Hagsmunaskráning aðstoðarmanna og nokkurra ráðuneytisstjóra gerð opinber

GRECO sam­tök gegn spill­ingu beindu því til stjórn­valda að ástæða sé til hags­muna­skrán­ingar aðstoð­ar­manna vegna nálægðar við vald og eðli starf­anna. Sumir sinna plötu­snúða­störfum, aðrir eru fast­eigna­eig­endur eða stjórn­ar­menn opin­berra fyr­ir­tækja.

Upp­lýs­ingar um hags­muna­skrán­ingu aðstoð­ar­manna ráð­herra hafa verið gerðar aðgengi­legar á heima­síðum ráðu­neyt­anna.

[links]Þann 8. maí ákvað rík­is­stjórnin að taka upp hags­muna­skrán­ingu fyrir ráðu­neyt­is­stjóra og aðstoð­ar­menn ráð­herra í kjöl­far nýlegrar skýrslu GRECO þar sem athygli íslenskra stjórn­valda var vakin á því að ástæða kunni að vera til að láta hags­muna­skrán­ingu ná til þess­ara starfs­manna með hlið­sjón af eðli starf­anna og nálægð við vald ráð­herra.

Kjarninn hefur tekið saman það sem mark­vert er í hags­muna­skrán­ingu aðstoð­ar­mann­anna.

Birgir Jakobsson

aðstoð­ar­maður Svan­dísar Svav­ars­dóttur og fyrr­ver­andi land­læknir, situr í stjórn norsks/sænsks fyr­ir­tækis, FlowIt AB, sem hann segir vera nýtt ráð­gja­fyr­ir­tæki sem veitir ráð­gjöf um umbóta­starf sam­kvæmt LEAN hug­mynda­fræð­inni í mest opin­berum fyr­ir­tækjum í Noregi. Starf­semi hafi ekki haf­ist í Svíþjóð. Hann mun ekki þiggja laun fyrir þessa stjórn­ar­setu. Birgir gefur ekki upp neinar frek­ari upp­lýs­ingar, það er hann er ekki skráður fyrir neinum eignum (hús­næði til eigin nota er þar und­an­skilið), gegnir engum trún­að­ar­störfum og sinnir engri annarri laun­aðri starf­semi.

---

Ólafur Teitur Guðnason

aðstoð­ar­maður Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra gefur upp nokkur launuð verk­efni sem hann sinnir með störfum sínum í ráðu­neyt­inu. Fyrst ber að nefna starf hans sem plötu­snúður á Sál­fræði­þingi 9. febr­úar 2018. Verk­kaupi var Sál­fræð­inga­fé­lag Íslands. Þá sneri hann einnig snældum á 30 ára útskrift­araf­mæli 1988-útskrift­ar­ár­gangs Hóla­brekku­skóla, 5. maí 2018. Þar var verk­kaupi und­ir­bún­ings­nefnd útskrift­araf­mælis. Ólafur tekur fram að hann hafi afþakkað laun fyrir for­mennsku í stjórn Átaks til atvinnu­sköp­unar, sem heyrir undir ráðu­neytið og er skipuð af ráð­herra.

---

Sóley Ragnarsdóttir

aðstoð­ar­maður Ásmundar Einars Daða­sonar félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, var sam­kvæmt hags­muna­skrán­ing­unni vara­maður í stjórn félags­ins MPI ehf. í upp­hafi árs en hefur að sögn sagt sig úr þeirri stöðu. Engin gögn um úrsögn hennar úr stjórn fyr­ir­tæk­is­ins virð­ast hafa borist fyr­ir­tækja­skrá. Félagið er í eigu fyrr­ver­andi sam­býl­is­manns hennar sem gegndi sömu stöðu og hún sem aðstoð­ar­maður ráð­herra, Matth­í­asar Imsland og leigir út íbúð­ar­hús­næði. DV greindi frá því í síð­ustu viku að félagið hefði fjár­fest í íbúðum í Vest­manna­eyjum fyrir 130 millj­ónir til útleigu.

---

Arnar Þór Sævarsson

hinn aðstoð­ar­maður Ásmundar Einars gefur upp þrjár fast­eignir, sem ekki er þá til hans eigin nota. Eina í Álfta­mýri í Reykja­vík, eina fastein við Víðimel í Vesturbæ Reykja­víkur og síðan Skeggja­staði á Hvamms­tanga. Arnar Þór er sjálfur skráður með lög­heim­ili á Blöndu­ósi og var áður sveit­ar­stjóri þar.

---

Svanhildur Hólm Valsdóttir

aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra, situr í stjórn Íslands­pósts þar sem hún er vara­for­maður. Laun stjórn­ar­manna í Íslands­pósti voru hækkuð milli ára og sam­kvæmt nýjasta árs­reikn­ingi félags­ins sem birtur var í apríl fóru greiðslur til stjórn­ar­manna úr níu millj­ónum króna í tíu millj­ónir. Þau eru ekki sun­ur­liðuð sér­stak­lega í árs­reikn­ingnum. Um er að ræða 11 pró­senta hækkun milli ára. Þá á Svan­hildur fast­eign að Goða­braut á Dalvík.

---

Hafþór Eide Hafþórsson

aðstoð­ar­maður Lilju Alfreðs­dóttur mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, er vara­maður í stjórn Kaup­fé­lags Fáskrúðs­firð­inga. Samkvæmt hagmsuna­skrán­ing­unni er greitt fyrir setna fundi sem aðal­maður en Hafþór hefur engan fund setið sem aðal­maður og hugð­ist ekki gefa kost á sér til end­ur­kjörs á aðal­fundi sem fram fór í fyrra­dag.

---

Ágúst Bjarni Garðarsson

annar tveggja aðstoð­ar­manna Sigurðar Inga Jóhanns­sonar sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra og for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, er odd­viti á lista Fram­sóknar og óháðra fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í Hafn­ar­firði fyrir kosn­ing­arnar sem fram fara nú eftir rúma viku þann 26. maí 2018. Gefa ber upp upp­lýs­ingar um trún­að­ar­störf fyrir hags­muna­sam­tök, opin­berar stofn­anir, sveit­ar­fé­lög og félög óháð því hvort störfin séu launuð eða ekki.

---

Ingveldur Sæmundsdóttir

hinn aðstoð­ar­maður Sigurðar In ga Jóhanns­sonar, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra og for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, er sam­kvæmt hags­muna­skrán­ing­unni full­trúi í stjórn Íslenskra orku­rann­sókna, Ísor. Auk þess er Ing­veldur í vara­stjórn Isavia ohf. Samkvæmt ákvörðun aðal­fundar Isavia fá stjórn­ar­menn í félag­inu fá 195 þús­und fyrir hvern fund, en þókn­unin var hækkuð um 15 þús­und á fund­inum og var áður 180 þús­und á fund. Varamenn fá 80 þús­und krónur fyrir hvern set­inn fund.

---

Borgar Þór Einarsson

aðstoð­ar­maður Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­ríks­ráð­herra, á helm­ings­eign­ar­hlut við Kapla­skjól í Vesturbæ Reykja­víkur og helm­ings­eign­ar­hlut í sum­ar­húsi í Ölveri. Þá á hann félagið Optimus ehf. en til­gangur þess félags er sam­kvæmt fyr­ir­tækja skrá útgáfu­starf­semi, gagna­söfnun, sala og dreif­ing á raf­rænum upp­lýs­ingum. Dreif­ingog sala aug­lýs­inga og mark­aðs­efnis. Hug­bún­að­ar­gerð. Dreifing og sala á þjón­ustu á hug­bún­að­ar­lausnum. Sala og rekstur vef­kerfa og hýs­ingar. Fjár­fest­ingar í hluta­bréfum og verð­bréfum ("deb­enture") hvort heldur er á Íslandi eða erlendis. Rekstur fast­eigna og lána­starf­semi. Eignir félags­ins voru 932 þús­und krónur í lok árs 2016.

---

Diljá Mist Einarsdóttir

hinn aðstoð­ar­maður Guðlaugs Þórs Þórs­sonar, utan­rík­is­ráð­herra, gefur upp í sinni hags­muna­skrán­ingu stund­ar­kennslu við Verzlunarskóla Íslands sem hún mun sinna fram í lok maí á þessu ári. Að auki er Diljá Mist er 20 pró­senta eig­andi á End­ur­skoð­unar/lög­manns­stof­unni sf.

---

Einar Hannesson

aðstoð­ar­maður Sigríðar Ást­hildar Andersen dóms­mála­ráð­herra, er í stjórn eigin félags sem heitir Einar Hann­es­son slf. Til­gangur félags­ins er sam­kvæmt Fyr­ir­tækja­skrá við­skipta­ráð­gjöf og önnur rekstr­ar­ráð­gjöf.

---

Nokkrir ráðu­neyt­is­stjórar hafa einnig opin­berað hags­muna­skrán­ingu sína. Þar á meðal Kristján Skarp­héð­ins­son ráðu­neyt­is­stjóri atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins. Hann gefur upp veiði­rétt þar sem hann hefur árlegar tekjur að fjár­hæð 121 þús­und krónur. Hann er eig­andi að 29 pró­senta hlu í jörð­inni Eiríks­bakka Bisk­ups­tungum.

Ragn­hildur Arn­ljóts­dóttir ráðu­neyt­is­stjóri for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins hefur einnig birt sína hags­muna­skrán­ingu en þar er ekk­ert til­tekið sem við á. Hið sama á við um Sigríði Auði Arn­ar­dóttur ráðu­neyt­is­stjóra umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­is­ins.

Guð­mundur Árnason ráðu­neyt­is­stjóri í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu er for­maður stjórnar Söfn­un­ar­sjóðs líf­eyr­is­rétt­inda og hefur verið frá árinu 2010. Núver­andi skip­un­ar­tími Guð­mundar í því starfi er til árs­ins 2020. Þá er hann skráður eig­andi að þremur fast­eignum. Tveimur sam­stæðum bygg­ing­ar­lóðum að Laut­ar­vegi í Reykja­vík, 50 pró­senta eign­ar­hlut í sum­ar­húsi á Selhellu við Mjóa­fjörð í Fjarða­byggð. Auk þess Sumarhús og lóð við Hraun­teig í Borg­ar­byggð. Guð­mundur hyggst að end­ingu taka þátt í stofnun Holl­vina­sam­taka Gamla barna­skól­ans á Eski­firði og í starfi þeirra ef að vonum lætur.

Ráðu­neyt­is­stjórar ann­arra ráðu­neyta hafa ekki gefið upp hags­muna­skrán­ingu sína.

Tilraunaverkefni

Í frétt for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins um hags­muna­skrán­ing­una segir að fyrst um sinn verði hags­muna­skrán­ingin val­kvæð þar sem skylda til skrán­ingar þyrfti að eiga sér skýra laga­stoð. For­sæt­is­ráðu­neytið mun taka við þessum upp­lýs­ingum og fara yfir þær fara og leið­beina hlut­að­eig­andi um hvort þörf sé á ráð­stöf­unum vegna mögu­legra hags­muna­á­rekstra.

Ráðu­neytið segir að um til­rauna­verk­efni sé að ræða og ekki var gert ráð fyrir að upp­lýs­ingar sem verða til við þessa skrán­ingu verði birtar opin­ber­lega. „Til­gang­ur­inn er fyrst og fremst sá að efla vit­und starfs­manna um mik­il­vægi þess að afstýra hags­muna­á­rekstrum og bjóða þeim ráð­gjöf í vafatil­vikum.“

For­sæt­is­ráðu­neytið mun taka saman skýrslu um verk­efnið og birta eigi síðar en 30. mars 2019. Í henni verði ekki per­sónu­grein­an­legar upp­lýs­ingar. Hags­muna­skrán­ing­ar­kerfi stjórn­valda er nú í heild til end­ur­skoð­unar, meðal ann­ars í ljósi ábend­inga GRECO. End­ur­skoð­unin lýtur að því hverjum skuli skylt að skrá hags­muni, hvort gera eigi ráð fyrir upp­lýs­inga­gjöf og ráð­gjöf í trún­aði í vissum til­vikum og hversu víð­feðm skrán­ing­ar­skyldan eigi að vera. Síð­a­stefnda atriðið varðar til dæmis skrán­ingu skuld­bind­inga og hags­muni maka og ólög­ráða barna við­kom­andi.

Frétt ráðu­neyt­is­ins var upp­færð eftir að frétt Kjarnans fór í loftið þar sem eft­ir­far­andi kemur fram:

Hag­muna­skrán­ing aðstoð­ar­manna og nokk­urra ráðu­neyt­is­stjóra hefur nú verið birt og stefnt er að því að birt­ingu ljúki á allra næstu dögum. Birt­ingin er að frum­kvæði aðil­anna sem við eiga, aðstoð­ar­manna og ráðu­neyt­is­stjóra, og í kjöl­farið verður unnið að því að yfir­fara lög­gjöf sem varðar birt­ingu upp­lýs­inga af þessu tagi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár