GRECO gerir átján tillögur að úrbótum vegna spillingar til íslenskra stjórnvalda

GRECO, sam­tök ríkja gegn spill­ingu, hafa skilað stjórn­völdum skýrslu um varnir gegn spill­ingu hjá æðstu hand­höfum fram­kvæmda­valds og lög­gæslu.

GRECO, sam­tök ríkja gegn spill­ingu, hafa skilað stjórn­völdum skýrslu um varnir gegn spill­ingu hjá æðstu hand­höfum fram­kvæmda­valds og lög­gæslu. Í skýrsl­unni er meðal ann­ars mælst til þess að settar verði reglur um sam­skipti æðstu hand­hafa fram­kvæmda­valds við hags­muna­að­ila og aðra aðila sem leit­ast eftir því að hafa áhrif á und­ir­bún­ing lög­gjafar og önnur störf stjórn­valda. Einnig að hags­muna­skrán­inga­kerfi æðstu hand­hafa fram­kvæmda­valds verði bætt, sér í lagi með því að taka til­lit til verð­mætis eigna þeirra, fjár­hæðar fram­laga til þeirra og skuld­bind­inga. Þá verði athugað hvort efni séu til að víkka skrán­ing­ar­skyld­una og láta hana ná yfir maka og börn á for­ræði við­kom­andi, með til­liti til þess að slíkar upp­lýs­ingar þyrfti ekki endi­lega að birta opin­ber­lega. GRECO vill einnig að settar verði reglur um störf æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds eftir að störfum fyrir hið opin­bera lýkur.

Átján ábend­ingar til úrbóta kom fram í skýrsl­unni, þar af níu varð­andi æðstu hand­hafa fram­kvæmda­valds og níu á sviði lög­gæslu. Stjórn­völdum er veittur frestur til 30. sept­em­ber 2019 til að bregð­ast við ábend­ing­unum.

Í til­kynn­ingu frá stjórn­ar­ráð­inu kemur fram að skýrslan verði birt í heild sinni á fimmtu­dag á ensku en einnig verður unnin íslensk þýð­ing.

Ábend­ingar GRECO til úrbóta hvað æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds varðar eru eft­ir­far­andi:

  1. Unnin verði stefna til að bæta heil­indi og varnir gegn hags­muna­á­rekstrum hjá æðstu hand­höfum fram­kvæmd­ar­valds, þar á meðal með virkri ráð­gjöf, vöktun og eft­ir­fylgni.
  2. Siða­reglur fyrir æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds verði sam­ræmdar, unnið verði leið­bein­ing­ar­efni með skýr­ingum og raun­hæfum dæmum og hægt verði að leita ráð­gjafar um þær í trún­aði. Þá verði til staðar eft­ir­lits­að­ili með fram­kvæmd siða­regln­anna og við­ur­laga­kerfi komið á fót.
  3. Komið verði á fót skil­virkum ferlum til að efla vit­und æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds um opin­ber heil­indi, þar á meðal með reglu­legri fræðslu.
  4. Settar verði reglur um sam­skipti æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds við hags­muna­að­ila og aðra aðila sem leit­ast eftir því að hafa áhrif á und­ir­bún­ing lög­gjafar og önnur störf stjórn­valda.
  5. Reglur um auka­störf æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds verði end­ur­skoð­aðar og gerð skýr­ari grein fyrir því hvaða störf eru heimil og hver ekki.
  6. Settar verði skýr­ari reglur um gjafir og önnur fríð­indi fyrir æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds, þar sem gert yrði ráð fyrir skýrum far­vegi fyrir til­kynn­ingar, birt­ingu upp­lýs­inga og við­eig­andi ráð­gjöf til að tryggja að tekið sé á öllum teg­undum fríð­inda með við­un­andi hætti.
  7. Settar verði reglur um störf æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds eftir að störfum fyrir hið opin­bera lýkur.
  8. Hags­muna­skrán­ing­ar­kerfi æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds verði bætt, sér í lagi með því að taka til­lit til verð­mætis eigna þeirra, fjár­hæðar fram­laga til þeirra og skuld­bind­inga. Þá verði athugað hvort efni séu til að víkka skrán­ing­ar­skyld­una og láta hana ná yfir maka og börn á for­ræði við­kom­andi, með til­liti til þess að slíkar upp­lýs­ingar þyrfti ekki endi­lega að birta opin­ber­lega.
  9. Trú­verð­ug­leiki hags­muna­skrán­ing­ar­kerfis fyrir æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds verði auk­inn, með því að leit­ast við að tryggja að farið verði eftir reglum með eft­ir­liti, við­eig­andi ráð­gjöf og fræðslu og með því að setja á fót við­ur­laga­kerfi þegar skrán­ing er ófull­nægj­andi.

Ábend­ingar GRECO til úrbóta á sviði lög­gæslu eru eft­ir­far­andi:

  1. Tryggja verði lög­reglu full­nægj­andi aðbúnað svo hún geti sinnt störfum sínum með skil­virkum hætti, sér í lagi til að fram­fylgja stefnu­mótun á sviði heil­inda.
  2. Siða­reglur lög­reglu og Land­helg­is­gæsl­unnar verði upp­færðar með til­liti til hags­muna­á­rekstra og þátt­töku í stjórn­mála­starf­semi, þeim fylgi leið­bein­ingar með skýr­ingum og raun­hæfum dæmum um öll svið spill­ingar og hægt verði að leita ráð­gjafar um þær í trún­aði. Þá verði til staðar eft­ir­lits­að­ili með fram­kvæmd siða­regln­anna og við­ur­laga­kerfi komið á fót.
  3. Unnið verði fræðslu­efni til að efla vit­und um heil­indi og siða­reglur meðal starfs­manna lög­reglu og Land­helg­is­gæslu (þar sem fjallað verði um hags­muna­á­rekstra og varnir gegn spill­ingu). Tekið verði til­lit til eðlis starf­anna, fjöl­breytni þeirra og veik­leika.
  4. Hlutverk hæfn­is­nefndar við skipun í störf lög­reglu­manna verði eflt og komið verði á fót heil­inda­mati í tengslum við stöðu­veit­ingar innan lög­regl­unnar. Þá verði það gert að meg­in­reglu að lausar stöður innan lög­regl­unnar verði aug­lýstar og skipað í þær á grund­velli gagn­sæs fer­ils.
  5. Skýr, sann­gjörn og gegnsæ við­mið liggi fyrir við ákvörðun um að end­ur­nýja ekki skipun lög­reglu­manna og starfs­manna Land­helg­is­gæslu og að skýrt ferli sé til staðar til að kæra slíka ákvörðun.
  6. Komið verði á fót öfl­ugu reglu­verki um gjafir til lög­reglu­manna og starfs­manna Lands­helg­is­gæsl­unnar og önnur fríð­indi.
  7. Athugun verði gerð á auka­störfum lög­reglu­manna og starfs­manna Land­helg­is­gæslu og störfum sem þeir taka að sér eftir að þeir ljúka störfum hjá hinu opin­bera. Í ljósi nið­ur­staðn­anna verði komið á fót strang­ara reglu­verki sem dragi úr líkum á hags­muna­á­rekstrum.
  8. Komið verði á fót mið­lægri ein­ingu eða ákveðnum aðila innan stofna­na­upp­bygg­ingu lög­regl­unnar sem verði falið það hlut­verk að ann­ast innra eft­ir­lit og rann­sóknir, undir ábyrgð rík­is­lög­reglu­stjóra, en emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra á í fram­kvæmd að hafa skýrt leið­toga­hlut­verk þegar kemur að innri stefnu­málum lög­regl­unnar, þar á meðal í tengslum við heil­indi, áhættu­stjórnun og eft­ir­lit með lög­regl­unni. Þá þarf jafn­framt að end­ur­skoða valda­upp­bygg­ingu innan lög­regl­unnar til að tryggja skil­virka inn­leið­ingu stefnu­mót­unar án afskipta ráðu­neytis eða stjórn­mála.
  9. Settar verði skýrar reglur um vernd upp­ljóstr­ara hjá lög­reglu og Land­helg­is­gæslu til við­bótar til­kynn­ing­ar­skyldu sem er til staðar sam­kvæmt siða­reglu.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

spilling

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár