Samkeppniseftirlitið fer með MS-málið fyrir dómstóla

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur ákveðið að stefna Mjólk­ur­sam­söl­unni fyrir Hér­aðs­dóm Reykja­víkur til þess að reyna að fá nið­ur­stöðu meiri­hluta áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála hnekkt. Áfrýj­un­ar­nefndin komst að þeirri nið­ur­stöðu í síð­ustu viku að búvöru­lög vikju sam­keppn­is­lögum frá og ógilti nið­ur­stöðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, sem hafði kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að MS hefði með alvar­legum hætti brotið gegn banni við mis­notkun á mark­aðs­ráð­andi stöðu.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið lagði 440 millj­óna króna sekt á MS vegna máls­ins, vegna þess að fyr­ir­tækið hefði mis­notað mark­aðs­ráð­andi stöðu sína með því að selja keppi­nautum sínum hrá­mjólk á óeðli­lega háu verði á sama tíma og fyr­ir­tækið sjálft og tengdir aðilar fengu sama hrá­efni undir kostn­að­ar­verði. Nið­ur­staða Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins var að þetta hefði veitt MS og tengdum aðilum veru­legt sam­keppn­is­for­skot og geta keppi­nauta hafi verið skert með alvar­legum hætti. Það væri á end­anum fallið til þess að skaða hags­muni neyt­enda og bænda.

MS skaut mál­inu til áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála, sem komst að þeirri nið­ur­stöðu að und­an­þágu­á­kvæði í búvöru­lögum hefðu vikið banni sam­keppn­islaga við mis­notkun á mark­aðs­ráð­andi stöðu til hliðar. Sektin var felld úr gildi, en nefndin stað­festi að MS hefði framið alvar­legt brot með því að halda upp­lýs­ingum frá yfir­völdum, og fyr­ir­tækið ætti að greiða 40 millj­óna sekt vegna þess. Áfrýj­un­ar­nefndin klofn­aði í afstöðu sinni til máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár