Fékk greiddar tólf milljónir króna fyrir bankaskýrslu

Formaður nefndar sem vann til­lögur um skipu­lag banka­starf­semi á Íslandi var einnig starfs­maður hennar. Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið greiddi honum tæpar tólf millj­ónir króna fyrir vinn­una í byrjun apríl.

Bjarni Benediktsson tók við sem fjármála- og efnahagsráðherra að nýju í lok nóvember 2017. Nefndin var skipuð í tíð fyrirrennara hans í starfi, Benedikts Jóhannessonar.
Bjarni Bene­dikts­son tók við sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra að nýju í lok nóv­em­ber 2017. Nefndin var skipuð í tíð fyr­ir­renn­ara hans í starfi, Bene­dikts Jóhann­es­sonar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Guðjón Rún­ars­son, lög­maður og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samtaka fjár­mála­fyr­ir­tækja, fékk 11.794.491 krónur greiddar í apríl vegna vinnu hans sem for­manns nefndar sem falið var að vinna til­lögur um skipu­lag banka­starf­semi á Íslandi. Guðjón var auk þess starfs­maður nefnd­ar­innar. Greiðslan kemur fram á síð­unni opn­ir­reikn­ingar.is þar sem segir að hún sé vegna sér­fræði­starfa.

Guðjón var skip­aður í nefnd­ina 1. júlí 2017 og til verk­loka hennar, en nefndin lauk störfum með því að skila inn skýrslu til ráðu­neyt­is­ins. Upp­haf­leg verk­lok voru í nóv­em­ber 2017 en þau töfð­ust og urðu á end­anum í jan­úar 2018.

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið segir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið segir að fyrir vinnu að verk­efn­inu hafi verið greiddar 16.500 krónur á klukku­stund að við­bættum virð­is­auka­skatti. Greiðsl­urnar voru fyrir átta vinnu­stundir á virkum dögum frá 10. októ­ber og til verk­loka. „Að auki var greitt skv. tíma­skýrslu fyrir und­ir­bún­ings­tíma­bil fram að 9. októ­ber. Greitt var sam­kvæmt tíma­skýrslu og reikn­ingi verk­sala sem barst skal tengilið fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytis. Alls var greitt fyrir 574 vinnu­stundir.“

Guðjón var í kjöl­farið skip­aður í starfs­hóp sem vinna á hvít­bók um fram­tíð­ar­sýn og stefnu fyrir fjár­mála­kerfið á Íslandi, í sam­ræmi við stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar. Sá hópur var skip­aður í byrjun febr­úar og átti að ljúka vinnu sinni með skýrslu til fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra fyrir 15. maí 2018. Henni hefur enn ekki verið skilað inn.

Starfsumgjörð fjármálamarkaðar gjörbylt frá 2008

Nefndin sem vann til­lögur um skipu­lag banka­starf­semi á Íslandi skil­aði skýrslu sinni í lok jan­úar 2018. Í nið­ur­stöðum hennar kom fram að starfs­um­gjörð fjár­mála­mark­aðar hafi verið gjör­bylt frá fjár­málakrepp­unni 2008 og breyt­ingar í reglu­verki og eft­ir­liti tekið á helstu áhættum sem gerðu banka­kerfið fall­valt í aðdrag­anda henn­ar. „Bank­arnir standi nú styrkum fótum og ekk­ert bendi til þess að það breyt­ist á næstu miss­er­um. Í ljósi sög­unnar sé samt skyn­sam­legt að dregin verði varn­ar­lína um hvað fjár­fest­ing­ar­banka­starf­semi á grunni beinnar og óbeinnar stöðu­töku geti vaxið mikið hjá stærstu bönk­un­um, þeim sem telj­ast kerf­is­lega mik­il­vægir hér á land­i,“ segir meðal ann­ars í útdrætti úr helstu nið­ur­stöðum hóps­ins.

Nefndin tók mörg við­töl við vinnu sína, við inn­lenda og erlenda banka­menn, til að fá fram sem flest sjón­ar­mið.

Í lok skýrsl­unnar voru dregin saman atriði sem nefndin taldi að þurfi að huga betur að og lagði fram til­lögur að úrbót­um. „Nefndin leggur til að ef ein­hver af kerf­is­lega mik­il­vægu bönk­unum hefur í hyggju að auka þá fjár­fest­ing­ar­banka­starf­semi sem felst í beinni og óbeinni stöðu­töku umfram sem nemur 10-15% eig­in­fjár­bind­ingu af eig­in­fjár­grunni, sé þeim banka frjálst að gera það enda verði stofnað sér­stakt ­fé­lag um fjár­fest­ing­ar­banka­starf­sem­ina. Félögin geta verið hluti af sömu sam­stæðu, en þau verð­i ­með óháða stjórn, stjórn­endur og fjár­hag. Slík breyt­ing á lögum um fjár­mála­fyr­ir­tæki verði í anda þeirra laga­breyt­inga sem gerðar hafa verið í Bret­landi á grunni Vickers-­skýrsl­unnar frá 2011. Til vara leggur nefndin til að lög­gjaf­inn veiti Fjár­mála­eft­ir­lit­inu skýra heim­ild og skyldu til að grípa til aðgerða ef eft­ir­litið telur að fjár­fest­ing­ar­banka­starf­semi til­tek­ins banka sé orðin það viða­mik­il að hún skapi áhættu fyrir við­skipta­bank­ann. Í þeim efnum skal haft í huga að eft­ir­litið hefur í dag heim­ildir til að grípa inn í rekstur banka, en þær eru mjög almennar og því hætta á að hart yrði deilt um lög­mæti slíkrar ákvörð­unar og inn­grip gætu dreg­ist um of. Þá kallar nefndin eftir því að eft­ir­lits­að­ilar skil­greini þá hluta af starf­semi við­skipta­bank­anna sem verður ávallt að vera uppi til að þjóna almenn­ingi og rekstri fyr­ir­tækja í land­inu. Mik­il­vægt er að eng­inn vafi leiki á því hvaða starfs­þættir það eru.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár