Gera athugasemdir við tilhögun á skipan dómara í nýjan Endurupptökudómstól

Dóm­ara­fé­lagið og Lög­manna­fé­lagið gera athuga­semdir við frum­varp Sigríðar Andersen dóms­mála­ráð­herra um nýjan End­ur­upp­töku­dóm­stól. Þrír emb­ætt­is­dóm­arar skipa dóm­inn og einn sem ekki er starf­andi eða fyrr­ver­andi dóm­ari.

Dóm­ara­fé­lag Íslands og Lög­manna­fé­lagið gera athuga­semdir við frum­varp Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra um nýjan End­ur­upp­töku­dóm­stól í umsögnum sem félögin hafa sent Alþingi.

Bæði félögin gera athuga­semdir við fjölda dóm­ara við þennan nýja fyr­ir­hug­aða og skipan þeirra.

Gert er ráð fyrir því í frum­varp­inu að fjórir dóm­arar skipi dóm­inn, þrír emb­ætt­is­dóm­arar til­efndir frá hverju dóm­stigi fyrir sig, hér­að­dómi, Lands­rétti og Hæsta­rétti. Þá verði fjórði dóm­ar­inn skip­aður sam­kvæmt til­lögu dóm­nefndar um hæfni dóm­ara, en sá dóm­ari sé hvorki starf­andi dóm­ari, fyrr­ver­andi dóm­ari né starfs­maður dóm­stóls. Staðan skuli aug­lýst sam­kvæmt almennum reglum um aug­lýs­ingu á lausum stöðum dóm­ara.

Dóm­ara­fé­lagið segir að ígrunda þurfi vel hvort þessi sam­setn­ing sé eins og best verði á kosið. „Markmið þess að hafa dóm­inn skip­aðan að hluta til dóm­urum sem hvorki eru emb­ætt­is­dóm­arar né fyrr­ver­andi dóm­arar, er sú að auka á trú­verð­ug­leika hans þar sem við­fangs­efni dóms­ins er öðrum þræði að leggja mat á dóms­störf. Því væri meira jafn­vægi á skipan dóms­ins að hafa tvo dóm­ara sem standa utan rétt­ar­kerf­is­ins á móti þremur starf­andi dóm­urum,“ segir í umsögn DÍ.

Félagið telur að gert sé ráð fyrir að starfið sé auka­starf. Miðað við þann mála­fjölda sem borist hafi end­ur­upp­töku­en­fnd á liðnum árum, 11 til 27 mál á hverju ári, verði að telja að starfið geti orðið það umfangs­mikið að tæp­lega sé unnt að sinna því sem auka­starfi. Nauð­syn­legt geti því verið að hafa dóm­inn skip­aðan fleiri dóm­urum sem komi utan rétt­ar­kerf­is­ins, svo unnt sé í raun að sinna starf­inu sem auka­starfi. Þá kunni einnig að koma upp sú staða í ein­stökum málum að æski­legt sé að hafa dóm­inn skip­aðan fleiri en einum dóm­ara sem ekki er jafn­framt starf­andi dóm­ari.

Loks vekur DÍ athygli á því að máls­með­ferð við skipan þessa fjórða dóm­ara sam­kvæmt lög­unum fái vart stað­ist. Þar er kveðið á um að dóm­nefnd skuli ekki gera upp á milli hæfni þeirra tveggja umsækj­enda sem hún telur hæf­asta, nema ef hún telji annan umsækj­anda ber­sýn­lega standa hinum framar.

„Ekki er útskýrt í grein­ar­gerð hver til­gangur þessa ákvæðis sé en í athuga­semdum við máls­grein­ina er bent á meg­in­reglu stjóm­sýslu­réttar um að ráða skuli hæf­asta umsækj­anda í starf sem aug­lýst er. Augljóst er að mati DI að hæfn­is­nefnd skv.II. kafla lag­anna er bundin af þess­ari meg­in­reglu stjóm­sýslu­réttar hvort sem „ber­sýni­legur“ munur er á milli hæfni umsækj­enda eða annar og minni munur. Verður því ekki séð að nefndin geti unnið í sam­ræmi við þá reglu nema með því að leggja mat á hæfni umsækj­enda og kom­ast þá jafn­framt að þeirri nið­ur­stöðu að einn umsækj­anda sé hæf­astur. Þá verður heldur ekki séð hvernig unnt er að koma í veg fyrir að nefndin láti af hendi upp­lýs­ingar um það atriði, t.d. til umsækj­enda, ef eftir því yrði leitað. DÍ leggur til að þetta ákvæði verði fellt brott og almennar reglur um störf nefnd­ar­innar gildi um vinnu hennar.“

Lög­manna­fé­lagið segir í umsögn sinni að betur gæti farið á því að dóm­arar við sér­dóm­stól­inn væru aðrir en emb­ætt­is­skip­aðir dóm­arar. Að baki því sjón­ar­miði byggju þau rök að draga úr þeirri tor­tryggni sem kunni að fylgja því að emb­ætt­is­dóm­arar fái valdi til að ákveða hvort dóms­mála skuli tekin upp að nýju. Laga­nefnd LMFÍ setur jafn­framt spurn­ing­ar­merki við að gjaf­sókn verði ekki veitt vegna end­ur­upp­töku­mála og máls­kostn­aður ekki dæmdur. Telur Laga­nefnd sér í lagi rök ekki standa til þess að gjaf­sókn sé fyr­ir­fram úti­lokuð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár