarna­son. Hann var með 6,4 millj­ónir króna á mán­uði í fyrra.

Kaupþing

Þriðja félagið sem er starf­andi og var stofnað utan um eft­ir­stand­andi eignir fall­ins banka er Kaupþing ehf., sem í dag er að mestu upp­tekið við að selja stóran hlut í Arion banka. Í stjórn Kaup­þings eru Allan Jeffrey Carr, Paul Copley, Óttar Pálsson, Benedikt Gíslason og Piergi­orgio Lo Greco. Copley er einnig fram­kvæmda­stjóri Kaupþing.

Þrír, hinir íslensku, eru nefndir í tekju­blöð­unum. Einn þeirra er Benedikt Gíslason, sem starf­aði um tíma sem aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og var síðar efna­hags­ráð­gjafi hans. Þá var Benedikt einn þeirra sér­fræð­inga sem var skip­aður í fram­kvæmda­hóp við losun fjár­magns­hafta á árinu 2014. Vinnu þess hóps lauk með því að sam­komu­lag var gert við kröfu­hafa föllnu bank­anna um að mæta stöð­ug­leika­skil­yrðum. Nokkrum mán­uðum eftir að vinnu Bene­dikts fyrir fram­kvæmda­hóp­inn lauk var hann ráð­inn í ráð­gjafa­starf hjá Kaup­þingi og sett­ist í stjórn bank­ans. Benedikt er skráður með 3,2 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun sam­kvæmt tekju­blaði DV.

Óttar Pálsson, lög­maður hjá Logos, situr einnig í stjórn Kaup­þings. Hann er skráður með tæp­lega 3,8 millj­ónir króna í laun á mán­uði en draga má þá ályktun að þau laun séu bæði fyrir lög­manns­störf og störf hans fyrir Kaupþing.

Tveir starfs­menn Kaup­þings voru með það há laun á árinu 2017 að þau kom­ast á blað hjá Frjálsri verslun. Þau eru Arnaldur Jón Gunn­ars­son og Anna Sigríður Arn­ar­dóttir, sem bæði eru lög­fræð­ingar hjá félag­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár