Sósíalistaflokkurinn ætlar ekki að taka þátt í meirihlutasamstarfi

Sós­í­alista­flokk­ur­inn segir að ekk­ert muni ávinn­ast í samn­inga­við­ræðum eins borg­ar­full­trúa við ríkj­andi öfl. Þess vegna ætlar flokk­ur­inn ekki að taka þátt í myndun meiri­hluta heldur að sitja í and­stöðu innan borg­ar­stjórnar.

Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Sósíalistaflokksins.
Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, odd­viti Sós­í­alista­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Sós­í­alista­flokkur Íslands mun ekki taka þátt í fyr­ir­hug­uðum við­ræðum um meiri­hluta­sam­starf í borg­ar­stjórn Reykja­víkur. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá Sönnu Magda­lenu Mörtu­dóttur, borg­ar­full­trúa flokks­ins, og Daníel Erni Arn­ars­syni, vara­borg­ar­full­trúa hans, sem birt var í kvöld.

Sós­í­alista­flokk­ur­inn hefur verið orð­aður við þátt­töku í tvenns konar meiri­hluta, ann­ars vegar að hann gæti komið í stað Vinstri grænna í meiri­hluta með Viðreisn, Pírötum og Sam­fylk­ingu, og hins vegar að hægt væri að mynda meiri­hluta með Sam­fylk­ingu, Pírötum, Vinstri grænum og Flokki fólks­ins. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans hefur áhrifa­fólk innan Vinstri grænna reynt að tala fyrir síð­asti kost­inum en við litlar und­ir­tektir.

Í yfir­lýs­ing­unni segir að ákvörð­unin sé tekin eftir sam­ráð við félaga þeirra í Sós­í­alista­flokknum. „Framboð sós­í­alista var fram­boð hinna valda­lausu í borg­inni; lág­launa­fólks, inn­flytj­enda, leigj­enda, eft­ir­launa­fólks, öryrkja og ann­arra hópa sem hefur verið haldið frá völdum. Þessir hópar eru sjaldn­ast ávarp­aðir, á þá er ekki hlustað og ekki er gengið út frá hags­munum þeirra þegar ákvarð­anir eru teknar. Góður stuðn­ingur við fram­boð sós­í­alista færði þessum hópum einn borg­ar­full­trúa. En einn borg­ar­full­trúi tjóðr­aður niður í meiri­hluta­sam­starf við aðra flokka mun fá litlu áorkað. Einn borg­ar­full­trúi getur ekki breytt kerf­inu innan frá, allra síst ef hans fyrsta verk verður að ganga inn í svo til óbreyttan meiri­hluta um stefnu sem sós­í­alistar gagn­rýndu harð­lega í kosn­inga­bar­átt­unni. En einn borg­ar­full­trúi getur tekið virkan þátt með félögum sínum í að byggja upp sam­stöðu meðal lág­launa­fólks, inn­flytj­enda, leigj­enda, eft­ir­launa­fólks, öryrkja og ann­arra valda­lausra hópa og verið far­vegur fyrir bar­áttu þeirra inn í borg­ar­stjórn. Þannig borg­ar­full­trúar viljum við vera og þannig borg­ar­full­trúa eru félagar okkar í Sós­í­alista­flokknum að kalla eftir; borg­ar­full­trúa sem hverfur ekki strax eftir kosn­ingar inn í bak­her­bergi Ráð­húss­ins heldur starfar áfram að upp­bygg­ingu þeirrar hreyf­ingar sem sendi okkur inn í borg­ar­stjórn. Það er okkar mark­mið að þjóna þess­ari vax­andi hreyf­ingu næstu árin og byggja upp með henni öfl­uga og rót­tæka hags­muna­bar­áttu hinna kúg­uðu og valda­lausu. Það er aðeins með sam­stöðu og styrk fjöld­ans sem við getum breytt sam­fé­lag­inu. Ekkert mun ávinn­ast í samn­inga­við­ræðum eins borg­ar­full­trúa við ríkj­andi öfl.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2018

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár