Upplýsingar um hagsmunaskráningu líklegast ekki birtar opinberlega

Rík­is­stjórnin hefur ákveðið að taka upp hags­muna­skrán­ingu fyrir ráðu­neyt­is­stjóra í Stjórn­ar­ráði Íslands og aðstoð­ar­menn ráð­herra. Hún verður þó val­kvæð fyrst um sinn.

Stjórnarráðið
Stjórn­ar­ráðið Mynd: Birgir Þór

Rík­is­stjórnin ákvað að taka upp hags­muna­skrán­ingu fyrir ráðu­neyt­is­stjóra í Stjórn­ar­ráði Íslands og aðstoð­ar­menn ráð­herra á fundi sínum í morgun. Fyrst um sinn verður hags­muna­skrán­ingin val­kvæð þar sem skylda til skrán­ingar þyrfti að eiga sér skýra laga­stoð.

[links]Þetta kemur fram í frétt for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins.

Hér er um til­rauna­verk­efni að ræða og ekki er gert ráð fyrir að upp­lýs­ingar sem verða til við þessa skrán­ingu verði birtar opin­ber­lega, segir í frétt­inni. Til­gang­ur­inn sé fyrst og fremst sá að efla vit­und starfs­manna um mik­il­vægi þess að afstýra hags­muna­á­rekstrum og bjóða þeim ráð­gjöf í vafatil­vikum.

„Í nýlegri skýrslu GRECO er athygli íslenskra stjórn­valda vakin á því að ástæða kunni að vera til að láta hags­muna­skrán­ingu ná til þess­ara starfs­manna með hlið­sjón af eðli starf­anna og nálægð við vald ráð­herra.

For­sæt­is­ráðu­neytið mun útbúa eyðu­blað fyrir ráðu­neyt­is­stjóra og aðstoð­ar­menn ráð­herra vegna hags­muna­skrán­ingar, sam­bæri­legt því sem ráð­herrar fylla út og bjóða þessum starfs­mönnum að fylla þau út. For­sæt­is­ráðu­neytið mun taka við útfylltum eyðu­blöðum, fara yfir upp­lýs­ingar og leið­beina hlut­að­eig­andi um hvort þörf sé á ráð­stöf­unum vegna mögu­legra hags­muna­á­rekstra,“ segir í frétt­inni.

Jafn­framt kemur fram að for­sæt­is­ráðu­neytið muni taka saman skýrslu um verk­efnið og birta eigi síðar en 30. mars 2019. Í henni verði ekki per­sónu­grein­an­legar upp­lýs­ingar. Hags­muna­skrán­ing­ar­kerfi stjórn­valda sé nú í heild til end­ur­skoð­unar, meðal ann­ars í ljósi ábend­inga GRECO. End­ur­skoð­unin lúti að því hverjum skuli skylt að skrá hags­muni, hvort gera eigi ráð fyrir upp­lýs­inga­gjöf og ráð­gjöf í trún­aði í vissum til­vikum og hversu víð­feðm skrán­ing­ar­skyldan eigi að vera. Síð­a­stefnda atriðið varði til dæmis skrán­ingu skuld­bind­inga og hags­muni maka og ólög­ráða barna við­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár