MS dæmt til að greiða 480 milljónir í sekt

Mjólk­ur­sam­salan var í dag í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur dæmd til að greiða sekt að fjár­hæð alls 480 millj­ónir króna vegna mis­notk­unar á mark­aðs­ráð­andi stöðu.

Mjólk­ur­sam­salan var í dag í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur dæmd til að greiða sekt að fjár­hæð alls 480 millj­ónir króna vegna mis­notk­unar á mark­aðs­ráð­andi stöðu. Þannig seldi MS keppi­nautum sínum grund­vall­ar­hrá­efni til fram­leiðslu á mjólk­ur­vörum, það er að segja hrá­mjólk, á hærra verði en MS sjálft og tengdir aðilar, sem eru Kaup­fé­lag Skag­firð­inga og dótt­ur­fé­lag þess, þurftu að greiða. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu en dóm­ur­inn hefur ekki verið birtur á heima­síðu dóm­stóls­ins.

[links]Dómurinn mun hafa litið til þess við ákvörðun á sekt­ar­fjár­hæð­inni að brot MS hafi verið alvar­legt og staðið í langan tíma. Hafi brotið varðað vinnslu mik­il­vægrar neyslu­vöru og aðgerðir MS verið fallnar til að skaða sam­keppni og neyt­endur með alvar­legum hætti. Þá var litið til þess að um ítrekað brot var að ræða. Í dóm­inum er jafn­framt fall­ist á að MS hafi veikt sam­keppn­is­stöðu smærri keppi­nauta, til dæmis Mjólk­ur­bús­ins Kú, og haft bein áhrif á vöxt þeirra.

Jafn­framt stað­festir dóm­ur­inn úrskurð áfrýj­un­ar­nefndar um að MS hafi brotið upp­lýs­inga­skyldu sam­keppn­islaga með því að halda mik­il­vægu gagni frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu. Í dóm­inum segir um þetta: „Með hátta­lagi sínu tor­veld­aði aðal­stefn­andi rann­sókn máls­ins og því þurfti að hefja rann­sókn­ina að nýju“. Þykir fjár­hæð sekt­ar­innar, 40 millj­ónir, hæfi­leg.

Mjólkursamsalan áfrýar

Mjólk­ur­sam­salan hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna dóms Hér­aðs­dóms Reykja­víkur:

„Vegna máls Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins gegn MS til ógild­ingar á úrskurði áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála vil MS taka fram.

Eftir að hafa yfir­farið for­sendur dóms­ins telur MS óhjá­kvæmi­legt að áfrýja nið­ur­stöð­unni sem fer þvert gegn úrskurði fjöl­skip­aðs stjórn­valds. MS telur sem fyrr að fyr­ir­tækið hafið starfað í sam­ræmi við skýr ákvæði búvöru­laga og að engin brot hafi verið framin. Var það nið­ur­staða fjöl­skip­aðrar áfrýj­un­ar­nefndar sam­kepnnis­mála, sem er loka­nið­ur­staða á stjórn­sýslu­stigi og MS telur vera rétta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár