Formlegar viðræður hefjast á morgun milli Viðreisnar og fráfarandi meirihluta

Viðreisn, Sam­fylk­ing, Píratar og Vinstri græn hefja form­legar meiri­hluta­við­ræður á morgun. Markmið að sam­starfs­sátt­máli verði klár fyrir 19. júní.

Óform­legar við­ræður odd­vita Sam­fylk­ing­ar­innar, Við­reisnar, Pírata og Vinstri grænna um mál­efna­grunn hafa leitt til þeirrar sam­eig­in­legu nið­ur­stöðu að hefja form­legar meiri­hluta­við­ræður. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Þórdísi Lóu Þór­halls­dóttur, odd­vita Við­reisnar í Reykja­vík. 

[links]Þar segir að við­ræð­urnar muni hefj­ast á morgun, fimmtu­dag, og að tveir full­trúar frá hverjum flokki taki þátt í þeim. „Mark­miðið er að sam­starfs­sátt­máli nýs meiri­hluta liggi fyrir í góðum tíma fyrir fyrsta borg­ar­stjórn­ar­fund nýrrar borg­ar­stjórnar 19. júní nk. Trúnaður mun ríkja um við­ræð­urnar en nið­ur­stöður þeirra verða kynntar þegar þær liggja fyrir.“

Kjarninn greindi frá því í morgun að ekki margt sem út af bæri til að hægt sé að ná þessum meiri­hluta saman. Stefnur flokk­anna fjög­urra liggja saman í skipu­lags- og sam­göngu­málum og allir eru þeir til­búnir í miklar aðgerðir til að auka enn í upp­bygg­ingu hús­næðis í borg­inni til að tryggja fleiri borg­ar­búum hús­næði á kjörum sem þeir ráða við. Í því sam­hengi má benda á að Viðreisn var með það í stefnu­skrá sinni að byggja 350 félags­legar íbúðir á kjör­tíma­bil­inu.

[adspot]Lyk­il­fólk í Viðreisn hefur sagt í sam­tölum við Kjarnann að það sé ófrá­víkj­an­leg krafa að Dagur B. Egg­erts­son verði ekki áfram borg­ar­stjóri. Það þurfi nýja áferð á meiri­hlut­ann. Pawel Bartoszek, annar borg­ar­full­trúa Við­reisnar, kall­aði það „slúður“ á vef Rúv í dag.

Viðreisn mun fara fram á að stefna flokks­ins í atvinnu­málum, meðal ann­ars lækkun á fast­eigna­sköttum á fyr­ir­tæki, og í mennta­málum fái gott pláss í sátt­mála meiri­hlut­ans. Auk þess er mikil áhersla á að ein­falda kerfið þannig að þeir sem þurfi t.d. að fá ýmis athafna­leyfi geti gert það með minna flækju­stigi. Viðreisn mun líka leggja áherslu á að fastar verði haldið um rekstur borg­ar­innar, en mörgum þar þykir hann ekki í nægi­lega góðum far­vegi með auk­inni skulda­söfnun í miðri upp­sveiflu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2018

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár