Forsætisráðherra ekki sátt við árangurinn í Reykjavík

Katrín Jak­obs­dóttir seg­ist ekki vera sátt við árangur flokks­ins í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum í gær. Málin séu þó flókn­ari en svo að hægt sé að líta á nið­ur­stöð­una sem refs­ingu fyrir rík­is­stjórn­ar­sam­starfið.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður VG.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður VG. Mynd: Skjáskot/RÚV

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri grænna, seg­ist ekki vera sátt við árangur flokks­ins í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum í gær. „Ég vil byrja að segja að ég er ekki sátt við þennan árangur í Reykja­vík. Þegar ég gekk hérna út í gær vorum við með 7,5 pró­sent sem var nærri árangri okkar 2014 og 2010. Ég var ekk­ert ósátt við það að halda þeim árangri,“ segir hún.

Þetta kom fram í Silfrinu í morgun.

Vinstri græn fengu 4,58 pró­sent atkvæða í Reykja­vík og einn borg­ar­full­trúa en þau fengu 8,33 pró­sent fyrir fjórum árum.

Katrín segir að sem stjórn­mála­maður þá velti hún reglu­lega fyrir sér stöðu sinni og telur hún ekki að sú staða sé sjálf­gefin. „Ég er búin að fara víða um land fyrir þessar sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar og mín nið­ur­staða er sú að ég er ekk­ert að fara að gef­ast upp,“ segir hún. 

Enn fremur telur hún að setja þurfi málin í sam­hengi þegar rætt er um hvort nið­ur­staða kosn­ing­anna sé refs­ing fyrir rík­is­stjórn­ar­sam­starf flokks­ins með Sjálf­stæð­is­flokknum og Fram­sókn­ar­flokknum. „Ég held að þetta sé flókn­ara en það. Ef við skoðun fylgi okkar á lands­vísu þá er það allt annað en það fylgi sem við erum að upp­skera í þessum sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum,“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2018

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár